Leita í fréttum mbl.is

Töframeðal

Gaman væri að vita hvaða töframeðal hin síunga Barbie á. Fimmtug er hún að verða en er enn ofurgrönn, mittismjó og fótnett. Hvergi hrukku á henni að sjá eða nokkur ellimörk. Ég hygg að allir, bæði karlar og konur vildu vita hvernig henni hefur tekist að snúa á elli kerlingu. Wink
mbl.is Fimmtugsafmæli hjá Barbie
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið réttlætismál

Vonandi næst um þetta mál þverpólitísk sátt svo breytingarnar verði afgreiddar fyrir þinglok í vor. Þetta ákvæði sem verið er að reyna að breyta hefur þýtt fyrir marga tjónþola að þeir hafa nánast engar bætur fengið vegna frádráttarins. Engin hagnast á þessu nema tryggingafélögin sem eiga að borga tjónþolunum bætur. Ég þekki um þetta fjölmörg dæmi. Helst þyrfti að hafa breytinguna afturvirka ef nokkur möguleiki er á svo þeir sem þessum mikla órétti hafa verið beittir frá 1999 fái tilbaka það sem frá þeim var í raun með röngu tekið.
mbl.is Réttlætismál sem velkst hefur í kerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til fyrirmyndar

Þetta finnst mér til hreinnar fyrirmyndar. Raunar velti ég því mest  fyrir mér af hverju þetta frumvarp er ekki löngu komið fram. Svo mikið er í vetur búið að ræða nauðsyn frumvarps um hópmálsókn. Það er frábært að þingmenn skuli hafa frumkvæði að því að leggja fram mikilægt lagafrumvarp af þessu tagi. Þar sem flutningsmenn koma úr öllum flokkum þá hlýtur þetta frumvarp að ná í gegn, vonandi fyrir kosningar.
mbl.is Frumvarp um hópmálsókn lagt fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert að þessu

Dagpeningum er ætlað að greiða útlagðan kostnað. Það er auðvitað skrítið ef ráðamenn hafa verið að fá dagpeninga þó allt sé greitt fyrir þá á ferðalögum. Allt aðhald á þessu sviði er af hinu góða.
mbl.is Steingrímur sker í dagpeninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hef mikla fyrirvara

Ég hef áður bloggað um tillögur um stjórnlagaþing. Það er búið að fækka þingmönnunum og þar með lækkar kostnaðurinn eitthvað. En ég hef engu að síður enn mikla fyrirvara við skynsemi þess að setja hér á laggirnar stjórnlagaþing. Mér finnst umhugsunarefni þessi forgangsröðun takmarkaðra fjármuna á krepputímum.
mbl.is Telur stjórnlagaþing kosta meira en milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlýtur að vera ólöglegt

Fyrir stuttu bloggaði ég að í Bandaríkjunum er sagt: The best way to rob a bank is to own a bank. Mér sýnist þessi frétt sýna að það er mikill sannleikskjarni í því. Þetta getur ekki verið löglegt


mbl.is Lánuðu sjálfum sér milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá erum við andstæðingar ...

Prófkjörsframbjóðendur og stuðningsmenn þeirra eru nú komnir á fullt til að afla sér og sínum frambjóðendum fylgis. Eftirfarandi saga er sönn og úr baráttunni. Hún segir, held ég, mikið um það hvað það verður að passa sig í prófkjörsbaráttunni. 

Hringt var í einstakling í austurhluta borgarinnar frá stuðningsmanni eins frambjóðanda. Kynnt var framboð frambjóðandans og skýrt frá því að frambjóðandinn leitaði eftir stuðningi í nánar tilgreind sæti. Einstaklingurinn sem hringt var í skýrði frá því að hann væri búinn að ákveða að kjósa annan frambjóðanda í eitt af þeim sætum sem nefnd voru. Þá voru viðbrögð þess sem hringdi frá frambjóðandanum eftirfarandi: ,,Þá erum við andstæðingar." Það kom á þann sem hringt var í enda taldi viðkomandi að í prófkjörinu væru allir samherjar, að keppast um hylli. Þó hann væri búinn að ákveða að kjósa einstakling í tilgreint sæti útilokaði það ekki stuðning við þann frambjóðanda sem verið var að hringja fyrir. Það þarf jú að kjósa 10, a.m.k. hjá okkur í Sjálfstæðisflokknum. Einhver orðaskipti urðu um þetta sem lyktaði með því að sá sem hringdi frá frambjóðandanum áttaði sig á mistökunum og bað afsökunar á því að hafa talað með þessum hætti. Símtalinu lauk í fullri sátt.

En þetta sýnir hversu mikilvægt það er að við sem erum í framboði pössum upp á það hvernig talað er af okkur sjálfum og stuðningsfólki okkar um aðra frambjóðendur.

Viljum við ekki öll að úr prófkjörunum komi sigurstranglegasti listinn?


mbl.is Sjálfstæðisflokkur opnar prófkjörsvef
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En málefnin?

Það er greinilegt að Framsóknarflokkurinn vill í ríkisstjórn eftir kosningar. Þeir eru til í hvað sem er. Í raun er það það sem formaðurinn er að segja. Ekki er að heyra að málefnin muni vefjast þar fyrir Framsóknarflokknum. Ráðherrastólarnir koma númer 1, málefnin númer 2. Fyrsti kostur er vinstri stjórn en ef það gengur ekki þá eru þeir til í stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Spurningin er þessi: Eru hinir flokkarnir jafn ákafir í stjórn með Framsóknarflokknum? Og eiga málefnin engu að skipta?
mbl.is Vill vera í vinstri stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fælandi áhrif

Stuðningskerfi, hverju nafni sem þau nefnast, eru fyrir þá sem á stuðningi þurfa að halda. Það er nöturleg staðreynd að alltaf skuli vera til einstaklingar sem sjá sér leik á borði að misnota þessi stuðningskerfi. Það er mikilvægt að allir viti að virkt eftirlit sé með öllum bótakerfum. Það hefur fælandi áhrif gagnvart hugsanlegri misnotkun. Þess vegna er gott að heyra að markvisst eftirlit sé hjá Vinnumálastofnun hvað varðar atvinnuleysisbætur.
mbl.is Reynt að sporna við misnotkun á bótum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ívilnandi?

Eins og ég skil þetta þá hafa þingmenn allra flokka sameinast um það að láta gömlu reglurnar, sem nú á að þrengja, gilda fyrir þá en nýju reglurnar byrji að taka til þeirra sem koma inn nýir eftir kosningar.

Ég sé ekki betur en að þarna hafi þingmenn sameinast um að taka ívilnandi ákvörðun fyrir sig. Hafi ég þá fyrir rangri sök þá er ég viss um að einhver mun leiðrétta mig - og ég mun að sjálfsögðu biðja þá afsökunar. Wink


mbl.is Afnám eftirlaunalaga miðist við kjördag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira um hliðvörð ...

Ég veit ekki hvaða orð ég á að nota um þessa frétt. Undrandi er ég en aðallega er ég reið yfir því að fram skuli koma að embætti sérstaks saksóknara skuli svo vopnlaust í þeim verkefnum sem það á að sinna. FME er stofnun sem allt bendir til að hafi því miður brugðist illa eftirlitshlutverki sínu. Miðað við fréttina hefur ekki verið gengið betur frá hnútum en svo að FME getur þvælst fyrir því að sérstakur saksóknari geti sinnt sínu hlutverki. Í annarri frétt á mbl.is í dag eru frekari dæmi um það að mál þurfa að fara í gegnum FME áður en sérstakur saksóknari fái þau. Vonandi mun þessi lagabreyting í einhverju bæta þessa stöðu og tryggja að það embætti geti farið að sinna málum af krafti.
mbl.is Bankaleynd verður afnumin með öllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hliðvörður?

Þessi frétt og önnur sem birtist á mbl.is í morgun sýna með sérkennilegum hætti að FME virðist vera einhvers konar hliðvörður þegar kemur að því að sjá til þess að hugsanleg refsimál sem tengjast hruninu verði rannsökuð. Mér er óskiljanlegt af hverju rannsóknarnefndin getur ekki vísað málum beint til sérstaks saksóknara. Af hverju var búið til þetta millistig hjá FME? Hefur FME ekki nógum verkefnum að sinna þó þessu hafi ekki verið bætt á þá stofnun?
mbl.is Óvíst að gögn að utan nýtist nefndinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband