Leita í fréttum mbl.is

Fælandi áhrif

Stuðningskerfi, hverju nafni sem þau nefnast, eru fyrir þá sem á stuðningi þurfa að halda. Það er nöturleg staðreynd að alltaf skuli vera til einstaklingar sem sjá sér leik á borði að misnota þessi stuðningskerfi. Það er mikilvægt að allir viti að virkt eftirlit sé með öllum bótakerfum. Það hefur fælandi áhrif gagnvart hugsanlegri misnotkun. Þess vegna er gott að heyra að markvisst eftirlit sé hjá Vinnumálastofnun hvað varðar atvinnuleysisbætur.
mbl.is Reynt að sporna við misnotkun á bótum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Steinn Gestsson

Það er bara eðlilegt að fólk sem er við það að missa allt sitt vegna mistaka stjórnmálamanna og fyrrum eigenda bankanna, reyni eftir fremsta megni að drýgja tekjur sínar. Ég er ekki að segja að þetta sé endilega rétt. Ég er atvinnulaus og tek atvinnuleitina í skorpum, það er svo ægilega þungt að sækja endalaust um vinnu og fá engin svör, suma daga er ég á fullu og aðra, næ ég varla að fara fram úr rúminu. Stóra atriðið í þessari frétt er reyndar að um sé að ræða c.a. 350 manna hóp og hvað er það af 15.000? Raunar ætti fyrirsögnin að vera: 99.5% atvinnulausra eru heiðarlegt fólk. En í stað þess er einblínt á örfár hræður, svei! 

Óskar Steinn Gestsson, 5.3.2009 kl. 15:51

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Það sem er líka verra að það kemur óorði á stuðningskerfið og sérstaklega þá sem þurfa að nota það.

Finnur Bárðarson, 5.3.2009 kl. 16:36

3 Smámynd: Dögg Pálsdóttir

Sæll Óskar. Stundum eru stuðningskerfin svo vitlaust að það verður að teljast sjálfsbjargarviðleitni þegar fólk "misnotar" þau. Fyrir mörgum árum stýrði ég vinnu sem skoðaði barnabætur. Sú vinna sýndi að reglurnar voru svo vitlausar og komu svo ósanngjarnt niður á fólki að maður hreinlega gat ekki hneykslast á því að fari væri í kringum þær. En meginreglan á að vera og verður að vera sú að fylgst sé með því að stuðningskerfi séu ekki misnotuð. bkv. Dögg

Dögg Pálsdóttir, 5.3.2009 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband