Þriðjudagur, 3. mars 2009
Að axla ábyrgð .... þegar eitthvað fer úrskeiðis í læknismeðferð
Í Íslandi í dag var fjallað um málefni tveggja karlmanna sem létust fyrir aldur fram, hugsanlega vegna þess að eitthvað fór úrskeiðis í læknismeðferð þeirra.
Til mín hafa leitað fjölmargir sjúklingar eftir að eitthvað fór úrskeiðis í læknismeðferð þeirra. Meginreglan virðist sú að heilbrigðiskerfið gleymir að segja sjúklingum frá því að eitthvað hafi farið úrskeiðis eða segir svo óskýrt frá því að sjúklingurinn getur ekki almennilega skilið upplýsingarnar. Því síður virðist mikið um að sjúklingum í þessari stöðu sé sagt frá því að þeir eigi hugsanlega rétt á bótum úr svokallaðri sjúklingatryggingu, sem stofnuð var með lögum árið 2000. Með þeim lögum átti að auka og bæta réttarstöðu sjúklinga, til bóta, einmitt þegar eitthvað fer úrskeiðis.
Ég tel að heilbrigðisstofnanir og heilbrigðisstarfsmenn þurfi að endurskoða frá grunni með hvaða hætti þeir gera sjúklingum grein fyrir þegar eitthvað fer úrskeiðis. Það þarf að segja sjúklingum frá því, umbúðarlaust, útskýra hvað fór úrskeiðis og útskýra réttarstöðuna. Það þarf jafnvel stundum að biðja afsökunar. Mikið vantar á að upplýsingar séu nægilega greiðlega gefnar. Ég þekki engin dæmi þess að beðið sé afsökunar.
Það hefur lengi legið fyrir að hér er alvarleg brotalöm í kerfinu. Samt gengur afar hægt að kippa þessu í liðinn. Bent hefur verið á að sérstakt starf umboðsmanns sjúklinga gæti skipt sköpum í málum af þessu tagi. Ég held að mikið sé til í því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 2. mars 2009
Ábyrgðarleysi?
Mér fannst með ólíkindum að Alþingi skyldi taka jólafrí í liðlega fjórar vikur á tímum eins og nú eru. Vegna kosninga eru framundan sex vikur þar sem þing verður ekki að störfum. Það eru mörg brýn verkefni sem þarf að leysa. Þau tefjast vegna kosninganna. Ekki sé ég hvernig slæmt ástand batnar við það.
Og svona í framhjáhlaupi: Er Framsóknarflokkurinn búinn að gleyma því að hann var í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum frá 1995-2007? Einkavæðing bankanna og þau mistök sem sýnast hafa verið gerð í þeim ferli voru jafnt í boði Framsóknarflokksins sem Sjálfstæðisflokksins. Heldur nýr formaður Framsóknarflokksins að pólitísk fortíð Framsóknarflokksins og ábyrgð hans á efnahagsstjórninni, einkavæðingunni og ríkisfjármálunum 1995-2007 hafi horfið við það eitt að hann var kosinn formaður?
![]() |
Vill rjúfa þing 12. mars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 2. mars 2009
Miklir peningar
![]() |
Tveir milljarðar króna í bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 2. mars 2009
Góðar fréttir
![]() |
Auknar líkur á olíu á Drekasvæðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 2. mars 2009
Vonbrigði
Það eru mikil vonbrigði að ekki skuli enn hafa skapast aðstæður til að afnema gjaldeyrishöfin. Það eru einnig vonbrigði að í þeim efnum eigi jafnvel ekkert að gerast fyrr en 1. september nk.
Gjaldeyrishöftin fluttu okkur áratugi aftur í tímann. Gjaldeyrir er ekki keyptur nema með ströngum skilmálum. Þetta rifjar upp ástand sem var hér fyrir löngu, ástand sem enginn trúði að myndi koma aftur.
Afnám gjaldeyrishaftanna er mikilvægur þáttur í þeirri endurreisn efnahagslífsins sem nauðsynleg er. Því fyrr sem þau verða afnumin því betra.
![]() |
Gjaldeyrishöft ekki afnumin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 2. mars 2009
Styrkleikamerki
Það hefur komið í ljós, ekki síst eftir hrunið, að betur hefði mátt standa að einkavæðingu bankanna. Í því ferli var vikið frá áður teknum ákvörðunum um t.d. dreifða eignaraðild. Af hverju var það gert?Það liggur fyrir að hrunið má m.a. rekja til rangra ákvarðana í hagstjórn. Regluverk var ekki eins traust og menn héldu. Eftirlitsstofnanir á vegum stjórnvalda brugðust. Aðvörunarorð voru virt að vettugi.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur veitt ríkisstjórnum forystu frá lokum apríl 1991 þar til loka janúar á þessu ári. Sjálfstæðisflokkurinn getur því ekki vikist undan því að skoða hvað fór úrskeiðis á þessu tímabili og tengslum þess við hrunið í október 2008. Hrunið gerðist á vakt Sjálfstæðisflokksins. Auðvitað koma fleiri stjórnmálaflokkar að málum því allan þennan tíma hefur Sjálfstæðisflokkurinn stjórnað í samstarfsríkisstjórnum, fyrst með Alþýðuflokknum, svo Framsóknarflokknum og síðast Samfylkingunni.
Ég tel það ótvírætt styrkleikamerki Sjálfstæðisflokksins að vinna með þeim hætti sem gert hefur verið í endurreisnarnefnd flokksins. Tilgangur vinnu af þessu tagi er fyrst og fremst að leita skýringa svo draga megi lærdóma. Enda krefjast landsmenn þess að skýringar finnist. Alþingi hefur sett sérstaka rannsóknarnefnd á laggirnar í sama tilgangi. Öll þessi vinna hefur þann mikilvæga tilgang: Að tryggja eftir föngum að þetta gerist aldrei, aldrei aftur.
![]() |
Flokkurinn þoli stór orð" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 2. mars 2009
Eftirfylgni
Formaður Samfylkingarinnar upplýsir hér að í apríl 2008 hafi íslensk stjórnvöld fengið ábendingu frá AGS um að erfiðleikar kynnu að vera framundan vegna stærðar bankakerfisins. Formaðurinn segir Fjármálaeftirlitið og Seðlabanka Íslands ekki hafa brugðist við tilmælum ríkisstjórnarinnar af nægilegum krafti. Með því staðfestir formaður Samfylkingarinnar það sem þegar hefur verið uppýst að Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands brugðust í aðdraganda hrunsins.
En úr því að ríkisstjórnin gerði sér grein fyrir að þessir aðilar voru ekki að bregðast við af nægilegum krafti af hverju gerði ríkisstjórnin ekkert meira? Bar ríkisstjórninni engin skylda til að sjá til þess að meiri kraftur væri þá settur í viðbrögðin af hálfu þessara eftirlitsaðila? Verður ríkisstjórn stikkfrí við það eitt að segja öðrum að gera hlutina, ef í ljós kemur að sá eða þeir sem verkið er falið, gera ekkert eða gera ekki nægilega mikið?
![]() |
IMF varaði við í apríl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 1. mars 2009
Samhengi hlutanna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 1. mars 2009
Vonandi rétt
![]() |
Vextir fara að lækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 1. mars 2009
Hvenær ætla menn að skilja um hvað jafnrétti snýst?
Fram hefur komið að búið er að kjósa nýjan formann í bankastjórn Kaupþings. Kona valdist til formennskunnar og er það fagnaðarefni, ekki síst í ljósi þess að til formennsku í stjórnum hinna ríkisbankanna hafa valist karlar ef ég man rétt.
Í fréttum hefur einnig komið fram að í bankastjórn Kaupþings sitji nú einvörðungu konur. Sú frétt finnst mér merkileg, þó ég viðurkenni að ég fagna henni ekkert sérstaklega. Og tengist sú afstaða mín með engum hætti þeim ágætu konum sem þar hafa valist til setu.
Kannski má telja það ákveðinn áfanga í jafnréttisbaráttunni að það skuli teljast jafnsjálfsagt að skipa bankaráð þar sem einvörðungu sitja konur, eins og áður þótti sjálfsagt að skipa bankaráð þar sem einvörðungu sátu karlar.
En jafnréttisbaráttan snýst ekki um það að eingöngu annað kynið sitji í nefndum, ráðum eða stjórnum. Með kröfum um jafnrétti er verið að fara fram á það að konur komi að málum til jafns við karlana. Í þriggja manna stjórn sé a.m.k. einn einstaklingur af öðru kyninu og þá tveir af hinu. Í fimm manna stjórn sé a.m.k. tveir af öðru kyninu og þrír af hinu o.s.frv.
Mér finnst þessi samsetning bankastjórnar Kaupþings sýna að það er eins og menn ætli aldrei að skilja um hvað jafnréttisumræðan snýst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 1. mars 2009
Snarpt brugðist við
Það er athyglisvert í þessari frétt frá Írlandi að þar virðast menn hafi brugðist snarpar við en hér á landi við bankahruni. Yfirstjórn Seðlabanka Íra virðist eiga að breyta án einhverra teljandi tafa. Í kjölfar þjóðnýtingar banka fór efnahagsbrotadeild lögreglu í húsleit í viðkomandi banka.
Hér á landi kvartar sérstakur saksóknari yfir því að eftirlitsstofnanir sitji á málum og beini þeim ekki til hans, sbr. frétt á mbl.is í gær, sem ég bloggaði m.a. um. Engin húsleit hefur verið gerð í bönkunum þremur eftir hrunið, svo vitað sé.
Enda varð þjóðin leið á seinaganginum með þeim afleiðingum sem þekktar eru. Seinagangurinn var á vakt okkar sjálfstæðismanna. Við berum því ábyrgð á honum. Það má orða það svo að sú vinstri stjórn sem hér stjórnar er að hluta og jafnvel öllu leyti í boði Sjálfstæðisflokksins, vegna mistaka sem við gerðum sem stjórnarflokkur. Mér finnst það frekar óþægileg staðreynd. En staðreynd er það engu að síður. Síðustu daga hef ég talað við fjölmarga sjálfstæðismenn sem eru sama sinnis. Við hefðum viljað sjá brugðist við málum snarpt strax í október/nóvember, svipað og Írar virðast vera að gera.
![]() |
Endurskoða yfirstjórn bankamála |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 28. febrúar 2009
Fyrir hverja eru þessar eftirlitsstofnanir?
Hvernig má það vera að eftirlitsstofnanir hafa ekki látið mál renna til sérstaks saksóknara? Nógan tíma höfðu þær til að tína saman málin sem ættu með réttu að ganga til þessa nýja embættis.
Ætla eftirlitsstofnanirnar líka að bregðast hér, eins og þær brugðust í aðdraganda efnahagshrunsins? Eða er það virkilega svo að þær telji hlutverk sitt að slá skjaldborg um þá sem hugsanlega hafa brotið lög í staðinn fyrir að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að draga þessa aðila til ábyrgðar?
![]() |
Tregða við upplýsingagjöf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
-
addabogga
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
andriheidar
-
gumson
-
audbergur
-
abg
-
axelaxelsson
-
armannkr
-
arniarna
-
asabjorg
-
arh
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
astar
-
kaffi
-
birgir
-
launafolk
-
bjarnimax
-
borgar
-
braskarinn
-
gattin
-
bryndisharalds
-
brandarar
-
carlgranz
-
rustikus
-
deiglan
-
draumur
-
einarbb
-
ekg
-
jaxlinn
-
elinora
-
ellasprella
-
ellyarmanns
-
erla
-
erlaosk
-
erna-h
-
fsfi
-
fhg
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisligislason
-
neytendatalsmadur
-
grazyna
-
gudni-is
-
gelin
-
gudbjorng
-
fasteignir
-
gudfinna
-
lucas
-
gudmundurmagnusson
-
gudrunshil
-
gudruntora
-
gunnaraxel
-
gunnargunn
-
laugardalur
-
gylfithor
-
hallarut
-
heidistrand
-
heidathord
-
jarnskvisan
-
heimirhilmars
-
hehau
-
helgi-sigmunds
-
herdis
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
disdis
-
holmfridurge
-
tulinius
-
idno
-
ingabesta
-
ingisund
-
golli
-
ibb
-
astromix
-
johannalfred
-
stjornun
-
jonmagnusson
-
jonsnae
-
juliusvalsson
-
kolbrunb
-
kristinhrefna
-
lara
-
lotta
-
nytjagardar
-
altice
-
matarbitinn
-
maggaelin
-
martagudjonsdottir
-
mal214
-
morgunbladid
-
olavia
-
olinathorv
-
olofnordal
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
otti
-
publicservant
-
iceland
-
pjeturstefans
-
ragnar73
-
ragnheidurrikhardsdottir
-
ragnhildur
-
rannveigmst
-
runirokk
-
rynir
-
trumal
-
salvor
-
sirrycoach
-
sigurbjorns
-
sv11
-
sighauk
-
sij
-
sigurdurir
-
ohyes
-
sigurdurkari
-
siggisig
-
siggith
-
sigurjonsigurdsson
-
zunzilla
-
sms
-
1301493169
-
stefaniasig
-
stebbifr
-
brv
-
sveinni
-
saethorhelgi
-
thelmaasdisar
-
grasteinn
-
ubk
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
va
-
villidenni
-
thorbjorghelga
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
thoragud
-
thorasig
-
tbs
-
thorhallurheimisson
-
iceberg
-
toddi