Leita í fréttum mbl.is

Snarpt brugðist við

Það er athyglisvert í þessari frétt frá Írlandi að þar virðast menn hafi brugðist snarpar við en hér á landi við bankahruni. Yfirstjórn Seðlabanka Íra virðist eiga að breyta án einhverra teljandi tafa. Í kjölfar þjóðnýtingar banka fór efnahagsbrotadeild lögreglu í húsleit í viðkomandi banka.

Hér á landi kvartar sérstakur saksóknari yfir því að eftirlitsstofnanir sitji á málum og beini þeim ekki til hans, sbr. frétt á mbl.is í gær, sem ég bloggaði m.a. um. Engin húsleit hefur verið gerð í bönkunum þremur eftir hrunið, svo vitað sé. 

Enda varð þjóðin leið á seinaganginum með þeim afleiðingum sem þekktar eru. Seinagangurinn var á vakt okkar sjálfstæðismanna. Við berum því ábyrgð á honum. Það má orða það svo að sú vinstri stjórn sem hér stjórnar er að hluta og jafnvel öllu leyti í boði Sjálfstæðisflokksins, vegna mistaka sem við gerðum sem stjórnarflokkur. Mér finnst það frekar óþægileg staðreynd. En staðreynd er það engu að síður. Síðustu daga hef ég talað við fjölmarga sjálfstæðismenn sem eru sama sinnis. Við hefðum viljað sjá brugðist við málum snarpt strax í október/nóvember, svipað og Írar virðast vera að gera.


mbl.is Endurskoða yfirstjórn bankamála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

svo mikið rétt hjá þér Dögg - og enn sitja margir svo fast og vilja sig ekki hreifa þrátt fyrir háværar biðlanir um slíkt til að rýma fyrir kanski óreindara en þó nýju fólki, kanski fólk sem hefur þurft að vinna aðeins fyrir sýnu

kemur Sjálfstæðisflokkurinn til með að hljóta afhroð í komandi kosningum td vegna þvermóðsku nokkurra einstakinga í flokknum

Jón Snæbjörnsson, 1.3.2009 kl. 11:38

2 identicon

Samfylkingin er mun verri í "hreinsingum" á ábyrgum aðilum úr flokknum sínum en sjálfstæðisflokurinn.

Þór (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 20:45

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Þór, snýst ekki um að einn sé verri en annar, ég hef lagt til að um svona hluti sé talað á ópólitískum nótum - þetta kemur allri þjóðinni við ekki ákveðnum hópum - ég er Sjálfstæðismaður og hef kosið - sá garður er ekkert endilega grænni en hjá einhverjum öðrum eins og staðan er núna eða hvað ?

Jón Snæbjörnsson, 1.3.2009 kl. 22:44

4 identicon

Nei nei, en þeir sýna allavega smá ábyrgðarkennd, annað en ingibjörg og kó.

Þór (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 391643

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband