Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009
Laugardagur, 9. maí 2009
Það þarf ekki mikið
![]() |
Ánægður með svör |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 9. maí 2009
Þótt fyrr hefði verið
Það verður áhugavert að sjá "samstarfsgrundvöllinn" hjá VG og Samfylkingunni. Miðað við loforð um vandaða vinnu hljóta landsmenn að vænta loksins einhverra aðgerða fyrir fólk, fyrirtæki og fjölskyldurnar í landinu. Kannski verður skjaldborginni um heimilin lofað aftur?
![]() |
Ríkisstjórn í burðarliðnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 9. maí 2009
Hanna Ingólfsdóttir Johannessen
Hönnu kynntist ég Barnaverndarnefnd Reykjavíkur eftir sveitarstjórnarkosningarnar 1982. Báðar komum við nýjar inn í nefndina þetta vorið og sátum þar saman í þrjú ár eða til 1985 þegar ég sagði af mér formennsku vegna brottfarar til útlanda. Hanna var áfram í nefndinni fjölmörg ár
Þá eins og nú var nefndin pólitískt skipuð í þeim skilningi að stjórnmálaflokkarnir sem áttu fulltrúa í borgarstjórn tilnefndu fulltrúa í nefndina. En þar sleppti pólitíkinni. Í nefndinni var gengið til verka með málefni barna að leiðarljósi. Allir flokkarnir lögðu mikinn metnað í að tilnefna hæft og að jafnaði reynslumikið fólk til starfa í nefndinni. Að jafnaði segi ég því seint verður sagt að ég hafi verið reynslumikið á þessum tíma. Aðrir nefndarmenn voru það á hinn bóginn og sýndu því aðdáunarvert umburðarlyndi að til formennsku var valinn nýútskrifaður lögfræðingur. Til mín hefur sjálfsagt verið leitað fyrir þá sök að kandidatsritgerð mín var á sviði barnaverndar og fól í sér allnokkra úttekt á störfum barnaverndarnefnda á höfuðborgarsvæðinu. Þar hafði ég m.a. bent á nokkur lausatök sem virtust vera á lögfræðilegri hlið starfa barnaverndarnefndar Reykjavíkur.
Á þessum vettvangi kynntist ég Hönnu og mörgum öðrum mikilhæfum einstaklingum. Það er ekki auðvelt að sitja í barnaverndarnefnd Reykjavíkur. Þar eru teknar ákvarðanir sem oft eru mjög sársaukafullar fyrir fjölskyldur, en nauðsynlegar, þegar hagur barna er hafður að leiðarljósi. Allar ákvarðanir nálgaðist Hanna fumlaust og í krafti þeirra reynslu sem hún hafði af margvíslegum störfum sínum á sviði mannúðarmála. Fyrir mig sem formann var ómetanlegt að hafa reynslumikla konu sem Hönnu, og aðra nefndarmenn, innanborðs, í öllum störfum nefndarinnar, en ekki síst þegar kom að erfiðum ákvörðunum.
Um svipað leyti hóf ég að starfa með Hvöt, félagi sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. Þar var Hanna einnig þungamiðja í starfi. Síðan höfum við Hanna bara alltaf þekkst. Þótt oft liðu mánuðir og jafnvel ár milli þess sem við hittumst þá var Hanna svo einstök kona að það var alltaf eins og við hefðum síðast hist í gær. Í prófkjörinu í mars sl. kom hún í morgunkaffi á heimili mitt þar sem ég bauð stjórnarmönnum í hverfafélögum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, en hún sat í stjórn hverfafélagsins í vesturbæ um margra ára skeið. Mér þótti sérstaklega vænt um að hún skyldi gefa sér tíma til að sækja þennan fund sem ég boðaði til. Nokkrum dögum síðar hittumst við í Valhöll, einnig í tengslum við prófkjörið. Í samtali okkar bar margt á góma, eins og endranær. Vænt þótti mér um hversu hrifin hún sagðist hafa orðið af útsýninu úr stofunni hjá mér, þar sem Esjan blasir við í allri sinni dýrð. Síst af öllu hvarflaði að mér að þetta væri okkar síðasti fundur.
Hanna skilur eftir sig vandfyllt skarð alls staðar sem hún lét til sín taka. Sjálfstæðiskonur hafa misst einstakan og ötulan liðsmann. Mestur og stærstur er þó missir feðganna og fjölskyldunnar. Þeim sendi ég hugheilar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Hönnu Ingólfsdóttur Johannessen.
![]() |
Útför Hönnu Ingólfsdóttur Johannessen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 9. maí 2009
"Sæktu á brattann"
Söngvaseiður í Borgarleikhúsinu er yndislegur. Enda var sýningunni afburðavel tekið í gærkvöldi. Fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að linna. Sagan er ljúf, lögin falleg. Börnin hvert öðru frábærara í sínum hlutverkum. Og fullorðna fólkið ekki síðra. Mér fannst Jóhanna Vigdís eiginlega stela senunni sem abbadísin þó María Valgerðar Guðnadóttur væri mjög góð. Jóhannes Haukur var sjarmatröll í hlutverki kapteinsins en kannski fullungur til að vera trúverðugur sjö barna faðir?
Og einhvern veginn hittir beint í okkar aðstæður þýðing Flosa á Climb every montain: Sæktu á brattann, sigrað' í neyð, gakktu grýtta stigu, sem greiðfærustu leið ...
Er þetta ekki nákvæmlega það sem íslenska þjóðin er að gera núna?
Mæli eindregið með Söngvaseið - og taka börnin með. Ég hef aldrei verið á kvöldsýningu í leikhúsi þar sem jafnmikið var af börnum, sem öll virtust skemmta sér konunglega, þótt sum væru orðin aðeins þreytt í lokin.
![]() |
Endalaust uppklapp á Söngvaseið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 8. maí 2009
Er leyndin nauðsynleg?
Það er athyglisvert að fjármálaráðherra og ráðgjafi hans skuli sett í það hlutverk að verja mikla leynd yfir skýrslu Deloitte og ráðgjafafyrirtækisins Wyman um verðmat á eignum og skuldum sem færðar voru frá gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Öðru vísi mér áður brá.
Það hafa sjálfsagt fleirum en mér þótt merkilegt af hversu miklum ákafa fjármálaráðherra varði alla þessa leynd kvöldið fyrir kjördag. Hrædd er ég um að ef fjármálaráðherra hefði á þeim tíma enn verið í stjórnarandstöðu hefði hann talað með öðrum og beinskeyttari hætti. Og gagnrýnt harðlega alla þessa leynd.
Enn eru menn á hans vegum að útskýra leyndina. Nú þannig að hugsanlega verði umrædd skýrsla aldrei birt. Alveg eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Gott væri ef sömu aðilar gætu útskýrt á mannamáli fyrir okkur kjósendum af hverju nákvæmlega þessi leynd er nauðsynleg. Ekki síst í ljósi þess að nýju bankarnir eru orðnir eign ríkisins.
![]() |
Skýrsla Wyman ekki birt meðan á viðræðum stendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 8. maí 2009
Skýringar, takk
Hvernig má það vera að Bretar eigi í samningaviðræðum við AGS um það hvernig við greiðslum meintar skuldir okkar vegna Icesave? Í hvaða umboði er AGS að semja við Breta fyrir okkar hönd, ef rétt er? Af fréttinni má ráða að formaður Icesave samninganefndarinnar, Svavar Gestsson sendiherra og fv. ráðherra veit ekki af þessum tvíhliða viðræðum AGS og Breta.
Það er óviðkunnanlegt að lesa og heyra í fjölmiðlum að þessir aðilar séu eitthvað að véla um okkar mál. Fréttin kallar á frekari skýringar af hálfu stjórnvalda um það hvað sé eiginlega í gangi.
![]() |
Bretar að semja við IMF |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 8. maí 2009
Sammála
Fyrirfram á ég ekki von á því að verða mjög hrifin af því sem fram mun koma í stjórnarsáttmála VG og Samfylkingar. En ég verð þó að segja það að ég er algerlega sammála þeim áformum að breyta launakjörum hjá ríkinu þannig að laun forstöðumanna ríkisstofnana verði ekki hærri en laun forsætisráðherra. Raunar á hið sama að gilda í ráðuneytunum sjálfum. Enginn starfsmaður í ráðuneyti á að vera með hærri laun en ráðherrann sem þar er yfir.
![]() |
Eðlilegt að miða við laun forsætisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 7. maí 2009
Enn hálfgerð hænufet
![]() |
Umtalsverð vaxtalækkun í júní |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 7. maí 2009
Skýr afstaða
Af þessari könnun má ráða að afstaða kjósenda sé skýr til aðildarviðræðna. Áhugavert hefði verið að fá samanburð við fyrri kannanir því um þetta hefur verið spurt áður. Skyldi mikil umræða síðustu dægra eitthvað hafa aukið stuðning við viðræðurnar? Það er jafnframt merkilegt að meirihluti kjósenda allra flokka annarra en Sjálfstæðisflokksins skuli hlynntur aðildarviðræðum. Fyrirfram hefði mátt vænta þess að meirihluti kjósenda VG væri einnig andvígur þeim. Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir forystu VG.
Áhugavert hefði verið að spyrja hvort þeir sem aðildarviðræður vilja telji þjóðaratkvæði um aðildarviðræður nauðsynlegt.
Vegna athugasemda sem fram hafa komið við blogg mín vil ég taka fram að sjálf er ég eindregið fylgjandi viðræðum án undanfarandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
![]() |
61,2% vilja aðildarviðræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 6. maí 2009
Þjóðstjórn?
Augljóst er að allur vandræðagangurinn í kringum stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar og VG er vegna EB. Flokkarnir hafa í grundvallaratriðum mismunandi afstöðu til EB. Samfylkingin vill ganga í EB og virðist hafa fáa fyrirvara í því sambandi. VG vill ekki í EB og hefur því enga fyrirvara sett gagnvart aðildarviðræðum sem þeir eru í prinsipinu á móti. Svo virtist sem VG hefði læst sig inni í því að vilja þjóðaratkvæði um það hvort ganga eigi til viðræðna við EB. Sem betur fer sýnist sá vitleysugangur, sem er ekkert nema sóun á tíma og peningum, útúr myndinni.
Þess í stað virðast stjórnarflokkarnir ræða það sem lausn að Alþingi verði falið að ákveða hvort farið verið í aðildarviðræður. Fyrir því er líklega meirihluti á Alþingi þó ekki sé það öruggt. Með slíkri leið er Samfylkingin í raun að setja allt sitt traust á stjórnarandstöðuna. Þetta hefur áður gerst á líftíma þessarar ríkisstjórnar, í Helguvíkurmálinu á lokadegi nýliðins þings. Þá náðist það mikilvæga mál iðnaðarráðherra í gegn fyrir tilstilli stjórnarandstöðunnar. Ríkisstjórnarflokkarnir klofnuðu, VG greiddi á móti, Samfylkingin með. Stjórnarandstaðan tryggði málinu brautargengi.
Er það forsvaranlegt að í jafnmikilvægu máli og því hvort ganga eigi til aðildarviðræðna ætli Samfylkingin að setja traust sitt á stjórnarandstöðuna? Og hvað ef stjórnarandstaðan klikkar? Hvað ætlar Samfylkingin að gera þá? Og hvað með samningsmarkmiðin? Hver á að setja þau? Stjórnarandstaðan og Samfylkingin?
Sýnir þetta mál og allur vandræðagangurinn í kringum það að í alvöru þarf að skoða þjóðstjórn? Ég man ekki betur en að formaður VG hafi bent á þörf þess strax eftir hrunið. Ég hneigist að því að hann hafi haft rétt fyrir sér. Reynslan sé að sýna það.
![]() |
Ágreiningur ekki áhrif á aðildarviðræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 392476
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
-
addabogga
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
andriheidar
-
gumson
-
audbergur
-
abg
-
axelaxelsson
-
armannkr
-
arniarna
-
asabjorg
-
arh
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
astar
-
kaffi
-
birgir
-
launafolk
-
bjarnimax
-
borgar
-
braskarinn
-
gattin
-
bryndisharalds
-
brandarar
-
carlgranz
-
rustikus
-
deiglan
-
draumur
-
einarbb
-
ekg
-
jaxlinn
-
elinora
-
ellasprella
-
ellyarmanns
-
erla
-
erlaosk
-
erna-h
-
fsfi
-
fhg
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisligislason
-
neytendatalsmadur
-
grazyna
-
gudni-is
-
gelin
-
gudbjorng
-
fasteignir
-
gudfinna
-
lucas
-
gudmundurmagnusson
-
gudrunshil
-
gudruntora
-
gunnaraxel
-
gunnargunn
-
laugardalur
-
gylfithor
-
hallarut
-
heidistrand
-
heidathord
-
jarnskvisan
-
heimirhilmars
-
hehau
-
helgi-sigmunds
-
herdis
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
disdis
-
holmfridurge
-
tulinius
-
idno
-
ingabesta
-
ingisund
-
golli
-
ibb
-
astromix
-
johannalfred
-
stjornun
-
jonmagnusson
-
jonsnae
-
juliusvalsson
-
kolbrunb
-
kristinhrefna
-
lara
-
lotta
-
nytjagardar
-
altice
-
matarbitinn
-
maggaelin
-
martagudjonsdottir
-
mal214
-
morgunbladid
-
olavia
-
olinathorv
-
olofnordal
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
otti
-
publicservant
-
iceland
-
pjeturstefans
-
ragnar73
-
ragnheidurrikhardsdottir
-
ragnhildur
-
rannveigmst
-
runirokk
-
rynir
-
trumal
-
salvor
-
sirrycoach
-
sigurbjorns
-
sv11
-
sighauk
-
sij
-
sigurdurir
-
ohyes
-
sigurdurkari
-
siggisig
-
siggith
-
sigurjonsigurdsson
-
zunzilla
-
sms
-
1301493169
-
stefaniasig
-
stebbifr
-
brv
-
sveinni
-
saethorhelgi
-
thelmaasdisar
-
grasteinn
-
ubk
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
va
-
villidenni
-
thorbjorghelga
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
thoragud
-
thorasig
-
tbs
-
thorhallurheimisson
-
iceberg
-
toddi