Leita í fréttum mbl.is

Hanna Ingólfsdóttir Johannessen

Hönnu kynntist ég Barnaverndarnefnd Reykjavíkur eftir sveitarstjórnarkosningarnar 1982. Báðar komum við nýjar inn í nefndina þetta vorið og sátum þar saman í þrjú ár eða til 1985 þegar ég sagði af mér formennsku vegna brottfarar til útlanda. Hanna var áfram í nefndinni fjölmörg ár

Þá eins og nú var nefndin pólitískt skipuð í þeim skilningi að stjórnmálaflokkarnir sem áttu fulltrúa í borgarstjórn tilnefndu fulltrúa í nefndina. En þar sleppti pólitíkinni.  Í nefndinni var gengið til verka með málefni barna að leiðarljósi. Allir flokkarnir lögðu mikinn metnað í að tilnefna hæft og að jafnaði reynslumikið fólk til starfa í nefndinni. Að jafnaði segi ég því seint verður sagt að ég hafi verið reynslumikið á þessum tíma. Aðrir nefndarmenn voru það á hinn bóginn  og sýndu því aðdáunarvert umburðarlyndi að til formennsku var valinn nýútskrifaður lögfræðingur. Til mín hefur sjálfsagt verið leitað fyrir þá sök að kandidatsritgerð mín var á sviði barnaverndar og fól í sér allnokkra úttekt á störfum barnaverndarnefnda á höfuðborgarsvæðinu. Þar hafði ég m.a. bent á nokkur lausatök sem virtust vera á lögfræðilegri hlið starfa barnaverndarnefndar Reykjavíkur.

Á þessum vettvangi kynntist ég Hönnu og mörgum öðrum mikilhæfum einstaklingum. Það er ekki auðvelt að sitja í barnaverndarnefnd Reykjavíkur. Þar eru teknar ákvarðanir sem oft eru mjög sársaukafullar fyrir fjölskyldur, en nauðsynlegar, þegar hagur barna er hafður að leiðarljósi. Allar ákvarðanir nálgaðist Hanna fumlaust og í krafti þeirra reynslu sem hún hafði af margvíslegum störfum sínum á sviði mannúðarmála. Fyrir mig sem formann var ómetanlegt að hafa reynslumikla konu sem Hönnu, og aðra nefndarmenn, innanborðs, í öllum störfum nefndarinnar, en ekki síst þegar kom að erfiðum ákvörðunum.

Um svipað leyti hóf ég að starfa með Hvöt, félagi sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. Þar var Hanna einnig þungamiðja í starfi. Síðan höfum við Hanna bara alltaf þekkst. Þótt oft liðu mánuðir og jafnvel ár milli þess sem við hittumst þá var Hanna svo einstök kona að það var alltaf eins og við hefðum síðast hist í gær. Í prófkjörinu í mars sl. kom hún í morgunkaffi á heimili mitt þar sem ég bauð stjórnarmönnum í hverfafélögum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, en hún sat í stjórn hverfafélagsins í vesturbæ um margra ára skeið. Mér þótti sérstaklega vænt um að hún skyldi gefa sér tíma til að sækja þennan fund sem ég boðaði til. Nokkrum dögum síðar hittumst við í Valhöll, einnig í tengslum við prófkjörið. Í samtali okkar bar margt á góma, eins og endranær. Vænt þótti mér um hversu hrifin hún sagðist hafa orðið af útsýninu úr stofunni hjá mér, þar sem Esjan blasir við í allri sinni dýrð. Síst af öllu hvarflaði að mér að þetta væri okkar síðasti fundur.

Hanna skilur eftir sig vandfyllt skarð alls staðar sem hún lét til sín taka. Sjálfstæðiskonur hafa misst einstakan og ötulan liðsmann. Mestur og stærstur er þó missir feðganna og fjölskyldunnar. Þeim sendi ég hugheilar samúðarkveðjur.

Blessuð sé minning Hönnu Ingólfsdóttur Johannessen.


mbl.is Útför Hönnu Ingólfsdóttur Johannessen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 391659

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband