Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
Sunnudagur, 26. apríl 2009
Að setja hlutina í samhengi
Samfylkingin er vissulega orðin stærsti stjórnmálaflokkurinn, sem eru tíðindi. En VG eru hinir raunverulegir sigurvegarar þessara kosninga. Það er mikil fylgisaukning þeirra, úr 14,3% árið 2007 í 21.7% nú, sem er hin mikla vinstri sveifla í þessum kosningum. Samfylkingin fær 29,8% atkvæða sem er minna en flokkurinn fékk 2003 (tæplega 31%) og heldur meira en hann fékk 2007, 26,8%. Enda er Samfylkingin ekki að bæta við sig nema tveimur þingmönnum. VG bætir við sig 5 þingmönnum.
Eini stjórnmálaflokkurinn sem hefur stöðugt bætt við sig fylgi síðustu sjö árin er VG sem fékk 8,8% atkvæða í kosningunum 2003, 14,3% í kosningunum 2007 og 21,7% í kosningunum nú. Þá hefur flokkurinn náð því að vera stærsti flokkurinn í kjördæmi formannsins, sem hljóta að vera allnokkur tíðindi.
Sjálfstæðisflokkurinn geldur sögulegt afhroð. Kjósendur hafa ákveðið, með réttu eða röngu, að þeim flokki einum væri um að kenna bankahrunið og það sem yfir okkur hefur gengið. Vissulega ber flokkurinn sína ábyrgð á því en það er ótrúlegt að bæði Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn, sem voru í stjórn með Sjálfstæðisflokknum þau 18 ár sem um ræðir, skuli vera stikkfrí af ábyrgð, í augum kjósenda. Sjálfstæðisflokkurinn fær þó þegar upp er staðið, heldur skárri niðurstöðu en svörtustu spár gerðu ráð fyrir. Ég hygg að flokkurinn sé einnig að gjalda fyrir að læsa sig inni í fáránlegri ákvörðun landsfundar varðandi Evrópumálin. Sjálfstæðisflokkurinn er þó næststærsti flokkurinn. Allar kannanir bentu til að VG næði þeirri stöðu eftir kosningarnar.
Framsókn bætir við sig frá síðustu kosningum, svipuð aukning í prósentum talið og Samfylkingin og bætir við sig tveimur þingmönnum, eins og Samfylkingin. Framsókn er þó talsvert frá þeim styrk sem hann fékk 2003, þegar flokkurinn fékk 17,7%. Borgarahreyfingin leysir Frjálslynda flokkinn af hólmi, nær fjórum þingmönnum, sem er einnig tíðindi.
Nú verður spennandi að sjá hvernig spilast úr þessu. Samfylkingin er með stöðu til að knýja fram Evrópusambandsviðræður strax. Mun VG fallast á það, án þjóðaratkvæðagreiðslu? Eða munu flokkar sem styðja Evrópusambandsviðræður, Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og Borgarahreyfingin, taka höndum saman um að mynda næstu stjórn?
![]() |
27 nýir þingmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 26. apríl 2009
Útstrikanir
Eftir kosningarnar 2007 þegar tveir þingmenn breyttu um sæti vegna útstrikana gerðu kjósendur sér grein fyrir því valdi sem þeir hafa, með útstrikunarleiðinni. Fyrir kosningarnar nú gerðu fjölmiðlar vel grein fyrir því hvernig ætti að strika út eða breyta röð kjósenda, án þess að ógilda atkvæðið.
Allt hefur þetta greinilega leitt til þess að fleiri kjósendur hafa ákveðið að breyta röð frambjóðenda á þeim lista sem þeir kusu. Hvort nægilega margir hafa gert þetta til að breytingar verði á röð frambjóðenda og jafnvel því hverjir komast á Alþingi fæst uppgefið eftir helgi Það verður auðvitað spennandi að sjá.
Miðað við þær upplýsingar sem þó hafa verið gefnar er enginn einn flokkur að fá meiri útstrikanir en annar. Meira að segja frambjóðendur Borgarahreyfingarinnar eru strikaðir út í einhverjum mæli, eftir því sem fram kom í kosningasjónvarpinu í nótt.
Hvort auknar útstrikanir séu vísbending um að tími prófkjara sé liðinn skal ósagt látið. Ljóst hefur verið lengi að prófkjör eru ekki góð leið til að velja frambjóðendur á lista. Skárri leið hefur ekki fundist enn. Því miður. Kannski persónukjör sé það sem koma skal?
![]() |
Tími prófkjara liðinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 26. apríl 2009
Ótrúlega jafnt hjá fjórflokknum í NV

![]() |
Enn vantar tölur úr NA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 25. apríl 2009
Spennandi kosninganótt framundan
Fyrstu tölur sýnast í allmiklu samræmi við síðustu skoðanakannanir. VG virðist þó hafa fatast flugið á lokasprettinum, eins og svo oft áður. Spurning er hvort afdráttarlaus andstaða formanns VG við EB í lokaþættinum í gærkvöldi hafi haft neikvæð áhrif á kjósendur, þegar í kjörklefann var komið.
Það er sérkennilegt að heyra formann Samfylkingarinnar tala um að Sjálfstæðisflokkurinn sé búinn að fá löngu tímabært frí frá stjórnarsetu. Er formaður Samfylkingarinnar búinn að gleyma því að 2007 var það hennar flokkur, Samfylkingin, sem frekar vildi leiða Sjálfstæðisflokkinn til áframhaldandi stjórnarsetu og stjórnarforystu, þrátt fyrir 16 ár í ríkisstjórn, heldur en að fara í stjórnarsamstarf við VG? Þá fannst formanni Samfylkingarinnar ekki ástæða til að gefa Sjálfstæðisflokknum frí.
Svo er það auðvitað umhugsunarefni að Samfylkingin skuli af kjósendum vera talin enga ábyrgð bera á hruninu. Var hún þó í ríkisstjórn og fór með mikilvæg ráðuneyti eins og viðskiptaráðuneytið.
En það er rétt að Sjálfstæðisflokkurinn hefur örugglega gott af því að vera um skeið utan ríkisstjórnar. Það skiptir ekki máli hvað flokkurinn heitir. Enginn stjórnmálaflokkur hefur ekki gott af því að vera of lengi við völd.
![]() |
Fréttaskýring: Stærsta vinstrisveiflan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 24. apríl 2009
Ágætar líkur ...
Formaður VG segist telja að ágætar líkur séu á að VG og S sameinist um afstöðu til EB. En það er himinn og haf á milli þeirra. Það verður fróðlegt að sjá hvort þeirra lúffar. Formaður VG með því að samþykkja að fara í aðildarviðræður án þess að spyrja þjóðina fyrst, eins og yfirlýst stefna VG. Eða formaður S með því að samþykkja þjóðaratkvæði um það hvort ganga eigi til aðildarviðræðna. Báðir formenn hafa sagt svo mikið í þessu máli að lausn þar sem bæði halda haus virðist illfinnanleg.
![]() |
Áherslan á ESB lýsir taugaveiklun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 24. apríl 2009
VG og Samfylkingin
![]() |
Samfylkingin enn stærst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 23. apríl 2009
Styrkir vegna prófkjöra
Mikið er rætt þessa dagana um styrki til einstaklinga vegna prófkjöra. Ég hef tvisvar tekið þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, í október 2006 og í mars 2009. Í fyrra prófkjörinu hlaut ég bærilegan árangur miðað við nýliða, lenti í 11. sæti með bindandi kosningu, sem sé liðlega helming atkvæða. Síðast var árangurinn lakari. Ég lenti í 15. sæti með innan við þriðjung atkvæða.
Hér bloggaði ég um kostnað við þátttöku mína í prófkjörinu 2009. Þar kemur fram að kostnaður minn vegna prófkjörsins var innan við 450 þús. kr. Þann kostnað bar ég ef frá eru taldar liðlega 50 þús. kr. sem stuðningsmaður greiddi.
Ég hef verið að taka saman kostnað vegna prófkjörsins 2006. Fljótt á litið sýnist hann hafa verið 4,5 - 5 m.kr. Var prófkjörsbarátta mín þó látlausari en margra annarra sem voru í prófkjöri á sama tíma. Helstu kostnaðarliðir tengdust rekstri prófkjörsskrifstofu, birtingu auglýsinga í fjölmiðlum, einkum dagblöðum, prentun kynningarefnis og póstsendingu kynningarefnis.
Ég sendi svohljóðandi tölvupóst til kringum 20 fyrirtækja:
Sæl/l [nafn].Eins og þú hefur sjálfsagt orðið var við þá tek ég þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem verður um helgina.Þegar maður stendur í slíku þá þarf að leita til fyrirtækja með ósk um fjárstuðning.Ég óska eftir stuðningi að fjárhæð 100.000 kr. en önnur fjárhæð, hærri eða lægri er vel þegin.Ef svar við erindinu verður jákvætt þá er reikningsnúmer framboðsins xxxx-xx-xxxxxx, kt. 601006-1380.Með kærum kveðjum,Dögg Pálsdóttir.
Fram hefur komið að Baugur styrkti framboð mitt með 200 þús. kr. framlagi. Jafnframt fékk framboð mitt 100 þús. kr. frá Landsbanka Íslands, 50 þús. kr. frá OLÍS og 250.000 kr. frá SPRON og sýnist mér það hafa verið hæsti styrkurinn sem framboð mitt fékk. Einstaklingar styrktu framboð mitt með samtals 100.000 kr.
Þetta eru fjárstyrkirnir sem framboð mitt fékk árið 2006, miðað við þær upplýsingar sem ég hef nú handbærar. Bankareikningur framboðs míns var fluttur úr SPRON í Kaupþing. Sá flutningur virðist hafa breytt aðgangi mínum að heimabankanum vegna reikningsins. Þess vegna get ég ekki, fyrr en á morgun, birt endanlegt yfirlit um fjárstyrki til framboðsins 2006. Handbærar upplýsingar sem ég hef eru svör við tölvupóstum sem ég sendi.
Ég styð kröfuna um gegnsæi í fjármálum stjórnmálaflokka og frambjóðenda í prófkjörum. Ég tel sjálfsagt að allir frambjóðendur í prófkjörum birti yfirlit um styrki og fjárframlög til framboða þeirra, fyrir kosningarnar á laugardag.
![]() |
Segir 40 aðila hafa styrkt sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 23. apríl 2009
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn
Það er gaman að svona þjóðtrú. Skyldi einhver fræðingurinn ekki hafa gert rannsókn á því hvort hún standist þessi með að sumarið hafi verið gott af því að vetur og sumar frusu saman? Það hefur margt vitlausara verið rannsakað.
Ég sé að snjóað hefur í Esjuna í nótt - og veðrið úti er fallegt. Ég á eftir að komast að því hvort það er gluggaveður.
Ég óska öllum gleðilegs og gæfuríks sumar.
![]() |
Sumar og vetur frusu saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 22. apríl 2009
Spennandi
![]() |
Trúi ekki að Samfylkingin láti stranda á ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Þriðjudagur, 21. apríl 2009
Kom að því ...
![]() |
Konum fjölgar í stjórnum lífeyrissjóða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
-
addabogga
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
andriheidar
-
gumson
-
audbergur
-
abg
-
axelaxelsson
-
armannkr
-
arniarna
-
asabjorg
-
arh
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
astar
-
kaffi
-
birgir
-
launafolk
-
bjarnimax
-
borgar
-
braskarinn
-
gattin
-
bryndisharalds
-
brandarar
-
carlgranz
-
rustikus
-
deiglan
-
draumur
-
einarbb
-
ekg
-
jaxlinn
-
elinora
-
ellasprella
-
ellyarmanns
-
erla
-
erlaosk
-
erna-h
-
fsfi
-
fhg
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisligislason
-
neytendatalsmadur
-
grazyna
-
gudni-is
-
gelin
-
gudbjorng
-
fasteignir
-
gudfinna
-
lucas
-
gudmundurmagnusson
-
gudrunshil
-
gudruntora
-
gunnaraxel
-
gunnargunn
-
laugardalur
-
gylfithor
-
hallarut
-
heidistrand
-
heidathord
-
jarnskvisan
-
heimirhilmars
-
hehau
-
helgi-sigmunds
-
herdis
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
disdis
-
holmfridurge
-
tulinius
-
idno
-
ingabesta
-
ingisund
-
golli
-
ibb
-
astromix
-
johannalfred
-
stjornun
-
jonmagnusson
-
jonsnae
-
juliusvalsson
-
kolbrunb
-
kristinhrefna
-
lara
-
lotta
-
nytjagardar
-
altice
-
matarbitinn
-
maggaelin
-
martagudjonsdottir
-
mal214
-
morgunbladid
-
olavia
-
olinathorv
-
olofnordal
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
otti
-
publicservant
-
iceland
-
pjeturstefans
-
ragnar73
-
ragnheidurrikhardsdottir
-
ragnhildur
-
rannveigmst
-
runirokk
-
rynir
-
trumal
-
salvor
-
sirrycoach
-
sigurbjorns
-
sv11
-
sighauk
-
sij
-
sigurdurir
-
ohyes
-
sigurdurkari
-
siggisig
-
siggith
-
sigurjonsigurdsson
-
zunzilla
-
sms
-
1301493169
-
stefaniasig
-
stebbifr
-
brv
-
sveinni
-
saethorhelgi
-
thelmaasdisar
-
grasteinn
-
ubk
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
va
-
villidenni
-
thorbjorghelga
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
thoragud
-
thorasig
-
tbs
-
thorhallurheimisson
-
iceberg
-
toddi