Leita í fréttum mbl.is

Útstrikanir

Eftir kosningarnar 2007 þegar tveir þingmenn breyttu um sæti vegna útstrikana gerðu kjósendur sér grein fyrir því valdi sem þeir hafa, með útstrikunarleiðinni. Fyrir kosningarnar nú gerðu fjölmiðlar vel grein fyrir því hvernig ætti að strika út eða breyta röð kjósenda, án þess að ógilda atkvæðið. 

Allt hefur þetta greinilega leitt til þess að fleiri kjósendur hafa ákveðið að breyta röð frambjóðenda á þeim lista sem þeir kusu. Hvort nægilega margir hafa gert þetta til að breytingar verði á röð frambjóðenda og jafnvel því hverjir komast á Alþingi fæst uppgefið eftir helgi Það verður auðvitað spennandi að sjá.

Miðað við þær upplýsingar sem þó hafa verið gefnar er enginn einn flokkur að fá meiri útstrikanir en annar. Meira að segja frambjóðendur Borgarahreyfingarinnar eru strikaðir út í einhverjum mæli, eftir því sem fram kom í kosningasjónvarpinu í nótt.

Hvort auknar útstrikanir séu vísbending um að tími prófkjara sé liðinn skal ósagt látið. Ljóst hefur verið lengi að prófkjör eru ekki góð leið til að velja frambjóðendur á lista. Skárri leið hefur ekki fundist enn. Því miður. Kannski persónukjör sé það sem koma skal?


mbl.is Tími prófkjara liðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 391618

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband