Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Orðlaus

Mér er spurn: Erum við, fólk og fyrirtæki í landinu, ekki jafn illa sett með 18% stýrivexti og 17%? Mér finnst það nánast engu muna. Hvað skyldi peningastefnunefndin hafa þurft að funda lengi til að taka þessa stefnumótandi ákvörðun? Maður verður ekki oft orðlaus, en núna er maður það algerlega. ,,Fjallið tók joðsótt og það fæddist mús."
mbl.is Stýrivextir lækkaðir í 17%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju?

Fróðlegt væri að fá að vita af hverju þingmenn mættu ekki til boðaðs þingfundar þannig að atkvæðagreiðslu þurfti að fresta. Eru þeir ekki að fylgjast með hvenær boðað er til þingfunda eða voru þeir að sinna mikilvægari verkefnum?
mbl.is Þingmenn mæta illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útfærsluatriði?

Mér finnst það miklu meira en útfærsluatriði hvort stýrivaxtalækkunin er gerð í færri eða fleiri stökkum. Því stærri skref sem tekin eru í hverri vaxtalækkun þeim mun hraðar lækka vextirnir. Og stýrivaxtalækkun, sem hröðust, er mikilvæg og raunar lífsnauðsynleg atvinnulífinu og fjölskyldunum í landinu.
mbl.is Vildu lækka vexti en fengu ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er FME

að vakna af þyrnirósarsvefninum? Þessi frétt er ánægjuleg vísbending um það. Batnandi stofnunum er best að lifa.

Kannski einhver skriður fari nú að komast í öll þau mál sem klárt þarf að rannsaka í tengslum við hrunið.


mbl.is Fimm lífeyrissjóðir í rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynjuð hagstjórn

Hljómar bæði spennandi og áhugavert. Gagnlegt hefði nú verið fyrir okkur lesendur sem ekkert um þetta vitum (vona að ég sé ekki ein í þeirri fáfræði) að fá nánari skilgreiningu og útlistun á því hvað þetta er.Wink


mbl.is Boðar kynjaða hagstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Firring

Reiði Obama er skiljanleg og eðlileg. Stjórnendur AIG virðast veruleikafirrtir og ákvörðun þeirra um að efna bónusgreiðslur ekkert annað en hneyksli. En erum við ekki að sjá svipaða firringu hér með tillögu sem liggur fyrir stjórn HB Granda? Á sama tíma og frestað er að standa við gerða samninga um launahækkun ætla eigendur að greiða sér feitan arð?
mbl.is Obama reiður yfir AIG hneyksli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tók langan tíma

Maður er eiginlega mest hissa á því að þetta skyldi taka þennan tíma og þessa fjölmiðlaumfjöllun. Hefði ekki átt að gera þetta strax og fyrir lá að starfsmaðurinn hafði löðrungað barnið?
mbl.is Hefur verið sagt upp störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engar upplýsingar enn

Nú er liðinn sólarhringur frá því að prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík lauk. Enn hafa ekki verið birtar heildarniðurstöður úr þessu prófkjöri. Hvað veldur þessu pukri? Eiga frambjóðendur ekki rétt á að vita niðurstöðuna í prófkjörinu? Eiga kjósendur ekki rétt á að vita niðurstöðuna í prófkjörinu? Eiga kjósendur í landinu ekki rétt á að vita niðurstöðuna?

Sjálf sendi ég í gærkvöldi tölvupóst til formanns yfirkjörstjórnar og óskaði eftir þessum upplýsingum. Í morgun sendi ég sömu beiðni til formanns fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hvorugur þessara aðila hefur svarað ennþá.

Viðbót sunnudagskvöld 15. mars.

Ég hef nú fengið að vita að ég lenti í 15. sæti með u.þ.b. 2500 atkvæði. Líkt og síðast er ég í miðjum hópnum en atkvæðamagnið er verulega minna.

Við frambjóðendur sem lentum í 17 neðstu sætunum erum hins vegar búin að taka okkur saman um að biðja um heildarupplýsingar þannig að við getum borið okkur líka saman við hina, líkt og þeir sem lentu í 12 efstu geta. Ég vænti þess að fá þær upplýsingar á morgun og mun þá upplýsa nánar um hvernig atkvæðin skiptust á sætin 10 hjá mér.

Þessi samskipti við okkur frambjóðendur virðast algjört hugsunarleysi og ég treysti því að þau endurtaki sig ekki nú þegar búið er að benda á að þau eru ekki boðleg.


mbl.is Kristján leiðir í NA-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðgangur að fjölmiðlum: ókeypis og aðkeyptur

Upplýsingar um að ég hafi þegið boð INN sjónvarpsstöðvarinnar og Útvarps Sögu um viðtöl á þessum stöðvum, gegn greiðslu, sýnast hafa leitt af sér fréttafærslur á netinu. Báðar stöðvarnar hafa auglýst opinberlega að hægt væri að kaupa sér viðtalstíma með þessum hætti. Ég og fleiri frambjóðendur þáðum það boð og vegna reglna um upplýsingar um kostnað við prófkjörber okkur að gefa þann kostnað upp, eins og ég hef nú gert.

Hvað annað eigum við, sem ekki erum í ókeypis áskrift að reglulegum viðtölum t.d. í Silfri Egils og jafnvel í Kastljósinu að gera í prófkjörsslag? Það er þakkarvert að þessir ágætu fjölmiðlar skuli hafa gefið prófkjörsframbjóðendum kost á kynningu með þessum hætti. Sjálfsagt er að fram komi hverju sinni hverjir standa straum að slíkri kynningu.

Útaf þessari umræðu þá skora ég á RÚV að upplýsa hvaða alþingismenn hafa verið viðmælendur í Silfri Egils frá því að þátturinn fluttist yfir á RÚV og er þar með kostaður af skattgreiðendum. Í leiðinni mætti birta hvaða þingmenn hafa komið fram í Kastljósinu t.d. síðustu 12 eða 18 mánuði. Nauðsynlegt er að fá þessar upplýsingar sundurliðaðar eftir mánuðum svo sjá megi hversu reglulega einstakir alþingismenn hafa komið fram í þessum viðtalsþáttum.

Ekki kæmi á óvart ef þessar upplýsingar sýndu að allmargir af þeim sem árangri náðu  í prófkjörunum núna hafa komið oftar fram í þessum þáttum en ýmsir aðrir.  

Nú eru tímar gagnsæis. Upplýsingarnar upp á borðið.


mbl.is ÍNN selur útsendingartíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varnarsigur hjá Þorgerði Katrínu og glæsilegur árangur hjá Ragnheiði

Mér sýnist Þorgerður Katrín hafa náð góðum varnarsigri í Kraganum. Hún nær 2. sæti með öruggum yfirburðum. Þá er Ragnheiður Ríkharðsdóttir að ná flottum árangri. Hún og Þorgerður Katrín hafa báðar þorað að tala hreinskilnislega um ýmislegt sem aflaga hefur farið í Sjálfstæðisflokknum. Áhyggjur voru uppi um að þeim yrði "refsað" fyrir það. Það hefur greinilega ekki tekist.

Bjarni Benediktsson virðist öruggur með að sigla átakalaust í formannssætið hjá Sjálfstæðisflokknum og greinilegt að kjósendur í Kraganum hafa talið að hann yrði að skipa þar fyrsta sætið miðað við þá stöðu mála.

Líkt og á Suðurlandi vilja kjósendur í prófkjörinu einhverjar breytingar þannig að einn sitjandi þingmaður dettur niður. Kjósendur í Kraganum sýna mikla víðsýni því í efstu fjórum sætunum eru kynjahlutföllin jöfn.  Skemmtileg tilbreyting hjá Sjálfstæðisflokknum.


mbl.is Bjarni sigraði í Suðvesturkjördæmi - Rósa náði 6. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 391723

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband