Leita í fréttum mbl.is

Engar upplýsingar enn

Nú er liðinn sólarhringur frá því að prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík lauk. Enn hafa ekki verið birtar heildarniðurstöður úr þessu prófkjöri. Hvað veldur þessu pukri? Eiga frambjóðendur ekki rétt á að vita niðurstöðuna í prófkjörinu? Eiga kjósendur ekki rétt á að vita niðurstöðuna í prófkjörinu? Eiga kjósendur í landinu ekki rétt á að vita niðurstöðuna?

Sjálf sendi ég í gærkvöldi tölvupóst til formanns yfirkjörstjórnar og óskaði eftir þessum upplýsingum. Í morgun sendi ég sömu beiðni til formanns fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hvorugur þessara aðila hefur svarað ennþá.

Viðbót sunnudagskvöld 15. mars.

Ég hef nú fengið að vita að ég lenti í 15. sæti með u.þ.b. 2500 atkvæði. Líkt og síðast er ég í miðjum hópnum en atkvæðamagnið er verulega minna.

Við frambjóðendur sem lentum í 17 neðstu sætunum erum hins vegar búin að taka okkur saman um að biðja um heildarupplýsingar þannig að við getum borið okkur líka saman við hina, líkt og þeir sem lentu í 12 efstu geta. Ég vænti þess að fá þær upplýsingar á morgun og mun þá upplýsa nánar um hvernig atkvæðin skiptust á sætin 10 hjá mér.

Þessi samskipti við okkur frambjóðendur virðast algjört hugsunarleysi og ég treysti því að þau endurtaki sig ekki nú þegar búið er að benda á að þau eru ekki boðleg.


mbl.is Kristján leiðir í NA-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Kæra Dögg. Þú átt miklu frekar heima í einhverjum öðrum flokki en Sjálfstæðisflokknum. Eins og úrslitin benda til þá er Sj.fl.sannkallað íhald. Bestu kveðjur.

Þráinn Jökull Elísson, 15.3.2009 kl. 18:39

2 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Konurnar í Reykjavík hafa ekki hlýtt kalli Drífu líkt og í Suðurkjördæmi. Hér stóðu konur saman og komu konum í 4 af 6 af sex efstu sætunum. Þetta var skipulagt fyrir opnum tjöldum, því Drífa hélt hér stóran fund með konum í kjördæminu, þar sem karlframbjóðendur voru viðstaddir. Þar töluðu konur fjálglega um að þær myndu ekki setja einn einasta karlmann á blað. Kannski erum við að horfa meira á vinnubrögð lík þessu í framtíðinni, sem eru meira í ætt við vinnubrögð innan VG/Kvennaframboðs en hefðbundins hugsunarháttar innan Sjálfstæðisflokksins. Kannski er þetta enn ein breytingin á flokknum mínum, sem mér hugnast ekki vel.

Ég aðhyllist ekki slík vinnubrögð og finnst að kjósa eigi frambjóðendur - karla og konur - eftir verðleikum þeirra en ekki kyni. Ég á þrjár dætur og engan son og hef alið þær þannig upp, að þær eigi að standa fastar á sínu gagnvart strákum og það gera þær líka. Ég hef hins vegar ekki alið þær upp í því að ganga á hlut karla, beita þó órétti eða í andúð á körlum. Konur og karlar eiga að mínu mati að sýna jafnt réttsýni og sanngirni.

Mér finnst undarlegt ef framtíðin í flokknum á að ganga út á að karlar kjósi karla og konur kjósi konur. Ég veit ekki hverjir færu vel út úr því, þegar 60% kjósenda Sjálfstæðisflokksins eru karlar og sennilega að auki hvítir miðaldra karlar? Eiga þá hvítir miðaldra karlar að raða hvítum miðaldra körlum í öll sæti í næstu kosningum líkt og var fyrir 20-30 árum síðan? Er jafnréttið ekki komið aðeins lengra en þetta? Kannski ekki þegar horft er til listans í Reykjavík og fyrir norðan, kannski er þetta eina leið kvenna til að láta til sín taka, en það væri að mínu mati sorgleg niðurstaða: strákar á móti stelpum og umræðan færð niður á grunnskólastig.

Guðbjörn Guðbjörnsson, 16.3.2009 kl. 07:06

3 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Sorglega KLAUFALEGT að þessar upplýsingar séu ekki strax gefnar upp.  Í raun mikil sorgarsaga að kjósendur Sjálfstæðisflokksins skuli hafna, þér og fjölda annara af hæfu kvennfólki sem bauð sig fram! Ég kaus þig og SEX aðrar konur, enda er ég mikil aðdáandi t.d. Sigríðar Andersen, Jórunn Frímann o.s.frv.  En því miður þá vildu þeir sem kusu ekki neina endurnýjun, ótrúlegt en satt - sorglegt í alla staði.....! 

Jakob Þór Haraldsson, 16.3.2009 kl. 09:39

4 Smámynd: Hlédís

Kæra Dögg1 Ég er sammála fyrsta kommenti og hef sterklega á tilfinningunni að þú hafir of mikla réttlætiskennd til að passa þarna. Ætla ekki að stinga að þér öðrum núverandi flokki - en veit að þú verður góður þingmaður þegar þar að kemur! 

Hlédís, 17.3.2009 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband