Leita í fréttum mbl.is

Varnarsigur hjá Þorgerði Katrínu og glæsilegur árangur hjá Ragnheiði

Mér sýnist Þorgerður Katrín hafa náð góðum varnarsigri í Kraganum. Hún nær 2. sæti með öruggum yfirburðum. Þá er Ragnheiður Ríkharðsdóttir að ná flottum árangri. Hún og Þorgerður Katrín hafa báðar þorað að tala hreinskilnislega um ýmislegt sem aflaga hefur farið í Sjálfstæðisflokknum. Áhyggjur voru uppi um að þeim yrði "refsað" fyrir það. Það hefur greinilega ekki tekist.

Bjarni Benediktsson virðist öruggur með að sigla átakalaust í formannssætið hjá Sjálfstæðisflokknum og greinilegt að kjósendur í Kraganum hafa talið að hann yrði að skipa þar fyrsta sætið miðað við þá stöðu mála.

Líkt og á Suðurlandi vilja kjósendur í prófkjörinu einhverjar breytingar þannig að einn sitjandi þingmaður dettur niður. Kjósendur í Kraganum sýna mikla víðsýni því í efstu fjórum sætunum eru kynjahlutföllin jöfn.  Skemmtileg tilbreyting hjá Sjálfstæðisflokknum.


mbl.is Bjarni sigraði í Suðvesturkjördæmi - Rósa náði 6. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heidi Strand

Ég var viss um að þú mundir ná þínu markmiði .

Fólk vill greinilega láta sama hundinn bita sig tvisvar!

Fyrir sama verð og prófkjöri, var hægt að fara í 12 daga siglinu fyrir tvo í Karíbahafinu.

Heidi Strand, 15.3.2009 kl. 09:55

2 identicon

Algjörlega sammála þér, Þorgerður Katrín & Ragnheiður yfirburðar stjórnmálamenn og flottir frambjóðendur fyrir Sjálfstæðisflokkinn.  Mér fannst MJÖG sorglegt að þeir sem kusu hér í Reykjavík skyldu hafna "þér & öðrum flottum kvennframbjóðendum", í raun ótrúlega sorglegt að kjósendur X-D vilji ekki sjá endurnýjun og veita konum brautargengi!  Strákarnir (Pétur Blöndal, Birgir Ármansson & Sigurður Kári) hafa sýnt að þeir "brugðust gróflega" en á einhvern óskiljanlegan hátt á að bjóða "aftur upp á skemmda vöru", þetta finnst mér aumt.  Þú, Sigríður S. Andersen, Jórunn Frímanns og fleiri flottar konur, ykkur er hafnað og finnst mér það miður fyrir "þjóð & flokkinn".  Ég á ekki samleið með X-D, og hef ekki átt það í ca. 18 ár, finnst flokkurinn hafa "fjarlægst þau stefnumál & gildi sem hann var stofnaður í kringum".  Óska þér og öðrum konum innan X-D velfernaðar, en maður er ennþá í smá sjokki..!

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 10:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband