Leita í fréttum mbl.is

Firring

Reiði Obama er skiljanleg og eðlileg. Stjórnendur AIG virðast veruleikafirrtir og ákvörðun þeirra um að efna bónusgreiðslur ekkert annað en hneyksli. En erum við ekki að sjá svipaða firringu hér með tillögu sem liggur fyrir stjórn HB Granda? Á sama tíma og frestað er að standa við gerða samninga um launahækkun ætla eigendur að greiða sér feitan arð?
mbl.is Obama reiður yfir AIG hneyksli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála  þér Dögg  sjálfum finnst mér trúin á almenna réttsýni hafa förlast  töluvert hjá mörgum hér á landi.

hordur halld. (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 08:11

2 Smámynd: Jón Sævar Jónsson

Mætti orða þetta svona:

Reiði almennings er skiljanleg og eðlileg. Stjórnendur BYR sparisjóðs virðast veruleikafirrtir og ákvörðun þeirra um að óska eftir 11 milljarða framlagi úr ríkissjóð ekkert annað en hneyksli.

Hreynt óskiljanlegt. Þeir geta bara skilað þessum 13,5 milljörðum og eru þá meira að segja 2,5 milljörðum í plús! 

Jón Sævar Jónsson, 17.3.2009 kl. 10:07

3 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Sem betur fer eiga bandaríkjamenn LOKSINS forseta sem stígur í vitið..!  ÉG vona innilega að aðrar þjóðir beri GÆFA til að taka heilshugar undir málflutning Obama, og auðvitað er sorglegt að núverandi "stjórnvöld hérlendis & verkalýðshreyfingin" hafi ekki einnig stígið fram og talað yfir hausamótunum á stjórn & eigendum HB Granda.  Svona siðblindir gjörningar, blind græðgisvæðing, þetta SIÐROF fára veruleikafirrtra einstaklinga er bara ekki að gera sig..!  Gott hjá þér að standa vaktina, með okkur hinum.... Við viljum nefnilega "betra & réttlátara samfélag hérlendis fyrir okkur öll", ekki bara fáar útvaldar fjölskyldur. 

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson, 17.3.2009 kl. 13:40

4 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Það eru þá fleiri sjálfstæðimenn með svipaðar skoðanir og ég!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 17.3.2009 kl. 16:48

5 Smámynd: Dögg Pálsdóttir

Guðbjörn. Sem betur fer er fullt af sjálfstæðismönnum með svipaðar skoðanir og við. Þeir eru bara margir hverjir svo reiðir út í flokkinn að þeir halda sig til hlés. Þeir eru bara margir hverjir svo óánægðir með flokkinn að þeir sleppa því að fara og kjósa í prófkjöri, enda ætla þeir ekki að kjósa flokkinn í vor. Þessum stóra hóp sjálfstæðismanna er þess vegna nokk sama hverjir eru á listum flokksins. Því miður er staðan þessi. Því fór sem fór um helgina.

Dögg Pálsdóttir, 17.3.2009 kl. 16:56

6 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

algjört hneyksli

Jón Snæbjörnsson, 17.3.2009 kl. 17:02

7 Smámynd: Hlédís

Þið þrú eruð nokkuð sjaldgæfar sjálfstæðisperlur

Hlédís, 17.3.2009 kl. 18:21

8 Smámynd: Hlédís

Fyrirgefið! Gleymdi að nefna perlurnar: Dögg, Guðbjörn og Jón!

Hlédís, 17.3.2009 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 391648

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband