Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Er ekki hægt ...

að ráða þessa ágætu blaðamenn sem skrifa af þessari skynsemi sem almannatengla fyrir Ísland? Allt sem þeir segja í þessum greinum er hárrétt. Og þetta er málflutningurinn sem ríkisstjórnin hefði átt að hamra á svo mánuðum skiptir. Nær væri að taka undir sjónarmið af þessu tagi fremur en að lemja á blessuðum forsetanum sem gerði ekki annað en það sem hann varð að gera í ljósi forsögunnar.

Synjun forseta Íslands hefur sem aldrei fyrr varpað kastljósi alheimsins á Ísland og okkar ömurlegu stöðu vegna Icesave málsins. Stöðu sem við erum kúguð til að undirgangast af gömlum þrælaþjóðum eins og Bretum og Hollendingum með dyggum stuðningi landa eins og Norðurlandanna, sem við hingað til höfum talið til okkar vinaþjóða. Viðbrögð alheimsins síðustu daga hafa sett fram fjölmörg sjónarmið sem eru Íslendingum mjög hagstæð, sjónarmið sem við sjálf hefðum átt að halda á lofti en höfum ekki borið gæfu til að gera.

Væri nú ekki ráð að ríkisstjórnin færi að safna saman og beita í okkar þágu þeim fjölmörgu, prýðilegu rökum sem talsverður fjöldi útlendinga hefur sett fram máli okkar til stuðnings í staðinn fyrir að viðhalda þjónkuninni við Breta og Hollendinga?

Þegar allt kemur til alls er hugsanlegt að synjun forseta Íslands hafi verið það besta sem fyrir okkur gat komið - en ríkisstjórnin verður að kunna að beita því tækifæri, í þágu Íslands. 

 


mbl.is Ekki setja Ísland í skuldafangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar og Hollendingar eiga leik

Ef eitthvað vit væri í Bretum og Hollendingum þá myndu þeir tilkynna að þeir séu tilbúnir til að samþykkja fyrirvarana sem gerðir voru með Icesave-lögunum í ágúst 2009. Um þá fyrirvara var ágæt samstaða á Alþingi, þverpólitísk. En nei, þeir vildu meira. Þeir vildu láta kné fylgja kviði, kreista blóð úr steini og neituðu að sætta sig við fyrirvarana. Jafnvel þó fyrir liggi að þeir eru ekki alveg ábyrgðarlausir af því hvernig fór, þó meginábyrgðin sé auðvitað eigenda Landsbankans. Hollendingar og Bretar hafa komið illa fram við okkur, beitt AGS fyrir sig og meira að segja Norðurlöndin kusu að standa með ofurkröfum Breta og Hollendinga. Liggur þó fyrir að lagaleg óvissa er um það hvort regluverk EB varðandi innistæðutryggingar eigi í raun við þegar um kerfishrun er að ræða.

Þjóðinni ofbauð þegar í ljós kom undir hvaða pressu ríkisstjórnin var og hvernig þjóðir sem við höfum hingað til skilgreint sem vinaþjóðir, leyfðu sér að kúga okkur til hlýðni við það sem þeim þóknaðist, þrátt fyrir alla lagalega óvissu. Sjálfsagt átti ríkisstjórnin ekki annarra kosta völ en að gera allt sem hún gat til að koma nýju Icesave frumvarpi í gegn. Augljóst var að það gerði ríkisstjórnin ekki með glöðu geði, en gerði samt. Þessi þvermóðska Breta og Hollendinga og harða afstaða gegn okkur hefur í raun knúið fram þá stöðu sem nú er upp komin. Staða mála og forsagan gerði forseta Íslands ómögulegt annað en að synja lögunum staðfestingar. 

Í þessari nýju stöðu eiga Bretar og Hollendingar augljóslega möguleika á því að endurskoða afstöðu sína til fyrirvarana sem Alþingi kom sér saman um í ágúst 2009. Þeir sýnast því eiga næsta leik.


mbl.is Ráðherra getur ekki undirritað ríkisábyrgðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómaklegar alhæfingar

Ekki er það með öllu rétt hjá forseta Íslands að ekkert hæfnismat fari fram á umsækjendum um dómaraembætti. Þeir sem sækja um embætti héraðsdómara eru metnir af sérstakri nefnd. Þeir sem sækja um embætti hæstaréttardómara eru metnir af Hæstarétti. Það má vissulega ræða það hvort þetta hæfnismat eigi að vera með öðrum hætti en um hæfnismat er að ræða engu að síður.

Sjálfsagt hefur það komið fyrir hjá ráðherrum í öllum flokkum að skipa í embætti, hvort sem það eru dómaraembætti eða há embætti í stjórnsýslunni, einstaklinga með "rétt" flokksskírteini. Það er hins vegar fráleitt að halda því fram að í því felist sjálfkrafa að sá hinn sami sé jafnframt vanhæfur. 

Sú umræða sem forseti Íslands bryddar hér upp á er nauðsynleg. En umræða af þessu tagi verður að vera yfirveguð, án upphrópana og án ómaklegra alhæfinga.


mbl.is Ólafur Ragnar: Flokksskírteinið oft mikilvægara en hæfni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað boðar nýárs blessuð sól?

Er hægt að skilja orð forseta Íslands í nýársávarpi hans til þjóðarinnar með öðrum hætti en þeim að vilji þjóðarinnar skuli ráða í Icesave málinu? Þjóðin fær ekki að ráða í því máli nema forseti Íslands synji Icesave frumvarpinu um staðfestingu. Í orðum forseta Íslands hljóta því að felast fyrirheit um það að hann muni beita 26. gr. stjórnarskrárinnar gagnvart frumvarpinu.

 


mbl.is Vilji þjóðarinnar hornsteinninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áramótakveðja

Ég sendi öllum, nær og fjær, mínar bestu áramótakveðjur. Megi árið 2010 verða okkur öllum gleðilegt, gjöfult og gæfuríkt.

Biðleikur forsetans

Forsetinn hefur leikið biðleik í Icesave málinu. Forsetinn segist þurfa að skoða málið áður en hann taki ákvörðun um hvort hann staðfesti lögin eður ei. Forsetinn segist þurfa að horfa til áskorana tugþúsunda Íslendinga og ummæla einstakra þingmanna við atkvæðagreiðsluna í gærkvöldi. Þá segist forsetinn hafa lofað talsmönnum Indefense að ræða við þá áður en hann taki ákvörðun. Fundur forsetans með þeim mun hafa verið ákveðinn 2. janúar nk. Mál munu því ekki skýrast fyrr en fyrstu daga nýs árs.

Það var hinn 2. júní 2004 sem forseti Íslands tilkynnti að hann myndi ekki staðfesta fjölmiðlafrumvarpið svokallaða. Frétt mbl.is um málið er hér. Í yfirlýsingu sem forsetinn birti að þessu tilefni segir m.a.:

8. Að undanförnu hafa verið harðar deilur um þann lagagrundvöll fjölmiðlanna sem mótaður er í frumvarpi sem Alþingi hefur nú afgreitt. Þá hefur og ítrekað verið fullyrt að þetta lagafrumvarp muni hvorki standast stjórnarskrá né alþjóðlega samninga. Réttmæti þeirra fullyrðinga munu dómstólar meta. Mikilvægt er hinsvegar að lagasetning um fjölmiðla styðjist við víðtæka umræðu í samfélaginu og almenn sátt sé um vinnubrögð og niðurstöðu.

9. Því miður hefur skort samhljóminn sem þarf að vera milli þings og þjóðar í svo mikilvægu máli. Fjölmiðlarnir eru sá hornsteinn í lýðræðisskipan og menningu okkar Íslendinga að ekki er farsælt að varanlega verði djúp gjá milli þingvilja og þjóðarvilja. Slíka gjá þarf að brúa.

10. Það verður best gert með því að þjóðin fái í hendur þann rétt sem henni er veittur í stjórnarskrá lýðveldisins og meti lagafrumvarpið í þjóðaratkvæðagreiðslu.

11. Ég hef því ákveðið í samræmi við 26. grein stjórnarskrárinnar að staðfesta ekki lagafrumvarp um breytingu á útvarpslögum og samkeppnislögum og vísa því á þann hátt í dóm þjóðarinnar. Samkvæmt stjórnarskránni skal sú þjóðaratkvæðagreiðsla fara fram „svo fljótt sem kostur er."

12. Í ákvörðun minni felst hvorki gagnrýni á Alþingi né á ríkisstjórn og ekki heldur efnisleg afstaða til laganna sjálfra. Eingöngu sú niðurstaða að farsælast sé fyrir okkur Íslendinga að þjóðin fái tækifæri til að kveða upp sinn dóm. Við búum að stjórnskipan, þar sem forseti Íslands og aðrir kjörnir fulltrúar sækja vald sitt og umboð til hennar. Þjóðin hefur samkvæmt stjórnarskránni síðasta orðið.

Að breyttu breytanda eiga öll þessi atriði jafnt við um Icesave-frumvarpið og fjölmiðlafrumvarpið. Ef forseti Íslands ætlar að vera sjálfum sér samkvæmur og því fordæmis sem hann skapaði 2004 á hann einvörðungu einn leik í stöðunni. Sá er að beita synjunarvaldi sínu skv. 26. gr. stjórnarskrárinnar.

 


mbl.is Forseti tekur sér frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti Íslands á næsta leik

Ríkisstjórnin fullyrti að ef lausn fengist ekki í í Icesave málinu yrðum við einangruð í samfélagi þjóðanna. Margt bendir til að lausn Icesave málsins hafi verið það verð sem við urðum að borga til að mál okkar fengju framgang hjá AGS. Meira að segja Norðurlandaþjóðirnar virðast hafa gert lausn málsins að skilyrði fyrir þeim lánveitingum sem þeir höfðu heitið okkur. Ýmislegt bendir því til að  pólitískt séð hafi engin önnur leið verið fær en að semja um lausn málsins. 

Það var gert. Margir telja að í þeim samningum hafi ekki tekist að lenda hagstæðustu niðurstöðunni fyrir Ísland. Það er óþægileg staða í málinu, sem þjóðin situr uppi með. Meirihluti Alþingis hefur samþykkt frumvarp sem byggir á þessari samningsniðurstöðu. Með því hefur ríkisstjórnin staðið við þær kröfur sem hún segir að hið alþjóðlega samfélag hafi gert.

Er málinu þar með lokið? Nei. Því fer fjarri. Forseti Íslands á næsta leik. Hlýtur sá leikur ekki að verða sá að neita að staðfesta frumvarpið með vísan til 26. gr. stjórnarskrárinnar? Það gerði hann 2004 í fjölmiðlamálinu. Höfðu þá færri Íslendingar en nú skorað á hann að beita synjunarvaldinu.

Það liggur fyrir að nú, líkt og 2004, er almenningur í landinu mjög ósáttur við frumvarp sem Alþingi hefur samþykkt. Ætli forseti Íslands að vera sjálfum sér samkvæmur hlýtur hann að beita 26. gr. stjórnarskrárinnar gagnvart Icesave frumvarpinu. Með því tryggir hann að þjóðin hefur síðasta orðið um afdrif Icesave málsins í núverandi búningi. 


mbl.is Alþingi samþykkti Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig má það vera?

Hvernig má það vera að enn sé haldið leyndum gögnum sem tengjast Icesave-málinu? Hvernig má það vera að ríkisstjórn, sem hélt af stað í sinn leiðangur með opna stjórnsýslu og gegnsæi að leiðarljósi, skuli bjóða okkur upp á að leynd sé viðhaldið? Hverra hagsmuna er verið að gæta með því að viðhalda þessari leynd? Leyndin virðist ekki mikilvægari en svo að breska lögmannsstofan, sem verið hefur ráðgjafi stjórnvalda um margra mánaða skeið, segist hafa hvatt stjórnvöld til að aflétta leyndinni, en við því hafi ekki orðið.

Þessar upplýsingar kalla á sérstakar skýringar af hálfu stjórnvalda. Það er ólíðandi að enn skuli eitthvað falið sem tengist Icesave-málum. Allt stefnir í að íslenskur almenningur sitji uppi með skuldabagga áratugi fram í tímann vegna Icesave. Er ekki lágmark að íslenskur almenningur fái söguna alla í þessu máli?


mbl.is De Reya svarar Steingrími
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg jól

JólamyndSendi öllum, nær og fjær, hugheilar óskir um gleðilega jólahátíð.

Loksins

Fjöldi ósjúkratryggðra hefur verið alvarlegt vandamál í Bandaríkjunum. Allar umbætur í þá átt að fækka í þeim hópi eru mikilvægar. Margir forsetar hafa einsett sér að gera breytingu á þessu ástandi, en ekki haft árangur sem erfiði. Clinton ætlaði sér m.a. stóra hluti í þessu sambandi. Það er því mikivægur pólitískur sigur fyrir Obama að hafa náð þessu máli í gegn.
mbl.is Heilbrigðisfrumvarp Obama samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband