Leita í fréttum mbl.is

Ískalt hagsmunamat

Eins og ég hef áður minnt á segir í stjórnmálaályktun síðasta landsfundar:

Ísland er Evrópuríki og saga þjóðarinnar og menning er evrópsk. Í því ljósi og vegna hinna miklu viðskiptahagsmuna er nauðsynlegt að sífellt sé í skoðun hvernig hagsmunum Íslands verði best borgið í samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir.

Margt hefur gerst frá því að síðasti landsfundur var haldinn. Í ljósi þess og stöðu mála nú er það algerlega eðlilegt og raunar löngu tímabært að Sjálfstæðisflokkurinn taki Evrópumálin og afstöðu til aðildar að EB á dagskrá. Landsfundarfulltrúar munu þurfa að taka afstöðu til aðildar að EB og aðild að EB hlýtur að verða mál málanna á landsfundinum sem nú er búið að ákveða að halda 29. janúar til 2. febrúar 2009. Aðstæður hreinlega kalla á það. Og þó ég telji að kosningar í vor væru glapræði þá er örugglega skynsamlegt að hafa landsfund á þessum tíma, fari svo að kosningar í vori verði taldar það eina mögulega í stöðunni.


mbl.is Skipuð verði Evrópunefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obama

hlýtur a.m.k. að bjóða Clinton ráðherrastarf- það er svo annað hvort Clinton þiggi. En Clinton yrði örugglega flottur utanríkisráðherra. Og nægilega reynslu ætti hún að hafa í slíkt embætti.
mbl.is Hillary hugsanlega utanríkisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki fullkomnir

Þó aðild að ESB kunni að vera það skynsamlegasta fyrir okkur er ekki þar með sagt að hjá ESB sé allt fullkomið. Við skulum ekki láta okkur detta það í hug. Það er ískalt mat á kostum og göllum sem ræður og ákvörðun af okkar hálfu verður tekin að gerðu slíku mati. Og eins og alltaf verður að taka kostina og gallana - af því að kostirnir eru taldir fleiri en gallarnir.

Þessar reglur, sem nú er búið að afnema að hluta, eru dæmi um einhvern fáránleika í ESB regluverkinu sem maður á bágt með að skilja. Kannski embættismennirnir í Brussel séu of margir?


mbl.is Aflétta banni við bognum gúrkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsi til að spyrja

Er ekki þingnefndum heimilt að senda fyrirspurnabréf hvert sem þær vilja? Móttakendur slíkra fyrirspurnabréfa meta svo hvort þeir megi, geti eða vilji svara. Og ef móttakendur fyrirspurnabréfa þingnefnda telja sig mega svara þá hlýtur ágreiningur þess sem um er spurt að beinast að þeim sem svarar en ekki þeim sem spurði? Hefði því ekki átt að beina erindinu að móttakendum bréfanna en ekki sendandanum? Hér áður skömmuðu Sovétríkin Albaníu þegar þau í raun voru að skamma Kína. Kannski var, með áðurnefndu bréfi fulltrúa þess sem keypti fjölmiðla 365, verið að láta bankana vita að þeir eigi ekki að dirfast að svara.
mbl.is Dregur ekki ósk sína til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað

réttlætir að gefa kaupverðið ekki upp? Um er að ræða eignir banka sem féllu og skattgreiðendur eiga eftir að axla talsverðar byrðar vegna þess. Er því ekki eðlilegt og sjálfsagt að gefa upp söluverð eigna? Treysti fjölmiðlum til að fara í málið og fá þetta upplýst.
mbl.is Sænskar eignir Kaupþings seldar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löng bið

Það hlýtur að vera frekar ömurlegt hlutskipti að bíða eftir að komast að - og eiga það undir andláti foreldris. Það er staðan sem Bretaprins hefur verið í lengi. Móðir hans er hin hressasta - komin á nýræðisaldur ef ég man rétt - og móðir hennar náði því að verða 100 ára. Með sama áframhaldi er allt eins líklegt að Bretaprins nái því aldrei að verða kóngur - og hafa sumir raunar spáð því lengi - eða verði það ekki fyrr en hann sjálfur er kominn á níræðisaldur. Sýnir kannski best fáránleika þessara konungsdæma.
mbl.is Bretaprins sextugur á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju ?

má ekki segja eitthvað nánar um þessa umræðu - sem greinilega hefur verið þannig að sendiherrum erlendra ríkja hefur mislíkað nægilega til að láta þetta leka í fjölmiðla landa sinna? Er eitthvað að fela?
mbl.is Fréttir af ummælum forseta ónákvæmar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Axlar ábyrgð

Mistök við sendingu tölvupósts hafa haft óvenjulega afdrifaríkar afleiðingar. En þingmaðurinn fv. er maður að meiru að axla ábyrgð með þeim hætti sem hann hefur gert. Ekki hvarflaði að mér í morgun þegar ég bloggaði um þessi innanfloksátök hjá Framsókn að klukkutíma seinna yrði þingmaðurinn, eftir áskorun varaformannsins (hér), búinn að segja af sér.
mbl.is Bjarni segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forgangsröðunin hjá Framsókn?

Mér datt í hug þetta erindi úr ljóðinu Á Glæsivöllum eftir Grím Thomsen þegar ég las þessa frétt:

Á Glæsivöllum aldrei
með ýtum er fátt,
allt er kátt og dátt.
En bróðernið er flátt mjög og gamanið er grátt,
í góðsemi vegur þar hver annan.

Þessi tölvupóstur þingmannsins stefnir í að draga dilk á eftir sér því í morgunfréttum RÚV er haft eftir varaformanni Framsóknarflokksins að vinnubrögð þingmannsins væru ófyrirgefanleg og að málið yrði rætt í stofnunum flokksins (hér). Auðvitað skilur maður hörð viðbrögð varaformannsins því hér átti að vega að honum úr launsátri. En engu að síður: Hefur einn þingflokka stjórnarandstöðunnar ekkert mikilvægara að gera þessa daganna en að standa í innanflokksdeilum?


mbl.is Áframsendi gagnrýni á Valgerði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ýmislegt hægt að gera

Margir hafa verið með ábendingar um úrræði til aðstoðar fyrirtækjum í rekstrarvanda. Hagfræðingarnir Gylfi Zoega og Jón Daníelsson hafa bent á að stjórnvöld geti útvegað þessum fyrirtækjum rekstrarlán með hagstæðum vöxtum a.m.k. tímabundið. Enda snýr vandi flestra fyrirtækja nú að lausafjárskorti. Þórarinn V. Þórarinsson lögmaður ritaði athyglisverða grein í Morgunblaðið 5. nóv. sl. þar sem hann benti á ákvæði 6. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 sem lögfesta að dráttarvextir skuli vera ellefu hundraðshluta álag ofan á nánar tilgreinda vexti, en Seðlabanki hefur þó svigrúm til að lækka álagið niður í sjö hundraðshluta. Þetta svigrúm virðist Seðlabankinn hafa notfært sér. Engu að síður eru dráttarvextir fáránlega háir, eða 26,5%. Jafnframt benti Þórarinn á að dráttarvextir á lán í erlendri mynt væru úr öllu samhengi og skoraði á Alþingi að breyta vaxtalögum þannig að dráttarvextir á erlendar kröfur taki mið af undirliggjandi vöxtum í erlendri mynt, með hóflegu álagi, með sama hætti og gert er um allan heim. 

Alþingismenn ræddu í síðustu viku störf þingsins og kvörtuðu m.a. yfir því að þeir væru eins og afgreiðslufólk á kassa. Væri nú ekki ráð að alþingismenn tækju sig sjálfir til og drifu í að leggja fram lagafrumvörp með lagabreytingum, sem bent hefur verið á að gera þurfi? Eins og t.d. að breyta lagaákvæðum um dráttarvexti? Eftir hverju er verið að bíða?


mbl.is Mörg fyrirtæki eru tæknilega gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Feðradagurinn er í dag

Í þriðja sinn er haldinn feðradagur hér á landi, eftir að yfirvöld samþykktu að gera annan sunnudag í nóvember ár hvert að feðradegi. Merkilegt raunar hvað við vorum sein til að heiðra sérstaklega feður því feðradagur tíðkast alls staðar og hefur gert um áratuga skeið í hinum vestræna heimi. Ég hvet alla sem eiga feður á lífi til að sýna þeim ást og umhyggju í dag, þó auðvitað eigi að gera það alla daga, og heiðra minningu þeirra sem gengnir eru.

Og ...?

Hvað gerði stjórnin, forstjórinn og endurskoðendurnir? Kærðu þau stjórnarformanninn til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra? Eða tengdist þessi gjörningur afsögn stjórnar FL á þessum tíma og skyndilegum starfslokum forstjórans á kjörum sem vöktu talsverða athygli? Kannski er eitthvað nánar um þetta í Morgunblaðinu en þessi stutta frétt á mbl.is vekur fleiri spurningar en hún svarar.
mbl.is Lét flytja út af reikningum FL án heimildar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband