Mánudagur, 30. mars 2009
Smámunir
Það er sama hvernig þessar tölur eru skoðaðar. Þessar fjárhæðir eru smámunir í samanburði við milljarðana sem fjármálaráðherra er þegar búinn að gefa hluthöfum tveggja fjárfestingabanka með láni á gjafakjörum.
Það vefst ekki fyrir fjármálaráðherra og ríkisstjórn sem kennir sig við jöfnuð og réttlæti að gefa peningamönnum og -fyrirtækjum sem eiga tvo fjárfestingabanka milljarða á silfurfati. Á sama tíma ræður þessi sama ríkisstjórn jöfnuðar og réttlætis ekki við að slá þeirri skjaldborg sem hún lofaði um heimilin og fjölskyldurnar í landinu.
![]() |
Ójöfn dreifing skulda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 30. mars 2009
Kosningabandalag?
Það er gott fyrir kjósendur að hafa skýra kosti í næstu kosningum. VG og Samfylkingin stefna ljóst og leynt að því að halda áfram núverandi stjórnarsamstarfi. Heiðarlegast væri ef þessir stjórnmálaflokkar hreinlega mynduðu kosningabandalag með stefnuskrá svo kjósendur, sem þessa flokka kjósa í kosningunum, viti nákvæmlega hvað þeir eru að kjósa yfir sig.
Sömuleiðis þarf að liggja algerlega ljóst fyrir hver á að vera forsætisráðherra í þeirri ríkisstjórn. Bjarni Harðarson fv. alþingismaður fullyrti í Silfri Egils að fyrir löngu væri búið að handsala milli VG og Samfylkingarinnar samkomulag um að Jóhanna Sigurðardóttir yrði eingöngu forsætisráðherra fram á árið 2010. Þá tæki Steingrímur J. Sigfússon við. Ef þetta er raunin þá þurfa kjósendur að vita það fyrir kosningar.
![]() |
Stefnt að samstarfi við VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. mars 2009
Ræða sem dæmir sig sjálf
Ég er ekki á landsfundi - en í kvöld horfði ég á helstu ræður sem fluttar voru í dag. Ræða Þorgerðar Katrínar var góð, heiðarleg og hreinskilin. Algerlega í anda þess hvernig Þorgerður Katrín hefur talað eftir hrunið. Mér finnst hún hafa vaxið sem stjórnmálamaður á síðustu mánuðum og vona að hún verði endurkjörinn varaformaður.
Ég horfði á Bjarna Benediktsson. Hann var góður. Ég gerði heiðarlega tilraun til að horfa á Kristján Þór Júlíusson. Mér til mikilla vonbrigða er sú upptaka biluð. Hún stoppar alltaf eftir örfáar mínútur og byrjar á byrjuninni aftur. Tilviljun? Vonandi. Ég get því ekki sjálf borið saman ræður formannsframbjóðendanna. Ég hef heyrt í nokkrum landsfundarfulltrúum. Þeir skipast eftir hvorn þeir styðja. Stuðningsmenn Bjarna segja hann hafa verið betri. Stuðningsmenn Kristján Þór segja hann hafa verið miklu betri. Þess vegna er ég vonsvikin yfir því að akkúrat upptakan með ræðu Kristjáns Þórs skuli ekki fúnkera á www.xd.is.
Ég horfði á fv. formann flytja sína ræðu. Þar er að mínu mati mjög ómaklega vegið að því öfluga og þróttmikla starfi sem endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins hefur skilað undir traustri forystu Vilhjálms Egilssonar. Grasrótin í flokknum fékk í þessu starfi tækifæri til að láta sín sjónarmið heyrast. Fundir í endurreisnarnefnd og undirhópum hennar voru fjölmennir enda er grasrótin í flokknum leið, reið, vonsvikin. Það heyrði ég aftur og aftur í samtölum við hinn almenna sjálfstæðismann fyrir prófkjörið. Þessi afstaða til grasrótarinnar á ekki að koma á óvart úr þessari átt. Ég man ekki betur en að sami einstaklingur hafi sagt í setningarræðu á landsfundi, fyrir mjög mörgum árum, eitthvað í þá veru að ef of mikið væri hlustað á grasrótina fengi maður orma í eyrun.
Um ræðu fv. formanns að öðru leyti vil ég sem minnst segja annað en það að hún dæmir sig sjálf. Ég skildi betur, eftir að að hafa horft sjálf á ræðuna, af hverju einn góður einstaklingur, sem ég treysti vel, sagðist hafa yfirgefið landsfundinn eftir ræðuna, svo illa hafi honum liðið.
![]() |
Vilhjálmur: Ómakleg ummæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 28. mars 2009
Í samhengi við gjafalán til fjárfestingabanka
Já, setjum þessar fjárhæðir endilega í samhengi við annað, t.d. gjafalán ríkissjóðs til tveggja fjárfestingabanka sem Morgunblaðið hefur fjallað um í vikunni.
Ríkissjóður lánaði nýverið tveimur fjárfestingabönkum, að því er virðist án mikillar umhugsunar, 42 milljarða til sjö ára á 2% verðtryggðum vöxtum. Kunnugir telja að eðlilegir verðtryggðir vextir á lánunum til bankanna hefðu verið a.m.k. 10%. Gróft metið má því telja að ríkissjóður sé að gefa hluthöfum bankanna a.m.k. tæpa 3,5 milljarða á ári.
Á sjö ára lánstíma gefur ríkissjóður hluthöfunum sennilega hátt í 25 milljarða króna. Sú fjárhæð sýnist tæplega 10% af því sem sagt er í fréttinni að það muni kosta að fella flatt niður 20% húsnæðisskulda u.þ.b. 70.000 heimila í landinu. Ríkissjóður gerði enga kröfu til hlutafjár í bönkunum sem nutu þessarar fyrirgreiðslu. Því halda hluthafarnir öllu, óskertu.
Í verkefnaskrá ríkisstjórnar VG og Samfylkingarinnar, sem stendur að þessum örlætisgerningum í þágu hluthafa fjárfestingabankanna tveggja, segir m.a.
...Stjórnin byggir því á mjög aðhaldssamri og ábyrgri stefnu í efnahags-og ríkisfjármálum, en mun jafnframt hafa í heiðri félagsleg gildi, hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar, kvenfrelsi, jöfnuð og réttlæti. ... (leturbreyting DP)
![]() |
Niðurfelling skulda óhagkvæm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 27. mars 2009
Kjósa, bara til að kjósa?
Það sýnir mannauð í stjórnmálaflokki ef margir gefa kost á sér, í alvöru, til forystu. Eins og staðan er núna hefur enginn gefið kost á sér í varaformannsstarfið í Sjálfstæðisflokknum nema sitjandi varaformaður. Er það ekki vísbending um að ákveðin sátt sé um að sitjandi varaformaður verði áfram í því starfi?
![]() |
Vill varaformannskjör á landsfundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 27. mars 2009
Ófullnægjandi skýringar
Skýringar fjármálaráðherra eru alls ófullnægjandi. Góð kjör séu forsenda þess að skuldin fengist endurgreidd? Eiga þau rök ekki við gagnvart öllum? Því betri kjör sem skuldarar fá þeim mun meiri líkur eru á að skuldir fáist endurgreiddar. Þetta eru ekki rök sem halda.
Ekki sýnist sem gjafþegarnir hafi skilið meintar hömlur á starfsemi þeirra með sama hætti. Blekið virðist vart hafa verið þornað á gjafapappírunum þegar annar bankanna gerði sig líklegan til að bjóða í eignir í þrotabúi SPRON.
Svo er spurningin: Á hvaða kjörum fékk ríkissjóður fjármunina sem endurlánaðir eru með þessum gjafakjörum til tveggja fjárfestingabanka?
![]() |
Steingrímur: Góð vaxtakjör nauðsynleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 27. mars 2009
Vonbrigði
Það eru vonbrigði að tillagan skuli ganga út á þessa tvöföldu atkvæðagreiðslu. Skynsamlegra væri að fundurinn gefi opnari heimild fyrir því að hefja viðræður með leiðbeiningum um þau samningsmarkmið sem setja á. Það gefur svo auga leið að þjóðin þarf að greiða atkvæði um niðurstöðuna eftir að farið hefur verið í viðræður.
![]() |
Leggja til tvöfalda atkvæðagreiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 26. mars 2009
Ánægjulegar niðurstöður
Árið 1996 byrjaði ríkisstjórnin markvissar aðgerðir í forvarnarmálum. Nýjar áherslur voru lagðar þar sem samvinna við heimilin var ákveðin þungamiðja auk samvinnu allra sem að þessum málum koma. Samhliða var mikill metnaður lagður í að árangur forvarnarstarfs yrði reglulega mældur með könnunum, bæði erlendum samvinnurannsóknum eins og hér er skýrt frá og með innlendum könnunum.
Árangurinn hefur smátt og smátt verið að koma í ljós. Hann staðfestist enn frekar með þessum niðurstöðum. Enda er "íslenska módelið" í forvarnarmálum orðin fyrirmynd og grunnur samstarfs Evrópulanda í forvarnarmálum. Rannsóknarstofnunin Rannsóknir og greining hélt nýlega upp á 10 ára afmæli sitt, en hún hefur verið leiðandi afl í rannsóknarvinnu á þessu sviði. Þar kom fram að "íslenska módelið" er einnig til skoðunar í Bandaríkjunum og Asíu.
Ég kom að vinnu í þessum málum á árunum 1996 - 2002, en þá var í gangi átaksverkefið Ísland án eiturlyfja. Við sem að þessum málum komu höfðum bjargfasta trú á því að þetta módel sem lagt var upp með væri lykillinn að árangursríku forvarnarstarfi meðal barna og unglinga. Niðurstöður rannsókna, síðast þessarar, virðast staðfesta þetta.
Nú skiptir öllu að þetta góða forvarnarstarf haldi áfram af fullum krafti. Forvarnarstarfi lýkur aldrei. Sama hvað góðar tölur koma úr rannsóknum.
![]() |
Reykingar og drykkja íslenskra unglinga með því minnsta sem gerist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 26. mars 2009
Gjafir af almannafé
Ríkissjóður hefur samið um gjafakjör við tvo fjárfestingabanka. Boðar það að önnur fyrirtæki í landinu og heimilin bjóðist sambærileg fyrirgreiðsla þegar þessir aðilar semja við ríkisviðskiptabankana um skuldir sínar?
Skoðun á heimasíðum Kaupþings, Landsbankans og Íslandsbanka sýnir að lægstu vextir á verðtryggðum skuldabréfum hjá þessum bönkum eru 7,8%.
Spurning vaknar um það af hverju hluthafar í þessum fyrirtækjum þurfa ekki að gefa eftir hluta hlutafjár síns til ríkissjóðs vegna þessa örlætisgernings í þeirra þágu. Mér skilst að miðað við áhættu sem fylgir lánveitingum til þessara fyrirtækja og áhættuálag ríkissjóðs um þessar mundir sé ekki fráleitt að gera ráð fyrir að eðlilegt væri að krefja þau um a.m.k. 10% vexti af verðtryggðum lánum. Ríkisstjórnin hefur því ákveðið að gefa þessum tveimur fyrirtækjum liðlega 3 milljarða á ári í afslátt af vaxtagreiðslum vegna þessara lána og styrkja eigið fé þeirra sem því nemur á lánstímanum.
Fjármálaráðherra verður að skýra af hverju tvö fjármálafyrirtæki, sem ekki eru mikilvæg í kerfislegu tilliti, fá ríflegan fjárstyrk af þessu tagi, af almannafé, á sama tíma og dræmt hefur verið tekið í allar tillögur um ívilnandi aðgerðir í þágu fyrirtækja og heimila.
![]() |
Vextir lána til VBS og Saga tvö prósent |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 26. mars 2009
Sanngjarnir skattar?
Það er makalaust með VG. Aukning skatta virðist vera eitt af því fáa sem þeim dettur í hug þegar kemur að efnahagsráðstöfunum. Eignaskattar eru sennilega ósanngjörnustu skattar sem til eru þannig að það er þversögn að tala um sanngjarna eignaskatta. Með eignasköttum er skattlagður skattstofn sem sjaldnast ber nokkrar tekjur. Það er skattlagður skattstofn sem aflað var með fjármunum sem að fullu er búið að borga af tekjuskatt eða fjármagnstekjuskatt.
Það eina jákvæða við þessa tillögu er það að VG sýnir á spilin fyrir kosningar og upplýsir kjósendur um það hvers megi vænta úr þeim herbúðum verði VG áfram í ríkisstjórn.
![]() |
Vinstri græn vilja eignaskatta á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Miðvikudagur, 25. mars 2009
Sama skal yfir alla ganga
Frambjóðandinn heldur því fram að ASÍ hafi fram til þessa leyft starfsmönnum að fara í framboð, enda taki þeir launalaust leyfi fram yfir kosningar. Þetta hafi a.m.k. gilt ef starfsmaðurinn býður sig fram fyrir Samfylkinguna.
Ef þetta er rétt þá hlýtur forseti ASÍ að þurfa að útskýra af hverju það skipti máli fyrir hvaða flokk frambjóðandinn býður sig fram. ASÍ hlýtur að láta það sama yfir alla starfsmenn ganga, ekki bara suma.
![]() |
Leit á þátttöku sem uppsögn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 25. mars 2009
Kynningarbrella
Einhvern veginn finnst mér þessi tilkynning frá heilbrigðisráðherra um að hann þiggi ekki ráðherrahluta launa sinna, meðan þessi ríkisstjórn situr, eins og segir í fréttinni, bera meira yfirbragð kynningarbrellu en nokkuð annað.
Nú skulum við sjá hvort heilbrigðisráðherra haldi sig við þessa ákvörðun ef hann heldur áfram sem ráðherra í næstu ríkisstjórn. Og hvernig er með ráðherrabílinn? Er heilbrigðisráðherra þá ekki heldur að nota hann? Varla. Það kostar ráðuneytið milljónir á ári hverju að eiga og reka ráðherrabíl. Þann kostnað hlýtur ráðherrann að hafa ákveðið að spara ráðuneytinu. Til viðbótar hlýtur að koma að hann aki sjálfur, eigin bíl, án þóknunar fyrir bílaafnot. Leiðir þá af sjálfu sér að ráðherrabílstjórinn er ekki lengur í starfi hjá ráðuneytinu til að auka enn á sparnað ráðuneytisins vegna ráðherrans.
Ef ríkisstjórn sú sem nú situr telur að ráðherrahluti launa sé óþarfur og að greiða eigi þingmönnum sömu laun, án tillits til þess hvort þeir eru ráðherrrar eða ekki, þá á ríkisstjórnin að láta breyta samsetningu launa ráðherra og afnema ráðherrahlutann. Útaf fyrir sig er ekkert á móti því. En þá verður ríkisstjórnin að mínu mati að endurskoða allt launakerfi ríkisins. Mér finnst óeðlilegt að ráðherra sé með lægri laun en hæst launuðu embættismennirnir í ráðuneytum þeirra. Og hæstu föstu laun í ráðuneytum eru talsvert hærri en þingmannalaun.
Af bloggathugasemdum sem komnar eru við þessa frétt verður ekki annað ráðið en að kynningarbrella heilbrigðisráðherra sé algerlega að takast. Flestir telja þetta hið flottasta ráð hjá ráðherranum.
![]() |
Ögmundur fær ekki ráðherralaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
-
addabogga
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
andriheidar
-
gumson
-
audbergur
-
abg
-
axelaxelsson
-
armannkr
-
arniarna
-
asabjorg
-
arh
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
astar
-
kaffi
-
birgir
-
launafolk
-
bjarnimax
-
borgar
-
braskarinn
-
gattin
-
bryndisharalds
-
brandarar
-
carlgranz
-
rustikus
-
deiglan
-
draumur
-
einarbb
-
ekg
-
jaxlinn
-
elinora
-
ellasprella
-
ellyarmanns
-
erla
-
erlaosk
-
erna-h
-
fsfi
-
fhg
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisligislason
-
neytendatalsmadur
-
grazyna
-
gudni-is
-
gelin
-
gudbjorng
-
fasteignir
-
gudfinna
-
lucas
-
gudmundurmagnusson
-
gudrunshil
-
gudruntora
-
gunnaraxel
-
gunnargunn
-
laugardalur
-
gylfithor
-
hallarut
-
heidistrand
-
heidathord
-
jarnskvisan
-
heimirhilmars
-
hehau
-
helgi-sigmunds
-
herdis
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
disdis
-
holmfridurge
-
tulinius
-
idno
-
ingabesta
-
ingisund
-
golli
-
ibb
-
astromix
-
johannalfred
-
stjornun
-
jonmagnusson
-
jonsnae
-
juliusvalsson
-
kolbrunb
-
kristinhrefna
-
lara
-
lotta
-
nytjagardar
-
altice
-
matarbitinn
-
maggaelin
-
martagudjonsdottir
-
mal214
-
morgunbladid
-
olavia
-
olinathorv
-
olofnordal
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
otti
-
publicservant
-
iceland
-
pjeturstefans
-
ragnar73
-
ragnheidurrikhardsdottir
-
ragnhildur
-
rannveigmst
-
runirokk
-
rynir
-
trumal
-
salvor
-
sirrycoach
-
sigurbjorns
-
sv11
-
sighauk
-
sij
-
sigurdurir
-
ohyes
-
sigurdurkari
-
siggisig
-
siggith
-
sigurjonsigurdsson
-
zunzilla
-
sms
-
1301493169
-
stefaniasig
-
stebbifr
-
brv
-
sveinni
-
saethorhelgi
-
thelmaasdisar
-
grasteinn
-
ubk
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
va
-
villidenni
-
thorbjorghelga
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
thoragud
-
thorasig
-
tbs
-
thorhallurheimisson
-
iceberg
-
toddi