Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Gamblað með lífeyrissjóð og ævisparnað?

Það var þéttsetinn salurinn á Grand Hótel í gærkvöldi þegar forsvarsmenn Íslenska lífeyrissjóðsins kynntu niðurstöðu um stöðu sjóðsins eftir hrun bankanna. Og þær eru fjarri því að vera glæsilegar. Öruggasta ávöxtunarleiðin af séreignasjóðaleiðum sjóðsins hefur tapað mest. Af hverju? Jú, hún fjárfesti mest í innlendum skuldabréfum, m.a. skuldabréfum banka og fyrirtækja. Þá virðist sparnaði okkar til elliáranna hafa mikið verið beint í peningamarkaðssjóði hjá umsýslubankanum. Það fór kliður um salinn þegar birtur var listi yfir "öruggu" fyrirtækin sem fyrirtækjaskuldabréf höfðu verið keypt af.

Enda stóð upp einstaklingur, sem fyrr á árum var sjóðstjóri hjá sjóðnum, og sem vinnur enn í bankageiranum. Hann sagði það óskiljanlegt hvernig forsvarsmönnum sjóðsins skyldi detta það í hug að þessi fyrirtækjaskuldabréf væru örugg fjárfesting. Bankakerfið væri lengi búið að vita að þessi skuldabréf væru áhættufjárfesting. Upplýsingarnar á fundinum vöktu fleiri spurningar en þær svöruðu, enda kölluðu fundarmenn eftir nánari skýringum.

Á sama tíma og sparnaðarleiðir þessa sjóðs eru að tapa umtalsverðum fjárhæðum eru flestar sparnaðarleiðir Frjálsa lífeyrissjóðsins engu að tapa. Hvað veldur? Það má segja forsvarsmönnum sjóðsins til hróss að þeir seldu hlutabréf, innlend og erlend á hárréttum tíma. En því miður ákváðu þeir að setja andvirðið í skuldabréf fyrirtækja sem ég helda að litla spekinga hafi þurft til að vita að voru mjög vafasamar fjárfestingar. Og þannig virðist purkunarlaust hafa verið gamblað með peningana okkar með hagsmuni umsýsluaðilans meira í huga en hagsmuni okkar lífeyriseigendanna. 

Það verður fróðlegt að fá þær frekari skýringar á málum, sem kallað var eftir á fundinum. Það var að heyra að því fer fjarri að sjóðsfélagar hafi sagt sitt síðasta orð um þetta mál.


mbl.is Sjóðirnir í skoðun Fjármálaeftirlitsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins ...

er þetta frumvarp komið fram eftir langar fæðingarhríðir. Ég treysti því að frumvarpið verði samþykkt áður en þingheimur fer í jólaleyfi. Það er ekki eftir neinu að bíða, svo umdeild hafa lög nr. 141/2003 verið. 

Ég velti fyrir mér gildistökutíma breytingarfrumvarpsins, sem á að vera 1. júlí 2009. Í skýringum með lagafrumvarpinu segir:

Í samræmi við sjónarmið um meðalhóf er gert ráð fyrir því að ákvæði frumvarpsins taki ekki gildi fyrr en 1. júlí 2009. Er þeim hópum sem falla undir lög nr. 141/2003 þannig veittur ákveðinn aðlögunartími.

Aðlögunartíma fyrir hvað þurfa þeir sem falla undir lög nr. 141/2003? Ég vænti þess að svör við þessu komi fram við meðferð málsins á Alþingi.


mbl.is Eftirlaunafrumvarp komið fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ágæt hugmynd en ...

Það er góð hugmynd að skipa nefnd til að fara yfir lög á sviði fjármálamarkaðar í ljósi reynslunnar af bankahruninu. En ég set spurningamerki við að í nefndinni séu þeir sem hugsanlega hafa gengið á svig við þessi lög með þeirri framkvæmd sem var beitt og vísa ég þá til Samtaka fjármálafyrirtækja. Ég set líka spurningamerki við að í nefndinni séu fulltrúar eftirlitsaðila sem litlar eða engar athugasemdir virðast hafa haft við þá framkvæmd laganna sem við lýði var. Vísa ég þar til FME sem hlýtur að hafa vitað með hvaða hætti bankarnir voru að beita lögunum. Ég tel eðlilegt að fulltrúi Samtaka fjárfesta sé í nefndinni og síðan eiga þar að vera aðrir svipaðir utanaðkomandi aðilar. Í nefndina eiga ekkert erindi fulltrúar þeirra sem voru að framkvæma lögin og þeirra sem virðast hafa blessað framkvæmdina. Hvaða athugasemdir ætla þeir að gera núna?


mbl.is Fara á yfir lög á sviði fjármálamarkaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju hulið andlit?

Að mótmæla eru sjálfsögð mannréttindi. Það kemur á óvart að sumir mótmælendur skuli vera með andlit sín hulin. Af hverju er það? Vilja þessir mótmælendur ekki láta sjá til sín í mótmælunum? Skammast þeir sín fyrir að vera þarna? Eða telja þeir sig þurfa að vera hrædda?
mbl.is Hávær mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraði snigilsins?

Það er ánægjulegt að heyra að það er lífsmark með FME þegar kemur af meintum afbrotum af þessu tagi. En óskiljanlegt er hvernig rannsókn FME getur tekið á annað ár þar, áður en stofnunin vísar málinu til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra. Greinilegt er að taka þarf allt þetta verklag upp í tengslum við þær rannsóknir sem framundan eru hjá sérstökum saksóknara og sem tengjast hugsanlegum misferlum í tengslum við hrun bankanna. Vinnuhraða sem þennan er ekki hægt að líða. 
mbl.is Grunur um ólögleg verðbréfaviðskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forvitnilegt

Það verður forvitnilegt að fylgjast með framgangi þessara málaferla í Bandaríkjunum. Réttarkerfi þeirra virðist gefa neytendum meira svigrúm til málsókna á hendur framleiðenda en víða þekkist annars staðar. Vandséð er hvernig merkingin "light" eigi að geta gefið reykingamönnum í skyn að þar séu á ferð "hollari" sígarettur en ella. Langt er síðan að rannsóknir staðfestu að reykingar eru krabbameinsvaldandi. En vera kann að í tóbaksauglýsingum, sem mig minnir að séu leyfðar í Bandaríkjunum, sé þetta gefið í skyn - í staðinn fyrir hin réttu skilaboð sem eru að "light" sígarettur eru "minna óhollar" en venjulegar sígarettur. Venjulegar sígarettur og "light" sígarettur eiga það báðar sameiginlegt að vera óhollar.  Einhvern veginn finnst manni það liggja svo í augum uppi.
mbl.is Hæstiréttur BNA dæmir gegn tóbaksframleiðendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilaboð?

Í þessu felast kannski þau skilaboð að forsetaembættið eigi að hætta að gefa einstaklingum gjafir þó þeir komi í heimsókn til forseta Íslands. Ef fréttin er rétt þá bendir hún til að gjafirnar séu ekki mikils metnar.


mbl.is Gjöf forseta til Hillary Clinton á Ebay
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi

Það er sannarlega vel til fundið að reisa minnisvarað um þetta meinta umferðarlagabrot Jóns Kristinssonar, svo afdrifaríkt varð það fyrir réttarkerfið í landinu. Atvikið sýndi hverju einstaklingar geta áorkað þegar þeir telja á mannréttindum sínum brotið, gefast ekki upp og taka málin alla leið.
mbl.is Minnisvarði um sögulegan dóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hótun?

Ég skil ekki af hverju fjölmiðlar virðast vera að fara af hjörunum yfir meintum hótunum ISG um stjórnarslit ef niðurstaða landsfundar okkar sjálfstæðismanna verði önnur en sú að ganga til aðildarviðræðna um ESB. Það virðist gleymast að þingrofsumboðið er væntanlega í höndum forsætisráðherra. Það virðist líka gleymast að ef Samfylkingin telur sig ekki geta starfað með flokki sem hefur hafnað að stefna til Brussel þá þarf hún að finna annan flokk sem er tilbúinn til þess. Sá flokkur finnst ekki í íslenskri pólitík, a.m.k. ekki flokkur með nægilegan þingstyrk til að mynda ríkisstjórn með Samfylkingunni. Og síðast en ekki síst, ef landsfundur Sjálfstæðisflokksins ber ekki gæfu til að samþykkja að a.m.k. láta á það reyna hvað býðst í aðildarumræðum við EB þá sýnist mér að VG séu orðnir mjög vænlegur kostur til stjórnarsamstarfs fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Báðir flokkar þá búnir að hafna EB.

Sjálf vona ég að landsfundarfulltrúar sýni þá víðsýni að taka Evrópuumræðuna á næsta stig þannig að ákveðið verði að sækja um aðild. Öðru vísi fáum við aldrei að vita fyrir víst hvað EB er tilbúið að bjóða okkur. Ég er þeirrar skoðunar að við þurfum að láta á þetta reyna, með aðildarviðræðum, og síðan ákveður þjóðin í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort við teljum að viðunandi samningur hafi náðst.


mbl.is Hafa ekki tíma fyrir truflun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yndislegir aðventutónleikar

Ég var svo heppin að vera boðið á aðventutónleika Karlakórs Reykjavíkur í Hallgrímskirkju í gærkvöldi. Tónleikarnir voru í einu orði sagt yndislegir og fylltu mig og ég hygg alla aðra gesti sannri jólastemningu. Ég fullyrði að Karlakór Reykjavíkur er á heimsmælikvarða. Fyrir þá sem ekki hafa notið þá eru tónleikarnir aftur í dag kl. 17 og kl. 20. Ef það skyldi vera uppselt þá gaf kórinn út jóladisk fyrir einhverju síðan sem er frábær. Ég keypti hann eftir tónleikana í gær og er búin að spila hann núna í morgun. Ég get af heilum hug mælt með hvorutveggja, tónleikunum og disknum. Þeir sem á hlýða eru af hvorugu sviknir. Mér var sagt að kórinn hefði nánast fyrir tilviljun byrjað á því fyrir 17 árum að halda aðventutónleika og ætlað að gera þetta annað hvort ár. En sívaxandi vinsældir tónleikanna gera það að verkum að þetta er orðinn árviss viðburður og fernir tónleikar haldnir hverja aðventu. Margir líti á það sem nauðsylegan hluta af jólaundirbúningnum að fara á þessa tónleika. Eftir að hafa upplifað þá sjálf skil ég það vel og á fastlega von á því að gera aðventutónleika Karlakórs Reykjavíkur að föstum þætti í mínum jólaundirbúningi.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband