Leita í fréttum mbl.is

Hótun?

Ég skil ekki af hverju fjölmiðlar virðast vera að fara af hjörunum yfir meintum hótunum ISG um stjórnarslit ef niðurstaða landsfundar okkar sjálfstæðismanna verði önnur en sú að ganga til aðildarviðræðna um ESB. Það virðist gleymast að þingrofsumboðið er væntanlega í höndum forsætisráðherra. Það virðist líka gleymast að ef Samfylkingin telur sig ekki geta starfað með flokki sem hefur hafnað að stefna til Brussel þá þarf hún að finna annan flokk sem er tilbúinn til þess. Sá flokkur finnst ekki í íslenskri pólitík, a.m.k. ekki flokkur með nægilegan þingstyrk til að mynda ríkisstjórn með Samfylkingunni. Og síðast en ekki síst, ef landsfundur Sjálfstæðisflokksins ber ekki gæfu til að samþykkja að a.m.k. láta á það reyna hvað býðst í aðildarumræðum við EB þá sýnist mér að VG séu orðnir mjög vænlegur kostur til stjórnarsamstarfs fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Báðir flokkar þá búnir að hafna EB.

Sjálf vona ég að landsfundarfulltrúar sýni þá víðsýni að taka Evrópuumræðuna á næsta stig þannig að ákveðið verði að sækja um aðild. Öðru vísi fáum við aldrei að vita fyrir víst hvað EB er tilbúið að bjóða okkur. Ég er þeirrar skoðunar að við þurfum að láta á þetta reyna, með aðildarviðræðum, og síðan ákveður þjóðin í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort við teljum að viðunandi samningur hafi náðst.


mbl.is Hafa ekki tíma fyrir truflun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Það vantar tilfinnanlega að lista upp aðra möguleika en ESB.  ESB getur vel verið skynsamlegur kostur en ekki fyrr en búið er að lista upp aðra möguleika.

Getum við gert "EES" samning við NAFTA og komið okkur í þá stöðu að vera milliliður milli evrópska markaðssvæðisins og þess ameríska með full réttindi báðum megin?  Hvaða tækifæri gæti það opnað fyrir okkur?  Gætum þá tekið upp Bandaríkjadollar ef seðlabanki Bandaríkjanna samþykkir að styðja okkur.

Eftir áratug eða fyrr verður mögulega orðið siglingafært og flugfært yfir norðurpólinn til Asíu.  Getum við þá gert sambærilega samninga við Kína og Japan og orðið þríhliða milliliður milli álfanna þriggja?

Eru þetta raunhæfar vangaveltur?  Ef já, af hverju?  Ef nei, af hverju?

Hvaða fleiri kostir eru í stöðunni?  Það eru pottþétt mikið fleiri möguleikar en mér dettur í hug.  Við þurfum að hugsa áratugi fram í tímann og hugsa út fyrir kassann.  Maður skiptir ekkert svo auðveldlega um skoðun eftir að maður er kominn inn í ESB.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 14.12.2008 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband