Leita í fréttum mbl.is

Tilviljun?

Er það tilviljun að um leið og farið var að blogga og skrifa á netmiðlunum um það að stjórnmálaflokkarnir skulduðu samtals kringum hálfan milljarð í árslok 2007, og að upplýsa þyrfti hverjir væru kröfuhafar flokkanna, þá snarhætti umræðan um fjármál stjórnmálaflokkanna? Um þessar skuldir var fjallað t.d. á eyjan.is og amx.is þriðjudaginn 14. apríl sl.

Forsætisráðherra hlýtur að hafa forgöngu um það að Samfylkingin upplýsi hverjum flokkurinn skuldaði 124 milljónir króna í árslok 2007. Með sama hætti hlýtur Framsóknarflokkurinn að upplýsa hverjum þeir skulduðu 154 milljónir króna í árslok sama árs. Aðrir flokkar þurfa auðvitað að gera slíkt hið sama. VG skuldaði 91 mkr., Sjálfstæðisflokkurinn 76 mkr. og Frjálslyndir 30 mkr. Þannig skulda VG og Sjálfstæðisflokkurinn samtals litlu meira en Framsóknarflokkurinn einn. 

Af hverju eru fjölmiðlamennirnir, sem gengu svo snöfurlega fram þegar um var að ræða ofurstyrkina til Sjálfstæðisflokksins, ekkert að sinna þessu máli núna? Skyldi það vera af því að þeir óttast að upplýsingarnar geti orðið óþægilegar fyrir flokkinn sem margir þeirra styðja, Samfylkinguna?


mbl.is Reiðubúin að leiða næstu stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Skuldaumræðuna þarf að klára. Fjölmiðlar geta nú varla talist mjög trúverðugir ef þeir telja málið búið með því einu að fjalla bara um Sjálfstæðisflokkinn.

Carl Jóhann Granz, 19.4.2009 kl. 18:24

2 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Jóhanna var í réttum félagsskap þarna með eldri borgurum. Hún verður "löglegur" eldri borgari í okt. nk. er búinn að vera allan tímann í SF og líklega þarf hún að starfa áfram til að jafna út skuldalistann hjá Samfylkingunni eða 124 milljónir.

Hún  er líklega með einhverjar tillögur um hvernig hún ætlar að greiða upp skuldir flokksins síns!!!! Gaman væri að sjá þær tillögur!!!!  Kannski á bara að gefa greiða á móti skuldunum?

Eggert Guðmundsson, 19.4.2009 kl. 20:34

3 identicon

Það má bæta því við, að það er ekkert sem bendir til þess að Sjálfstæðisfokkurinn ætli sér að endurgreiða 60 milljónirnar, sem er skítt !

Stefán (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 08:36

4 identicon

Ekki veit ég hvort fólk hefur minni áhuga á að skoða styrki til annarra flokka en;

  1. Sjálfstæðisflokkurinn þiggur risastyrk frá FL-Group um það leyti sem á að afhenda FL-Group REI (Sjálfstæðisflokkurinn með meirihluta í borginni á þeim tíma).
  2. Spillingarþefur af styrkjunum, formaður flokksins veitir þeim viðtöku, sá hinn sami og lagði til að styrkir yrðu ekki hærri en 300þús til að koma í veg fyrir spillingu og mútuþægni!
  3. Auglýsingaherferð Sjálfstæðismanna fyrir síðustu kosningar var afgerandi og hefur kostað sitt.
  4. O.m.fl.
  5. Umræðan orðin útþvæld.

Í Silfrinu í gær sagði Sverrir Hermanns að greinilegt hefði verið að ISG hefði verið að þakka fyrir sig á fundi LÍÚ, þegar hún sagði að ekki yrði hreyft við kvótanum.

Við eigum eftir að sjá hvort leynist óhreint mjöl í pokahorni Kárahnjúkavirkjunar og bankasölunnar en kæmi ekki á óvart. Spillingin á hvergi að þrífast, hvaða flokkur sem í hlut á. Það er komið að tiltekt. Tökum frekar þátt í henni heldur en að streitast á móti og gerum betra Ísland!

Kolla (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 391672

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband