Leita í fréttum mbl.is

Skýra kosti

Það er auðvitað ekkert á móti því að einhverjir stjórnmálaflokkar ákveði fyrir kosningar að skuldbinda sig til að starfa eingöngu með einhverjum öðrum stjórnmálaflokki eftir kosningar. Hætt er hins vegar við að "stjórnarmyndunarviðræður" verði þá að fara fram fyrir kosningar því kjósendur verða að vita hvaða málum sú ríkisstjórn sem þeir þá í raun væru að kjósa yfir sig ætlaði að berjast fyrir.

Ef VG og Samfylkingin, sem nú eru saman í minnihlutastjórn, ætla þannig að binda sig við áframhaldandi stjórnarsamstarf eftir kosningar þá verða þessir flokkar skýrt að segja hvað þeir ætla að gera að kosningum loknum.

 Það tók stjórnina sem nú situr mjög marga daga að semja um stjórnarsáttmála fyrir 80 daga ríkisstjórn. Hætt er við að mikil vinna og tími fari í að semja um stjórnarsáttmála til fjögurra ára. Ætli málið eigi ekki eftir að stranda á því að fyrirfram treysta þessir flokkar sér ekki til að sýna kjósendum á spilin hjá sér?

En það verða flokkarnir að gera, ætli þeir að bjóða fram undir þeim formerkjum sem þingmaðurinn leggur til. Annað er ekki hægt að bjóða kjósendum upp á.


mbl.is Samfylkingin gangi bundin til kosninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Það er góð hugmynd hjá Steinunni Óskarsdóttur, að nærsta kjörtímabil verði Samfylking og VG bundin saman á höndum og fótum. Þau ættu einnig að binda fyrir augu sér og nef. Þá þurfa þau ekki að hafa fyrir að semja stjórnarsáttmála, enda myndi þeim varla endast kjörtímabilið til slíks.

Komi til samstarfs þessara flokka eftir kosningar, munu Vinstri grænir verða að kok-gleypa öll loforð um sjálfstæði Íslands. Eins og í stjórn Geirs, mun Samfylkingin byrja strax að vinna að ESB-aðild, þótt slíkt verði ekki nefnt í stjórnarsáttmála. Eru kjósendur VG tilbúnir til slíkrar niðurlægingar ?

Hafa menn tekið eftir skipum Jóhönnu í peningastefnuráð Seðlabankans ? Hún skipaði Anne Sibert og Gylfa Zoega, sem bæði eru á mála hjá Evrópusambandinu. Hagsmunum hverra halda menn að þau muni þjóna, Íslands eða ESB ? Ábyrgð VG er mikil að leiða Samfylkingar-úlfana inn í hænsnakofann við Kalkofnsveg.

Loftur Altice Þorsteinsson, 4.3.2009 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 391684

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband