Færsluflokkur: Bloggar
Fimmtudagur, 14. maí 2009
Slæmar fréttir
Það er ekki mikil uppörvun fyrir okkur Íslendinga í boðskap umboðsmanns AGS hér á landi. Hann segir að gjaldeyrishöftin séu komin til að vera og verði hér í a.m.k. nokkur ár. Þá verður ekki betur séð en að umbi AGS sé að boða að engin lækkun stýrivaxta verði í byrjun júní nk. Við vaxtalækkunina niður í 12,5% fyrr í þessum mánuði var gefið í skyn að hraustleg lækkun yrði í næsta mánuði. Mér sýnist að miðað við þessi orð umba AGS megi afskrifa þær væntingar.
Á sama tíma boðar ríkisstjórnin skattahækkanir og engar tillögur um frekari aðstoð til heimila og fyrirtækja eru í stjórnarsáttmálanum. Þetta eru sæmar fréttir og auka ekki bjartsýni á framhaldið.
![]() |
Þaulsetin gjaldeyrishöft |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 14. maí 2009
Trúðu þeir að þetta myndi reddast?
Fleiri og fleiri vísbendingar hafa komið fram um það að yfirvöldum og eftirlitsstofnunum hafi verið ljóst strax í byrjun árs 2008 að bankarnir hér, einn eða fleiri, væru komnir í eða stefndu í þá stöðu að geta hrunið. Af fréttinni má ráða að einhvers konar viðbragðsáætlun var um það hvernig bregðast skyldi við hruni.
Hin brennandi spurning er: Til hvaða aðgerða var gripið af hálfu þessara aðila til að reyna að afstýra hruni? Bjuggu yfirvöld virkilega yfir slíkri vitneskju, gerðu ekkert til að afstýra því sem gerst gat heldur biðu bara og treystu því að þetta myndi reddast, af sjálfu sér?
![]() |
Áætlun ef bankar færu í þrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 13. maí 2009
Bindisskylda og ávörp
Ekki fæ ég séð að mikil ástæða sé til að gera verður útaf afnámi bindisskyldu. En ég velti því fyrir mér um leið hvort Borgarahreyfingin hafi sóst eftir því að komast á Alþingi til að afnema bindisskyldu og hefðbundin ávörp úr ræðustól Alþingis.
Um klæðaburð alþingismanna gilda reglur. Þær eru þó að ýmsu leyti strangari fyrir karlmenn, jakkaföt og bindi ef ég man rétt. Konurnar hafa verulega meira svigrúm. Með afnámi bindisskyldunnar er heldur slakað á kröfum gagnvart körlum, sem verður að teljast eðlilegt og sjálfsagt í ljósi þessu hvað frjálsræði kvenna í klæðaburði er talsvert meira. Mikilvægt er að muna að Þó skyldan hafi verið afnumin er nákvæmlega ekkert sem bannar alþingismönnum að halda áfram að setja upp bindi þegar þeir ganga til skyldustarfa sinna á þingi.
Hvað ávörpin varðar þá felst í þeim að sýna þeim sem ávarpaður er virðingu. Þetta gerum við lögmenn í dómsal. Við ávörpum dómara og við ávörpum lögmann gagnaðila, með sambærilegum ávarpsorðum og gert er í þingsal.
Í venjum af þessu tagi felst ákveðin festa. Festa er eitthvað sem þörf er á á umrótartímum eins og þeim sem við nú göngum í gegnum. Mér finnst því engin ástæða til að afnema ávörpin í þingsal.
![]() |
Þingmenn læra góða siði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 12. maí 2009
Fyrir kosningar
![]() |
Kynna skattahækkun eftir helgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 12. maí 2009
Geta fimm skipst jafnt milli kynja?
![]() |
Karl stendur upp fyrir konu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 12. maí 2009
Hverjir biðja um uppboð?
Af fréttinni má ráða að Tollstjórinn og Reykjavíkurborg séu meðal þeirra sem oftast báðu um þau uppboð sem til umfjöllunar eru.
Tollstjórinn er að innheimta opinber gjöld. Hefur fjármálaráðuneytið engin fyrirmæli gefið um það að lina á innheimtu opinberra gjalda? Á að selja heimilin ofan af þeim sem skulda skatta? Gott væri að fá svör frá fjármálaráðherra um það hvaða reglur gilda hjá undirstofnunum hans og hvort það sé virkilega svo að þeim hafi ekkert verið breytt eftir hrunið.
Vonandi drífa fjölmiðlar í að skoða þetta sem og það hvort Reykjavíkurborg gangi svo hart fram í innheimtu fasteignagjalda að hún selji heimilin ofan af fólki fremur en að gefa kost á samningum eða tímabundinni frystingu.
![]() |
Sex eignir á framhaldsuppboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Þriðjudagur, 12. maí 2009
Kynjahlutföllin
Ég hef furðað mig á því þegar verið er að biðja afsökunar á því að kynjahlutföllin í ríkisstjórninni skuli ekki vera jöfn. Þau eru þannig að af 12 ráðherrum eru sjö karlar og fimm konur. Tveir ráðherrar eru faglega valdir - ein kona og einn karl. Algerlega jöfn kynjahlutföll þar.
Hvor stjórnarflokkanna, VG og Samfylkingin hefur fimm ráðherra. Hjá báðum flokkum endaði valið þannig að ráðherrarnir urðu þrír karlar og tvær konur. Það er eins jöfn skipting og hægt er hjá hvorum flokki. Hún hefði auðvitað getað legið svo að vera þrjár konur og tveir karlar. En hún varð ekki þannig. Við því er ekkert að segja. Og engin ástæða til að skammast yfir því eða biðja á því afsökunar. Enda án efa góðar málefnalegar ástæður fyrir því hjá báðum flokksformönnunum að valið endaði með þeim hætti sem það gerði.
Í ríkisstjórn eru nú fimm konur, líkt og var í minnihlutastjórninni. Ekki minnist ég þess að áður hafi fleiri konur verið í ríkisstjórn. Fjölda kvenna í ríkisstjórninni ber því að fagna og ástæðulaust að gera það með hangandi hendi.
![]() |
Tilmæli til forystunnar um jöfn kynjahlutföll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 11. maí 2009
Sammála umhverfisráðherra
Ég styð umhverfisráðherra heilshugar í því ætlunarverki sínu að afhjúpa þá leynd sem hvílir yfir orkuverði til stóriðju. Ég hef aldrei skilið þörfina á þessari leynd. Er hún fyrir kaupandann eða seljandann? Eða fyrir báða, kaupandann af því að hann veit að hann er að fá gjafaverð og seljandann af því að hann veit að verðið þolir ekki skoðun?
Það eru breyttir tímar - það er krafa um allt upp á borðum. Raforkuverðið til stóriðju líka.
![]() |
Verður að virða umsaminn trúnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 11. maí 2009
Ábyrgð foreldra
Seint mun ég mæla bót reglum um endurgreiðslu kostnaðar foreldra vegna tannlækninga barna. Lögum samkvæmt á hún að vera 75% en þar sem viðmiðunin er ævagömul og löngu úrelt gjaldskrá er hún orðin miklu mun minni, sennilega kringum 50% ef hún nær því. Þannig að það er dýrt að fara með börn til tannlæknis. Um það er ekki deilt.
En þær frásagnir sem við erum nú að fá af tannheilsu barna snúa ekki einvörðungu að þessari hlið málsins, þ.e. hversu vel eða illa hið opinbera tekur þátt í kostnaði vegna tannlækninga. Þær snúa einnig og raunar fyrst og fremst að foreldrum og hvað þeir gera til að hafa tannheilsu barna sinna sem besta. Tennur skemmast ekki af sjálfu sér. Þær skemmast vegna þess að ekki er um þær hirt. Þær skemmast vegna þess að börnum er leyft að borða of mikið af sætindum og drekka of mikið gos og alls kyns safa sem hafa slæm áhrif á tennurnar. Tannburstinn er ekki notaður. Á því ber enginn ábyrgð aðrir en foreldrar.
Ábyrgðin á tannheilsu barna byrjar hjá foreldrum, líkt og öll önnur umönnun barna. Ef til eru foreldrar sem vanrækja svo tannheilsu barna sinna að þau láta tennur barna sinna skemmast fyrir hirðuleysi og gera síðan ekkert í því annað en að gefa börnunum verkjalyf við tannverkjum þá er það barnaverndarmál, eins og prófessorinn bendir réttilega á, og á að meðhöndlast sem slíkt.
Fyrst þurfum við að gera okkur grein fyrir þessum grunnstaðreyndum, svo skulum við ræða um greiðslu fyrir tannlækningar. Og horfast í augu við að það voru mistök að leggja af skólatannlækningar fyrir allmörgum árum síðan. Lækkun greiðslu ríkisins fyrir tannlækningar á sér lengri sögu, eins og ég bloggaði um í kosningabaráttunni 2007.
![]() |
Sofna ekki án verkjalyfja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Mánudagur, 11. maí 2009
Hvernig?
Ekki var hægt að skilja mál fjármálaráðherra á blaðamannafundinum í gær svo að VG ætlaði að lyfta svo mikið sem litla fingri til að tryggja brautargengi á Alþingi þingsályktunartillögu um aðildarviðræður. Þvert á móti var ekki hægt að skilja orð hans á annan veg en þann að þingmenn VG myndu ekki láta nægja að sitja hjá heldur myndu greiða atkvæði gegn tillögunni.
Enda var áberandi misræmi í svörum fjármálaráðherra og forsætisráðherra þegar kom að því að skýra frá því hvaða afleiðingar það hefði fyrir stjórnarsamstarfið yrði tillagan felld. Fjármálaráðherra svaraði skýrt að það hefði engin áhrif. Forsætisráðherra veigraði sér við að svara, í tvígang. Svaraði því einu að hún teldi meirihluta fyrir málinu á Alþingi og meðal þjóðarinnar.
Stjórnarflokkarnir geta ekki tryggt að þessi þingsályktunartillaga nái fram að ganga. Flóknara er það ekki. Framgangur forgangsmáls Samfylkingarinnar er á valdi stjórnarandstöðunnar. Það er sérkennileg byrjun á stjórnarsamstarfi þar sem tjaldað er til heils kjörtímabils.
![]() |
ESB-tillagan nái fram að ganga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
-
addabogga
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
andriheidar
-
gumson
-
audbergur
-
abg
-
axelaxelsson
-
armannkr
-
arniarna
-
asabjorg
-
arh
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
astar
-
kaffi
-
birgir
-
launafolk
-
bjarnimax
-
borgar
-
braskarinn
-
gattin
-
bryndisharalds
-
brandarar
-
carlgranz
-
rustikus
-
deiglan
-
draumur
-
einarbb
-
ekg
-
jaxlinn
-
elinora
-
ellasprella
-
ellyarmanns
-
erla
-
erlaosk
-
erna-h
-
fsfi
-
fhg
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisligislason
-
neytendatalsmadur
-
grazyna
-
gudni-is
-
gelin
-
gudbjorng
-
fasteignir
-
gudfinna
-
lucas
-
gudmundurmagnusson
-
gudrunshil
-
gudruntora
-
gunnaraxel
-
gunnargunn
-
laugardalur
-
gylfithor
-
hallarut
-
heidistrand
-
heidathord
-
jarnskvisan
-
heimirhilmars
-
hehau
-
helgi-sigmunds
-
herdis
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
disdis
-
holmfridurge
-
tulinius
-
idno
-
ingabesta
-
ingisund
-
golli
-
ibb
-
astromix
-
johannalfred
-
stjornun
-
jonmagnusson
-
jonsnae
-
juliusvalsson
-
kolbrunb
-
kristinhrefna
-
lara
-
lotta
-
nytjagardar
-
altice
-
matarbitinn
-
maggaelin
-
martagudjonsdottir
-
mal214
-
morgunbladid
-
olavia
-
olinathorv
-
olofnordal
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
otti
-
publicservant
-
iceland
-
pjeturstefans
-
ragnar73
-
ragnheidurrikhardsdottir
-
ragnhildur
-
rannveigmst
-
runirokk
-
rynir
-
trumal
-
salvor
-
sirrycoach
-
sigurbjorns
-
sv11
-
sighauk
-
sij
-
sigurdurir
-
ohyes
-
sigurdurkari
-
siggisig
-
siggith
-
sigurjonsigurdsson
-
zunzilla
-
sms
-
1301493169
-
stefaniasig
-
stebbifr
-
brv
-
sveinni
-
saethorhelgi
-
thelmaasdisar
-
grasteinn
-
ubk
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
va
-
villidenni
-
thorbjorghelga
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
thoragud
-
thorasig
-
tbs
-
thorhallurheimisson
-
iceberg
-
toddi