Leita í fréttum mbl.is

Hverjir biðja um uppboð?

Af fréttinni má ráða að Tollstjórinn og Reykjavíkurborg séu meðal þeirra sem oftast báðu um þau uppboð sem til umfjöllunar eru.

Tollstjórinn er að innheimta opinber gjöld. Hefur fjármálaráðuneytið engin fyrirmæli gefið um það að lina á innheimtu opinberra gjalda? Á að selja heimilin ofan af þeim sem skulda skatta? Gott væri að fá svör frá fjármálaráðherra um það hvaða reglur gilda hjá undirstofnunum hans og hvort það sé virkilega svo að þeim hafi ekkert verið breytt eftir hrunið.

Vonandi drífa fjölmiðlar í að skoða þetta sem og það hvort Reykjavíkurborg gangi svo hart fram í innheimtu fasteignagjalda að hún selji heimilin ofan af fólki fremur en að gefa kost á samningum eða tímabundinni frystingu.


mbl.is Sex eignir á framhaldsuppboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Guðjónsson

Árið er 2007 hjá Steingrími og Hönnu Birnu.Sem betur fer kom 2008 aldrei til þeirra.

Einar Guðjónsson, 12.5.2009 kl. 09:34

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var opinberum innheimtumönnum gefin fyrirmæli um að lina innheimtuaðgerðir.  Svo virðist sem menn hafi annað hvort ekki fengið skilaboðin eða þá að búið var að reyna "milduaðferðina" og menn ekki talið sig þurfa að bíða lengur.

Samkvæmt reglum ÍLS (og orðum Guðmundur Bjarnasonar) skal sjóðurinn ekki óska eftir nauðungarsölu.  Þetta er því í augljósri mótsögn/andstöðu við það.

Marinó G. Njálsson, 12.5.2009 kl. 09:51

3 Smámynd: Elfur Logadóttir

Mig rámar í fréttir af því um daginn að þegar einn kröfuhafi á eign fari af stað, þá verði fyrri veðréttir að vera með til að gæta sinna hagsmuna. Minnir að það hafi verið Guðmundur hjá Íbúðalánasjóði sem hafi verið að útskýra að það sé bara við þær aðstæður sem ÍLS sé gerðarbeiðandi.

Mig gæti misminnt.

Elfur Logadóttir, 12.5.2009 kl. 10:04

4 Smámynd: Ólafur Tryggvason Þorsteinsson

Ég hef það eftir sýslumanni á höfuðborgarsvæðinu að ekkert hafi verið slakað á í innheimtu vegna þess að ef hann fer ekki fram á uppboð komið aðrir kröfuhafar og "hirði sitt".

Ólafur Tryggvason Þorsteinsson, 12.5.2009 kl. 10:11

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mig undrar þessi tilmæli ráðamanna til stofnana. Þeir þurfa að setja skýrar verklagsreglur sem þessi smbætti verða skylduð til að fara eftir. Svona óljós tilmæli sem stundum komast bara til skila í gegnum fjölmiðlana gera ekkert gagn. OG þó ráðamenn beini tilmælum um hvippinn og hvappinn í gegnum fjölmiðlana þá taka þessar stofnanir ekkert mark á því...SKÝRAR SKRIFLEGAR VERKLAGSREGLUR verða að koma til sem og eftirlit með að þeim sé raunverulega framfylgt.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.5.2009 kl. 11:03

6 Smámynd: Einar Guðjónsson

Skv. frétt Mbl er það Tollstjóri sem biður um framhaldsuppboð.Held að það kunni að vera af því að engin hefur samband og frestir eru að renna út en uppboð þarf að fara fram innan árs frá því fyrst er beðið um það.Einn biður um uppboð en hinir fylgja með sjálfkrafa jafnvel þó þeir vilji fresta.

Einar Guðjónsson, 12.5.2009 kl. 11:56

7 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Elfur, menn geta fylgt eftir án þess að óska eftir sölunni.  Á þessu er munur.

Marinó G. Njálsson, 12.5.2009 kl. 12:03

8 Smámynd: Elfur Logadóttir

Marinó, en er það ekki eins og Einar segir, ef þú fylgir eftir, þá ertu tilgreindur sem einn af gerðarbeiðendum?

Ég verð að viðurkenna að ég hef litla reynslu af aðfarargerða- og gjaldþrotalöggjöfinni, hef hana hvorki persónulega né í mínu námi og á eftir að sitja réttindanámskeiðin þar sem yfir þetta verður farið. Þess vegna verð ég svolítið að stóla á reynslu annarra, en þetta er engu að síður minn skilningur (kannski ég fletti upp viðeigandi atriðum í bókarköflum og lagabálkum í kvöld milli Eurovision laga ;))

Elfur Logadóttir, 12.5.2009 kl. 14:26

9 identicon

Ég vil benda á það að svona innheimtur eiga sér upp undir ársfyrirvara svo þetta er að öllum líkindum ekkert tengt undanförnum stjórnum eða tíðarfarinu. Áður en út í þessar aðgerðir er farið þá er búið að reyna allt annað. Gjaldþrotabeiðnir og uppboð voru líka gerðar í góðæri.

Erla (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 15:28

10 Smámynd: Muddur

Nauðungarsölur eru þvingunaraðgerð til að ýta á skuldara að borga, í mörgum tilfellum geta skuldararnir borgað eitthvað, en gera það ekki nema þeir séu beittir svona aðferðum. Að vísu er raunin sú að það er í mjög fáum tilfellum sem framhaldsuppboðið sjálft fer fram. Tollstjóri er gerðarbeiðandi í mörgum tilfellum, en er sömuleiðis líka virkur í að afturkalla sínar beiðnir ef skuldarar hafa samband og sýna einhvern samningsvilja.

Muddur, 12.5.2009 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 391660

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband