Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010
Sunnudagur, 30. maí 2010
Grín og leikur að tölum
Er Besti flokkurinn grín eða ekki grín? Það kemur í ljós á næstu dögum. Ég sé hins vegar ekki betur en að frambjóðendur hans séu skynsamir einstaklingar með reynslu úr atvinnulífinu. Eru þeir ekki góð viðbót við atvinnustjórnmálamennina sem fyrir sitja?
Borgarstjórinn í Reykjavík hefur að mörgu leyti staðið sig vel síðustu tæpu tvö árin. Hún hefur innleitt ný vinnubrögð sem margir kunna að meta. Hún hefur tryggt að þokkalegur friður hefur verið um borgarmálin. Það eru borgarbúar þakklátir fyrir eftir skrípaleikinn sem þeim var boðið upp á fyrri hluta kjörtímabilsins þegar þrír ef ekki fjórir borgarstjórar voru á launum um hríð.
Viðbrögð borgarstjórans við kosningaúrslitunum ollu því örugglega fleirum en mér vonbrigðum. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík vann engan sigur í borgarstjórnarkosningunum í gær, ekki einu sinni varnarsigur. Staðreyndin er að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík fékk 20.006 atkvæði. Það er 7.817 atkvæðum færra en flokkurinn fékk í borgarstjórnarkosningunum 2006. Vissulega eru það 4.287 fleiri atkvæði en flokkurinn fékk samtals í báðum Reykjavíkurkjördæmunum í alþingiskosningunum 2009. En er það boðlegt að bera saman borgarstjórnarkosningar og alþingiskosningar í Reykjavík í ljósi áratugasérstöðu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík? Það er einnig fyrir neðan virðingu stjórnmálamanns að segjast hafa unnið skoðanakannanir.
Viðbrögð annarra oddvita fjórflokksins í Reykjavík voru litlu skárri. Oddviti Samfylkingarinnar virtist ekki vita hvaðan á sig stóð veðrið. Oddviti Vinstri grænna taldi það ósanngjarnt að að maður nr. 2 skyldi ekki ná inn. Hann hefði unnið að svo mörgum góðum málum fyrir Reykjavík. Sjálf taldi hún þó mjög mikilvægt í forvali Vinstri grænna að fella hann úr fyrsta sætinu. Oddviti Framsóknarflokksins var næst því að halda haus og tókst að slá á létta strengi. Hann fékk plús fyrir það.
Oddvitar fjórflokksins á landsvísu virtust litlu skárri þegar við þá var talað. Afneitunin algjör. Ekki var að heyra að nokkur hefði tapað. Það eru nákvæmlega viðbrögð af þessu tagi sem kjósendur vilja ekki láta bjóða sér.
Besti flokkurinn stærstur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 26. maí 2010
Skiljanlegt
Reykvíkingar hafa haft fjóra borgarstjóra á því kjörtímabili sem er að líða, fjóra meirihluta. Allt virðist þó hafa gengið eðlilega fyrir sig í borginni. Grunnskólarnir, leikskólarnir, öll þjónustan sem Reykjavík rekur, hefur þrátt fyrir þetta haldið áfram. Það virðist engu skipta hvaða skipstjóri er í brúnni í Reykjavík. Enda er öflugt og gott embættismannakerfi í Reykjavík. Þetta sjá reykvískir kjósendur og draga sínar ályktanir. Reykvíkingar treysta ekki lengur fjórflokknum. Reykvíkingar virðast tilbúnir til að gefa nýjum og óþekktum flokki tækifæri. Enda bendir reynslan til að þessi nýi flokkur geti varla staðið sig verr í Reykjavík en fjórflokkurinn hefur gert síðustu fjögur árin.
Vissulega spila landsmálin inn í. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn eru rúnir trausti og virðist sem illa ætli að ganga fyrir þá að endurheimta það traust. Samfylkingin og Vinstri grænir hafa valdið landsmönnum miklum vonbrigðum. En sá fáránleiki sem borgarfulltrúar leyfðu að gerast í borgarmálunum síðustu fjögur árin er stærsta skýringin á þeirri stöðu sem upp er komin í Reykjavík. Það þýðir ekkert fyrir borgarfulltrúa fjórflokksins að kenna einhverjum öðrum um þetta. Þeim tókst þetta allt saman sjálfum.
Mikið forskot Besta flokksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 392370
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
- addabogga
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- andriheidar
- gumson
- audbergur
- abg
- axelaxelsson
- armannkr
- arniarna
- asabjorg
- arh
- aslaugfridriks
- astamoller
- astar
- kaffi
- birgir
- launafolk
- bjarnimax
- borgar
- braskarinn
- gattin
- bryndisharalds
- brandarar
- carlgranz
- rustikus
- deiglan
- draumur
- einarbb
- ekg
- jaxlinn
- elinora
- ellasprella
- ellyarmanns
- erla
- erlaosk
- erna-h
- fsfi
- fhg
- gerdurpalma112
- gisliivars
- gisligislason
- neytendatalsmadur
- grazyna
- gudni-is
- gelin
- gudbjorng
- fasteignir
- gudfinna
- lucas
- gudmundurmagnusson
- gudrunshil
- gudruntora
- gunnaraxel
- gunnargunn
- laugardalur
- gylfithor
- hallarut
- heidistrand
- heidathord
- jarnskvisan
- heimirhilmars
- hehau
- helgi-sigmunds
- herdis
- himmalingur
- hjaltisig
- disdis
- holmfridurge
- tulinius
- idno
- ingabesta
- ingisund
- golli
- ibb
- astromix
- johannalfred
- stjornun
- jonmagnusson
- jonsnae
- juliusvalsson
- kolbrunb
- kristinhrefna
- lara
- lotta
- nytjagardar
- altice
- matarbitinn
- maggaelin
- martagudjonsdottir
- mal214
- morgunbladid
- olavia
- olinathorv
- olofnordal
- omarbjarki
- huldumenn
- otti
- publicservant
- iceland
- pjeturstefans
- ragnar73
- ragnheidurrikhardsdottir
- ragnhildur
- rannveigmst
- runirokk
- rynir
- trumal
- salvor
- sirrycoach
- sigurbjorns
- sv11
- sighauk
- sij
- sigurdurir
- ohyes
- sigurdurkari
- siggisig
- siggith
- sigurjonsigurdsson
- zunzilla
- sms
- 1301493169
- stefaniasig
- stebbifr
- brv
- sveinni
- saethorhelgi
- thelmaasdisar
- grasteinn
- ubk
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- va
- villidenni
- thorbjorghelga
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- thoragud
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- iceberg
- toddi