Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009
Miðvikudagur, 4. febrúar 2009
Að læra af ...
![]() |
Obama: Ég klúðraði þessu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 3. febrúar 2009
Skoða á næstu dögum og vikum ...
Það er spurning hvort nýr heilbrigðisráðherra átti sig á að hann hefur ekki nema u.þ.b. 10 vikur í embætti. En hann er kannski svona viss um að hann verði í þessu sama ráðherraembætti eftir kosningar. En kannski ætlar hann ekki að gera mikið á þeim stutta tíma sem ríkisstjórnin starfar, enda ekki orð um þau í verkefnaskránni, ef ég man rétt. Niðurskurðurinn sem gera þarf í heilbrigðismálum er risavaxinn og skiljanlegt að nýr heilbrigðisráðherra vilji ekki þá ráðast í hann fyrr en að kosningum loknum, lánist honum að halda embættinu.
Komugjöld á spítala, án þess að ég ætli eitthvað sérstaklega að réttlæta þau, eru hins vegar ekki pólitísk. Fyrir þeim voru gefnar skynsamlegar skýringar, m.a. um það að ef þau yrðu ekki sett á þá heldi áfram pressa á að leggja fólk inn í smærri aðgerðir í staðinn fyrir að gera þær án innlagnar. Í öðru tilvikinu er ekki borgað - og breyting nýs heilbrigðisráðherra tryggir að svo verði áfram. Í hinu tilvikinu er borgað.
Viljum við ekki að þjónusta sé veitt eins hagkvæmt og hægt er? Til hvers að leggja fólk inn á sjúkrahús, eingöngu útaf greiðslureglum?
![]() |
Hvorki valdboð né komugjöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 3. febrúar 2009
Einelti?
Yfirlýsingar nýs forsætisráðherra hljóta að vera pólitískar. En að kalla þær einelti er á skjön við það almenna viðhorf sem virðist ríkja gagnvart bankastjórn Seðlabankans. Það er sama hvernig á það er litið þá virðast yfirlýsingar nýs forsætisráðherra um nauðsyn breytinga á bankastjórn Seðlabankans eiga sterkan samhljóm við raddir í þjóðfélaginu, sbr. t.d. frétt á mbl.is í dag um viðhorfskönnun Viðskiptaráðsins. Þar kemur fram að 90% aðspurðra töldu breytingar í Seðlabanka nauðsynlegar. Erlendir miðlar hafa margsinnis bent á það að til að hér tækist að endurbyggja traust eftir bankahrunið þyrfti að skipta um bankastjórn í Seðlabankanum. Fráleitt er því að kalla þessar breytingar einelti. En pólitískar eru þær.
Viðbót:
Segir þetta ekki allt sem segja þarf?
![]() |
Yfirlýsingar jaðra við einelti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 4.2.2009 kl. 08:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 3. febrúar 2009
Ríkisstjórnin sópar ...
Það er ekki hægt að segja annað en að ný ríkisstjórn gangi hratt fram í sumum þeirra breytinga sem boðaðar voru. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvernig bankastjórn Seðlabankans bregst við tilmælum um að víkja áður en skipulagsbreytingar sem gera á, ganga í gildi. Það hefur tæpast farið fram hjá bankastjórn Seðlabankans að hún hefur, með réttu eða röngu, lítilla vinsælda notið og einskis trausts, meðal þjóðarinnar. Ákaft var kallað eftir því, svo vikum skipti, að bankastjórnin axlaði ábyrgð. Ekki sá bankastjórnin ástæðu til að bregðast við því kalli, t.d. með því að hafa frumkvæði að því að víkja. Þvert á móti varð þráseta bankastjórnarinnar meðal þess sem átti hvað stærstan þátt í að fella ríkisstjórn Geirs H. Haarde. Í ljósi þess sem á undan er gengið er engin ástæða til að ætla annað að bankastjórnin geri þjóðinni eins dýrt og mögulegt er að hún víki og nýti sér til hins ýtrasta allan þann rétt sem hún telur sig eiga í því efni.
Viðbót:
Það er oft gott að rifja upp söguna ...
![]() |
Jóhanna og Davíð ræddu saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 4.2.2009 kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 2. febrúar 2009
Athyglisverðar ....
![]() |
Dorrit: Ísland verði svalari útgáfa af Dubai |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 2. febrúar 2009
Stjórnarsáttmálinn ...
"Ríkisstjórn fólksins í landinu" kallar nýskipaður forsætisráðherra þá ríkisstjórn sem tekin er við völdum. Það á eftir að koma í ljós.
Ýmislegt athyglisvert er í nýjum stjórnarsáttmála, sem stjórnarflokkarnir kalla verkefnaskrá (af hverju þarf alltaf að vera að smíða nýyrði í staðinn fyrir að nota gömul og góð hugtök?). Þar er líka ýmislegt sem þarfnast frekari skýringa. Þess er að vænta að þær muni koma:
- Fylgja á til hins ítrasta samkomulaginu við AGS. Það er fagnaðarefni, en VG talaði talsvert gegn þessu samkomulagi í aðdraganda stjórnarmyndunarinnar.
- Setja á siðareglur í stjórnarráðinu. Gott mál.
- Afnema á eftirlaunalögin. Held að öllum þyki það ágætismál líka.
- Setja á nýjar reglur um skipan dómara. Ekki geri ég athugasemdir við það. Hef lengi talið að breyta megi og bæta núverandi fyrirkomulag.
- Stjórnlagaþing finnst mér fásinna - kostnaðarsamt og ekki líklegt til árangurs. Í endurskoðun stjórnarskrárinnar á að setja röska einstaklinga og síðan er hægt að halda opna fundi um þau drög sem þannig verða til.
- Vel líst mér á að breyta kosningalögum þannig að möguleikar á persónukjöri verði auknir.
- Endurskipulagningin á stjórnsýslunni - ýmislegt athyglisvert þar. Spurning er hvað þýðir að gera eigi breytingar á yfirstjórn einstakra ráðuneyta? Á að gera starfslokasamninga við ráðuneytisstjóra?
- Kyrrsetning eigna - það virðist vera búið að útvatna það nægilega til að óskiljanlegt er orðið.
- Markvissar aðgerðir til að bregðast við fjárhagslegum vanda heimilanna í landinu í virku samráði við hagsmunaaðila. Nefnd er lagasetning sem grípa á til. En annars virðist lítið hönd á festandi varðandi hvað gera á í þágu heimilanna. Segist stjórnin þó ætla að slá skjaldborg um heimilin. Æskilegt hefði verið að hér hefðu menn verið nákvæmari í framsetningu.
- Aðgerðir í þágu atvinnulífs - lítið hönd á festandi þar líka.
Það er hvergi minnst á heilbrigðismál. Það er athyglisvert út af fyrir sig.
En af "verkefnaskránni" má ráða að mikið á að gera á þeim skamma tíma sem til stefnu er. Forsætisráðherra ætlar greinilega að halda ráðherrum sínum og starfsmönnum ráðuneytanna í vinnunni meira og minna allan sólarhringinn fram að kosningum.
![]() |
Slá skjaldborg um heimilin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 2. febrúar 2009
Dapurlegt ...
![]() |
Alþingishúsið enn laskað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 1. febrúar 2009
Fátt sem kemur á óvart ... og þó
Það óvænta í ráðherraliði nýrrar ríkisstjórnar er dómsmálaráðherrann. Það er nánast óskiljanlegt að skipaður skrifstofustjóri og staðgengill ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneyti skuli gerður að dómsmálaráðherra. Í því felst enginn dómur um einstaklinginn sem um ræðir. Hann þekki ég af góðu einu og hann hefur verið hinn mætasti embættismaður.
Skipunin í embætti dómsmálaráðherra segir kannski mest um það hvílíkt vantraust bæði Samfylkingin og VG bera til þeirra lögfræðinga sem eru í þingmannaliði beggja flokkanna. Og svo auðvitað bætist við kenningin um að í stólinn þurfti utanþingsmann til að verma hann fyrir Framsóknarmanninn sem við honum á að taka eftir kosningar.
Það ánægjulega við ríkisstjórnina er auðvitað að í fyrsta sinn í sögunni er kynjahlutfall í ríkisstjórn jafnt. Því fagna allir jafnréttissinnar. Og svo er það auðvitað sérstaklega ánægjulegt að forsætisráðherraembættið skuli í fyrsta sinn í sögunni falla konu í skaut. Hvorutveggja eru tímamót í íslenskri jafnréttisbaráttu.
![]() |
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 1. febrúar 2009
Besta heilbrigðiskerfi í heimi?
Viðtalið við Atla í Morgunblaðinu í dag er í senn áhrifamikið og ógnvekjandi. Hann lýsir þrautagöngu milli lækna sem aldrei fundu skýringar á verkjum hans. Hann lýsir því að þegar betur var að gáð sást krabbameinsæxlið á mynd, en mönnum yfirsást það, á þeim tíma sem myndin var skoðuð.
Á hátíðarstundum státum við okkur af því að vera með besa heilbrigðiskerfi í heimi. Við eigum gott heilbrigðiskerfi og vel menntaða heilbrigðisstarfsmenn. En kerfið er langt frá því að vera fullkomið, enda eru engin kerfi fullkomin. í kerfinu er ákveðin tilhneiging til að hlusta ekki nægilega vel á sjúklinga.
Sem lögmaður fæ ég oft til mín sjúklinga sem lent hafa í hremmingum í samskiptum sínum við heilbrigðiskerfið. Þeir velta fyrir sér hvort þeir eigi einhvern bótarétt. Það er ótrúlegur samhljómur í meginkvörtunum þeirra sjúklinga sem til mín leita: Þeir upplifðu samskipti sín og heilbrigðiskerfisins þannig að á þá væri ekki nægilega hlustað og það sem ennþá verra var. Þeir upplifðu það svo að við þá væri ekki talað, sérstaklega eftir að ljóst var að eitthvað hafði farið úrskeiðis í meðferðinni.
Oftar en ekki kemur í ljós að sjúklingunum var ekki einu sinni gerð grein fyrir því hvaða leiðir þeir ættu gagnvart bótum. Settum við þó lög árið 2000 um sjúklingatryggingu gagngert til að auðvelda sjúklingum að sækja bætur, ef meðferð fer úrskeiðis umfram það sem vænta mátti og umfram það sem sanngjarnt er að sjúklingur beri bótalaust. Það er gott að heyra að reynsla Atla hefur leitt af sér breytt samskipti meðal heilbrigðisstarfsmanna. Vonandi leiðir hún líka af sér breytt samskipti heilbrigðisstarfsmanna og sjúklinga.
Atli á miklar þakkir skildar fyrir að skýra opinberlega frá reynslu sinni með þeim hætti sem hann gerir í þessu viðtali. Hann er sönn hetja.
![]() |
Martröð varð að veruleika |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 392542
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
-
addabogga
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
andriheidar
-
gumson
-
audbergur
-
abg
-
axelaxelsson
-
armannkr
-
arniarna
-
asabjorg
-
arh
-
aslaugfridriks
-
astamoller
-
astar
-
kaffi
-
birgir
-
launafolk
-
bjarnimax
-
borgar
-
braskarinn
-
gattin
-
bryndisharalds
-
brandarar
-
carlgranz
-
rustikus
-
deiglan
-
draumur
-
einarbb
-
ekg
-
jaxlinn
-
elinora
-
ellasprella
-
ellyarmanns
-
erla
-
erlaosk
-
erna-h
-
fsfi
-
fhg
-
gerdurpalma112
-
gisliivars
-
gisligislason
-
neytendatalsmadur
-
grazyna
-
gudni-is
-
gelin
-
gudbjorng
-
fasteignir
-
gudfinna
-
lucas
-
gudmundurmagnusson
-
gudrunshil
-
gudruntora
-
gunnaraxel
-
gunnargunn
-
laugardalur
-
gylfithor
-
hallarut
-
heidistrand
-
heidathord
-
jarnskvisan
-
heimirhilmars
-
hehau
-
helgi-sigmunds
-
herdis
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
disdis
-
holmfridurge
-
tulinius
-
idno
-
ingabesta
-
ingisund
-
golli
-
ibb
-
astromix
-
johannalfred
-
stjornun
-
jonmagnusson
-
jonsnae
-
juliusvalsson
-
kolbrunb
-
kristinhrefna
-
lara
-
lotta
-
nytjagardar
-
altice
-
matarbitinn
-
maggaelin
-
martagudjonsdottir
-
mal214
-
morgunbladid
-
olavia
-
olinathorv
-
olofnordal
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
otti
-
publicservant
-
iceland
-
pjeturstefans
-
ragnar73
-
ragnheidurrikhardsdottir
-
ragnhildur
-
rannveigmst
-
runirokk
-
rynir
-
trumal
-
salvor
-
sirrycoach
-
sigurbjorns
-
sv11
-
sighauk
-
sij
-
sigurdurir
-
ohyes
-
sigurdurkari
-
siggisig
-
siggith
-
sigurjonsigurdsson
-
zunzilla
-
sms
-
1301493169
-
stefaniasig
-
stebbifr
-
brv
-
sveinni
-
saethorhelgi
-
thelmaasdisar
-
grasteinn
-
ubk
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
va
-
villidenni
-
thorbjorghelga
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
thoragud
-
thorasig
-
tbs
-
thorhallurheimisson
-
iceberg
-
toddi