Leita í fréttum mbl.is

Skýringar

Þarf ekki að fá á hreint hver ræður vaxtastefnunni á Íslandi? Það er sagt að það geri einhver peningastefnunefnd. Einn fulltrúi í henni, seðlabankastjórinn norski, sagði við síðustu vaxtalækkun að svigrúm væri til talsverðrar lækkunar í júní. Með því kynti seðlabankastjóri undir væntingar um duglega vaxtalækkun í júní. Og vaxtalækkun þurfum við. Hið háa vaxtastig er að knésetja fólk og fyrirtæki.

Nú kemur umbi AGS og segir að frekari vaxtalækkanir geti ekki orðið því þá muni sá stöðugleiki sem sé að nást fara í uppnám. Við erum bundin samkomulagi við AGS um ákveðna þætti efnahagsstjórnarinnar. Þegar umbi AGS lýsir jafnafdráttarlaust og hann gerði i gær afstöðu AGS (ekki var hann að lýsa persónulegri afstöðu sinni eða hvað?) þá hlýtur að vakna spurning um það hver ræður hér.

Efnahagsráðherra gefur í skyn að við sitjum ekki undir tilskipunum. En eftir stendur spurningin: Hvað megum við, hvað getum við, miðað við þá samninga sem við höfum gert við AGS? Krefja þarf skýringa fjármálaráðherra og efnhagsráðherra á því.


mbl.is Sitjum ekki undir tilskipunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Dögg, þú vilt krefja fjármálaráðherrann og efnahagsráðherrann skýringa varðandi samningin við AGS.

Ert þú þá ekki að meina þá Árna M. M., sem var fjármálaráðherra og Geir H.H. sem var ráðherra efnahagsmála þegar þessi samningur var gerður?

Ekki trúi ég að þú sért að reyna að gera þá sem síðar tóku við þessum embættum ábyrga fyrir gjörð forvera sinna, eða hvað?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.5.2009 kl. 08:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 391631

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband