Leita í fréttum mbl.is

Meira að segja ASÍ ....

er orðið þreytt á aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar. Hefur þó umburðarlyndi þeirra samtaka löngum verið meira gagnvart vinstri stjórnum en öðrum. Segir þetta ekki allt sem segja þarf um þá verklausu ríkisstjórn sem kjósendur gáfu meirihlutastuðning í kosningunum fyrir röskri viku? Stjórnarsáttmáli virðist henni ofviða að semja. Lá þó fyrir að saman ætluðu stjórnarflokkarnir að vinna eftir kosningar og gengu nánast bundnir að því leyti til kosninganna. Hrokafull tilsvör einstakra ráðherra gagnvart fjölskyldum sem sjá enga leið útúr skuldastöðu sinni vekur reiði um allt þjóðfélagið.

Merkilegast finnst mér þó að lesa eftir forseta ASÍ að ríkisstjórnin skuli ekkert hafa við ASÍ talað síðan í febrúar. Það hefði einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar að vinstri ríkisstjórn ræddi ekki svo mánuðum skipti við ASÍ og það á krepputímum.


mbl.is ASÍ vill bráðaaðgerðir á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Með & á móti ríkisstjórnin á sem betur fer eftir að sitja stutt.  Kannski að Gylfi hafi aðeins VAKNAÐ til lífsins eftir að fólkið "púaði á hann" er hann flutti hátíðisræðu 1. maí.....  Það sýnir vissulega hversu ILLA er komið fyrir okkar þjóð þegar þessi maður vaknar til lífs, þá er rétti tíminn að stíga frá borði og yfirgefa þjóðarskútuna í annað sinn á einu ári..!

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson, 6.5.2009 kl. 03:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 391663

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband