Leita í fréttum mbl.is

Yfirlýsing vegna athugasemdar fjárfestingabankans

Vegna athugasemdar fjárfestingabankans viđ fréttatilkynningu minni um frambođ mitt í 2. - 4. sćti hjá Sjálfstćđisflokknum í Reykjavík hef ég sent eftirfarandi yfirlýsingu til fjölmiđla:

Saga Capital fjárfestingabanki hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttatilkynningar frá mér um frambođ mitt í 2.- 4. sćti í prófkjöri Sjálfstćđisflokksins í Reykjavík. Ţar er fullyrt ađ bankinn sé ekki og hafi aldrei veriđ til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Vegna ţessa vil ég upplýsa eftirfarandi:

Hinn 10. febrúar sl. lagđi ríkissaksóknari fyrir efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra ađ hefja rannsókn á sölu ţriggja stjórnarmanna í SPRON međ stofnfjárbréf međ hliđsjón af 248. gr. almennra hegningarlaga. Ţessi lagagrein fjallar um fjársvik.

Fjárfestingabankinn hafđi milligöngu um sölu stofnfjárbréfa í eigu fyrirtćkisins Sundagarđa ehf., sem er í eigu eins ţessara stjórnarmanna sem nú sćtir rannsókn. Í ljósi ţessarar rannsókn gefur auga leiđ ađ ađkoma fjárfestingabankans ađ ţeirri sölu er undir rannsókn efnahagsbrotadeildar. Ţá kćrđi ég og sonur minn forstjóra fjárfestingabankans nýlega til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra fyrir brot á 248. gr. almennra hegningarlaga eđa hlutdeild í slíku broti, fyrir umbođssvik skv. 249. gr. almennra hegningarlaga og fyrir margvísleg brot á lögum um verđbréfaviđskipti nr. 33/2003 og lög um fjármálafyrirtćki nr. 161/2002.

Ađdragandi málsins er sá ađ eftir ađ stjórn SPRON ákvađ 17. júlí 2007 ađ leita samţykkis stofnfjáreigenda fyrir ţví ađ breyta SPRON í hlutafélag og skrá hlutabréfin á markađi seldu ţrír stjórnarmenn stofnfjárbréf í SPRON. Ţessi viđskipti voru ekki tilkynnt og ţess gćtt ađ leyna ţeim fyrir stofnfjáreigendum. Einkahlutafélag í minni eigu keypti 20. júlí 2007 stofnfjárbréf af umrćddum fjárfestingabanka, bréf sem síđar kom í ljós ađ fjárfestingabankinn hafđi keypt nánast á sama augnabliki af Sundagörđum ehf, fyrirtćki í eigu stjórnarmanns í SPRON.

Ţegar í ljós kom í byrjun nóvember 2007 ađ stjórnarmađur í SPRON í nánum tengslum viđ fjárfestingarbankann var upphaflegur seljandi stofnfjárbréfanna rifti félag mitt kaupunum og síđan hafa stađiđ málaferli milli félags míns og fjárfestingabankans.

Ađalmeđferđ í málinu var 25. febrúar sl. í Hérađsdómi Reykjavíkur. Í vitnisburđi forstjóra fjárfestingabankans fyrir dómi kom fram ađ stjórnarmađurinn í SPRON óskađi ţess 18. júlí 2007, daginn eftir áđurnefndan stjórnarfund, ađ fjárfestingabankinn keypti af fyrirtćki sínu, Sundagörđum ehf., öll stofnfjárbréf í eigu fyrirtćkisins í SPRON. Sagđist forstjórinn hafa ráđiđ stjórnarmanninum frá ađ selja öll stofnfjárbréf sín, en niđurstađan varđ sú ađ hann seldi fyrir um 2 milljarđa króna. Ţetta gerđi hann hafandi ađgang ađ upplýsingum, m.a. um ađferđir og forsendur í verđmati Capacent, umfram ţađ sem markađurinn vissi. Hann lét nćgja ađ afla heimildar regluvarđar SPRON en tilkynnti öđru leyti ekki um ţessi viđskipti, sem voru stađfest á stjórnarfundi SPRON nokkrum dögum síđar. Í vitnisburđi forstjórans kom fram ađ frá endanlegu samkomulagi viđ stjórnarmanninn í SPRON var ekki gengiđ fyrr en eftir ađ forstjórinn sjálfur hafđi frumkvćđi ađ ţví ađ bjóđa félagi mínu umtalsvert magn stofnfjárbréfa til kaups og lána fyrir öllu sem keypt yrđi. Eins og áđur segir er umrćddur stjórnarmađur í SPRON eigandi fyrirtćkisins Sundagarđar ehf. sem var og er 2. stćrsti eigandi fjárfestingabankans og situr mađurinn nú í stjórn fjárfestingarbankans.

Af ţessu má vera ljóst ađ stjórnarmađur í fjárfestingabankanum og nćst stćrsti eigandi bankans sćtir nú lögreglurannsókn ađ fyrirlagi ríkissaksóknara vegna gruns um fjársvik. Forstjóri fjárfestingarbankans hefur veriđ kćrđur til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra vegna meintra brota á almennum hegningarlögum, lögum um verđbréfaviđskipti og lögum um fjármálafyrirtćki.

Dögg Pálsdóttir, 4. mars 2009

 


mbl.is Segja enga rannsókn í gangi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Júlí 2025
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband