Miðvikudagur, 18. febrúar 2009
Ámælisvert?
Það er margt að á Íslandi. Við getum þó verið þakklát fyrir það að hér hefur enginn áhuga á því hvort við göngum til náða nakin eða í náttfötum. Enda er það óáhugavert og vandséð að öðrum komi það við. Það er makalaust að klæðaburður í rúminu geti orðið hápólitískt mál í nokkru landi. Enn makalausara er að stjórnmálamaður sem verður uppvís að því að sofa nakinn telji sig þurfa að bjóðast til að segja af sér. Að axla pólitíska ábyrgð öðlast nýja merkingu við lestur þessarar fréttar.
Býðst til að segja af sér vegna nektarmynda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
- addabogga
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- andriheidar
- gumson
- audbergur
- abg
- axelaxelsson
- armannkr
- arniarna
- asabjorg
- arh
- aslaugfridriks
- astamoller
- astar
- kaffi
- birgir
- launafolk
- bjarnimax
- borgar
- braskarinn
- gattin
- bryndisharalds
- brandarar
- carlgranz
- rustikus
- deiglan
- draumur
- einarbb
- ekg
- jaxlinn
- elinora
- ellasprella
- ellyarmanns
- erla
- erlaosk
- erna-h
- fsfi
- fhg
- gerdurpalma112
- gisliivars
- gisligislason
- neytendatalsmadur
- grazyna
- gudni-is
- gelin
- gudbjorng
- fasteignir
- gudfinna
- lucas
- gudmundurmagnusson
- gudrunshil
- gudruntora
- gunnaraxel
- gunnargunn
- laugardalur
- gylfithor
- hallarut
- heidistrand
- heidathord
- jarnskvisan
- heimirhilmars
- hehau
- helgi-sigmunds
- herdis
- himmalingur
- hjaltisig
- disdis
- holmfridurge
- tulinius
- idno
- ingabesta
- ingisund
- golli
- ibb
- astromix
- johannalfred
- stjornun
- jonmagnusson
- jonsnae
- juliusvalsson
- kolbrunb
- kristinhrefna
- lara
- lotta
- nytjagardar
- altice
- matarbitinn
- maggaelin
- martagudjonsdottir
- mal214
- morgunbladid
- olavia
- olinathorv
- olofnordal
- omarbjarki
- huldumenn
- otti
- publicservant
- iceland
- pjeturstefans
- ragnar73
- ragnheidurrikhardsdottir
- ragnhildur
- rannveigmst
- runirokk
- rynir
- trumal
- salvor
- sirrycoach
- sigurbjorns
- sv11
- sighauk
- sij
- sigurdurir
- ohyes
- sigurdurkari
- siggisig
- siggith
- sigurjonsigurdsson
- zunzilla
- sms
- 1301493169
- stefaniasig
- stebbifr
- brv
- sveinni
- saethorhelgi
- thelmaasdisar
- grasteinn
- ubk
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- va
- villidenni
- thorbjorghelga
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- thoragud
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- iceberg
- toddi
Athugasemdir
Þá er það spurningin með Íslenska stjórnmálamenn. Eru þeir í náttfötum og ef ekki þá er kannski komin ástæða fyrir afsögnum þó að ekki væri nema fyrir það þó svo að allt annað sé fyrirgefið.
Sæmundur Ágúst Óskarsson, 18.2.2009 kl. 10:29
Þessi frétt frá Malasíu bendir til að sú aðferð sem lýst er til að koma pólitískum andstæðing á kné, er vægast sagt á ansi lágu plani. Ekki kemur fram hvort myndir hafi hugsanlega verið falsaðar en tiltölulega auðvelt mun það vera. Spurning hvort þar í landi séu hliðstæð ákvæði og er í flestum stjórnarskrám um að heimilið sé friðheilagt og persónufrelsi sé virt.
Að draga saman óskyld mál sér til framdráttar hefur aldrei þótt góður né vandaður málflutningur.
Kannski að þroski og hæfileiki að virða mannréttindi annarra sé kannski stutt kominn þar eystra.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 18.2.2009 kl. 11:10
Málið snýst fyrst og fremst um þann "glæp" hennar að leyfa karlmanni sem ekki er eiginmaður hennar að gista hjá sér!
Myndirnar sanna að svo hafi verið, en vissulega var nektin olía á eldinn en er ekki aðalatriði málsins! Ef hún hefði verið sofandi í náttfötum hefði það litlu breytt. Ef eiginmaður hennar hefði tekið nektarmynd af henni og lekið í fjölmiðla væri hann sekur en ekki hún.
Hún leyfði karlmanni að vera hjá sér sem ekki var eiginmaður hennar! Um það snýst málið!
Mér finnst það hafa vantað í fréttina.
Benedikt Halldórsson, 18.2.2009 kl. 14:56
Úps..Fyrrverandi kærasti, jæja hún er a.m.k. breysk og mannleg eins og við hin. Hins vegar er það skuggalegt að sofa nakinn.
Finnur Bárðarson, 18.2.2009 kl. 15:22
Takk Benedikt fyrir þennan vinkil. Það eiginlega gerir málið ennþá verra ef einhleyp kona og engum lofuð má ekki eiga í nánum samskiptum við karlmann.
Dögg Pálsdóttir, 18.2.2009 kl. 15:46
Er alveg gáttaður á þessari athugasemd Benedikts. Svona aths. gæti átt við aðstæður einhverra mjög strangra bókstafsmanna. Hvaðan hann hefur einhverjar upplýsingar sem ekki eru í fréttinni væri fróðlegt.
Ætli það sé ekki mjög algengt um allan heim að fólk skjóti skjólshúsi yfir gesti þegar þannig stendur á. Hvað fólk kann síðan að aðhafast innan heimilisins á ekki að koma neinum við.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 19.2.2009 kl. 10:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.