Leita í fréttum mbl.is

Maður að meiri

Það er gott að heyra að forsvarsmaður Radda fólksins hóf mótmælafundinn á því að biðja afsökunar á ummælum sínum. Hann er maður að meiri fyrir vikið.
mbl.is Baðst afsökunar á ummælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samúð er tilfinning.
Er hægt að hneykslast á að einhver sýni ekki samúð?
Er hægt að hneykslast á að einhver elski ekki nógu mikið?
Er hægt að hneykslast á að einhver sýni ekki nægilegt traust?

Er hægt að skylda manneskju til að sýna þeim samúð sem hefur eyðilagt líf hennar og ættingja hennar?

Samúðin ristir ekki djúpt gagnvart þeim sem eiga bágt í þessu þjóðfélagi.
 
Fólk deyr á götum úti í Reykjavík. Hvar er samúðin þá?
 
Það er skoplegt að sjá þegar gáfumannafélagið er að keppast um að setja
Íslandsmet í samúð og ávíta aðra fyrir skort á samúð.
 
Þetta er blanda af móðursýki og hræsni.
 
Þessi færsla Jónasar Kristjánssonar er gott innlegg í þessa umræðu.
 
 Sjá:
 
http://www.jonas.is/
 
24.01.2009
Hörður kúgaður til hlýðni
 Hörður Torfason baðst afsökunar að ástæðulausu. Hann var þvingaður til
þess, því að við búum í samfélagi hræsni og yfirdrepsskapar. Niðurlægjandi
er að lúta höfði til virðingar því krumpaða samfélagi. Hörður hafði kvartað
yfir, að Geir Haarde tengdi veikindi sín við pólitík. Það var rétt
kvörtunarefni. Hræsnarar og yfirdrepsfólk neituðu að mæta á útifundinn í
dag vegna orða Harðar. Nú geta þeir mætt aftur, því að hann hefur látið
kúgast. Ég sé ekki, að honum sé neitt gagn í stuðningi hræsnara og
yfirdrepsfólks. Það fólk er hluti vandans, ekki partur af nýju Íslandi.
Látum það koma upp um sig.

Jón (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 01:13

2 identicon

Hörður var einn af þeim fáu sem hafa tjáð sig um þetta tilfinningaklám.

Í stað þess að viðurkenna að ríkisstjórnin er fallin,
Sjálfstæðisflokkurinn blandar saman tilkynning um
kosningartillögu og veikindi hans Geirs til að breiða yfir
niðurlæginguna sem flokkurinn gengur nú í gegnum og safna sér
stuðningi og samúð. Þetta var bara pólitiskt strategía.

En ég vorkenni þau sem horfði á Geir og Davið sem Jesús og Guð
þeirra, og Sjálfstæsðisflokkur sem trú: það hlýtur að vera
ótrúlega erfitt að fatta allt í einu að Guð og Jesús þeirra eru
búinn að svikja þeim allan tíma. Sjálfstæðisflokkur, Rikistjórn, Davið Oddsson og FME eru landráðamenn sem munu
aldrei biðja um afsökunnar..

Svona var mótmælt í gær:
http://www.youtube.com/watch?v=VjptqbfYcEI&eurl

Reynir (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 01:16

3 identicon

hörður baðst afsökunar vegna þess fjölda "stuðningsmanna " hans sem fordæmdu sóðaskapinn.

Afsökunarbeiðnin er því jafn innantóm og fölsk og hann er sjálfur.

Núna ætla þessir hópar að bjóða fram - hóf Nasistaflokkurinn ekki starfssemi sína með ofbeldi - og lauk henni með heimsstyrjöld.

Það verður fróðlegt að fylgjast með framboðum þeirra og afleiðingum þeirra.

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur I Hrólfsson (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 02:01

4 identicon

Já það er gott að kunna að biðjast afsökunnar. Vona að stjórnvöld og Seðlabankinn fari að kunna það einnig. kv. Sólveig Dagmar

Sólveig Dagmar Þórisdóttir (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 17:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 391647

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband