Leita í fréttum mbl.is

Ótrúleg viðbrögð

Af hverju biður maðurinn ekki einfaldlega afsökunar á ógætilegum ummælum? Þá væri málið dautt.
mbl.is Greinilega snúið út úr ummælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta kallar maður að skíta upp á bak 

http://www.mbl.is/media/96/1196.wav 

Greinilegt að maðurinn er ekki í lagi þar sem hann hefur hingað til vilja persónugera vandamál þjóðarinnar með kröfum um einstaklingsábyrgð en þegar rökin snúast við að þá á að gera greinamun á einkalífi og stjórnmálalífi eða með öðrum orðum „athafnalífi“. Hvernig á að taka á ábyrgð ef einkalíf er undanskilið. 

Að kalla veikindi Forsætisráðherra „pólitískar reykbombur“ er með öllu siðlaus ummæli og trúverðugleiki Harðar T. fór gersamlega niður í holræsið.

Hörður, biddu afsökunar og segðu af þér, axlaðu ábyrgð.

Þórir (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 10:08

2 Smámynd: Sigurður Haukur Gíslason

Sammála þér Dögg. Eðlilega er flestum heitt í hamsi þessa daganna og stundum falla orð sem betur hefðu verið ósögð. Þá er bara að biðjast afsökunar. Hörður hefði verið maður að meiri hefði hann gert það.

Sigurður Haukur Gíslason, 24.1.2009 kl. 10:16

3 Smámynd: Kristján Logason

----
Wrong answer 101


Sem blaðamaður þá setur þú viðmælanda inn í málið og spyrð hann spurningar.
Síðan kveikir þú á upptökutækinu og spyrð hann óræðrar spurningar sem engu máli skiptir í raun nema sem framhald af fyrri spurningu.

Viðmælandi þinn sem nú á traust þitt. Svarar samviskulega.

Ef þú vilt láta viðmælanda líta enn ver út skellir þú í miðri ræðu hans spurningu sem hann átti alls ekki vona á að verða spurður.

Með þessu hefur þú séð til þess að viðmælanda vefst tunga um tönn.

Þegar þetta er klippt og birt er breytt um fyrirsögn.

------------


Þetta eru svo augljós vinnubrögð að ég á ekki til orð.
Það er hafið stríð hér á landi sem aldrei fyrr um orð og tjáningarfrelsi.
Allir þeir sem ekki tjá sig með samskonar orð og setningarskipan og valdstjórnin eru úthrópaðir á torgum með fáránlegum svívirðingum sem menn ættu ekki einu sinn að láta út úr sér í einrúmi.

Stjórnvöld gera allt til þess að fólkið í landinu taki ekki af þeim völdin og landið sem þau telja sig ein eiga og geta ráðstafað

Þetta þarf að stöðva



Við erum þjóðin

Landið er okkar

Kristján Logason, 24.1.2009 kl. 12:00

4 identicon

Samúð er tilfinning.
Er hægt að hneykslast á að einhver sýni ekki samúð?
Er hægt að hneykslast á að einhver elski ekki nógu mikið?
Er hægt að hneykslast á að einhver sýni ekki nægilegt traust?

Er hægt að skylda manneskju til að sýna þeim samúð sem hefur eyðilagt líf hennar og ættingja hennar?

Jón (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 12:34

5 identicon

Sæll Andri Sigurðsson,svo augljóst,tek undir það sem þú skrifar hér að framan..Var þessi Dögg ekki í einhverju basli vegna spila fíknar í einhverjum af stóru spilakössunum ?

Julius kristjansson (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 12:58

6 identicon

Dögg, að mínu áliti værir þú "meiri" kona ef þú bæðir Hörð fyrirgefningar á "reykbombuþvælu" þinni.

Það er sama hvernig ég hlusta og reyni að fá þína útkomu úr viðtalinu við Hörð, mér er það ómögulegt.

Mér finnst ákaflega dapurt þegar fólk reynir að "blekkja aðra" og ennþá daprara þegar "afneitun" og "sjálfsblekking" er slík sem ég skynja hér.

Er hægt að treysta "svona hugsandi fólki" fyrir "Alþingi", ég bara spyr ? 

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 13:22

7 identicon

Viðbrögðin við ósmekklegheitum Harðar á bloggsíðum eru skelfileg.

Ég gerði mér engan vegin grein fyrir því hve mikið er til af fíflum.

Fólk verður sér til skammar aftur og aftur í blindri heift. Kannski er það svona sem samfélög fyrja að hrynja innanfrá. Þ.e. samúð með öðru fólki er háð því að það sé sömu skoðunar og maður sjálfur. Þetta er mjög dapurlegt.

Margret (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 14:02

8 identicon

Margrét,þú talar um skoðanir..þetta er löngu hætt að snúast um skoðanir,,þetta snýst orðið um valdníðslu sjálfstæðismanna,og hækjanna,samfylkingar og framsóknar.Þetta eru.aðgerði sem þola einga bið , að aflífa isma andskotans,sem er búin að herja á Íslendinga undanfarin12-15 ár,undir stjórn sjálfsæðisflokks,,og gert þjóðina fjárhagslega og andlega gjaldþrota.

Julius kristjansson (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 14:20

9 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Stjórnin segi af sér og málið er dautt! Mótmælin hætta sjálfkrafa!

Rut Sumarliðadóttir, 24.1.2009 kl. 16:46

10 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

 

Hörður er búin að biðjast afsökunar á því sem hann ekki sagði

Afhverju...Róaru þig ekki niður og gefur manninum tækifæri á að gera það .. áður en þú bullar svona rugl. Þetta er svo dæmigert að gera þetta að einhverjum miðdepli málanna.  Geir H Harde hefur aldrei beðist afsökunar á neinu ... og þarna sést munurinn á hver er hvað. Hörður nýtti fyrsta tæki færi að biðjast afsökunar á orðum sínum enda sannkallaður sómamaður. 

Hörður er mjög viðkunnalegur maður í alla staði. Að hann efist um heilindi politíkusa er ekkert nema eðlilegt því að ... það er löngu vitað að stjórnmálamenn ljúgia og sást það berlega, rétt fyrir bankahrunið að Geir H Harde laug framan í opið geðið á fjölmiðlum, er hann gerði lítið úr fundum sínum við seðlabankastjóra.  

Brynjar Jóhannsson, 24.1.2009 kl. 22:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband