Leita í fréttum mbl.is

Tómur pakki?

Miðað við málflutning VG verður hin meinta aðgerðaráætlun VG ekki merkilegt plagg - inniheldur tæpast annað en að vera á móti. VG eru góðir, ef ekki bestir, í því.
mbl.is VG halda aukafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já takk fyrir verðbólguna, þjóðargjaldþrotið, börnin mín biðja um þakkir fyrri skuldinar sem þau þurfa að bera í framtíðinni fyrir sjálfstæðisflokkinn og vinni hans.  Takk fyrir hærri skatta,  við getum lengi haldið áfram.  Ykkur sjálfstæðismönnum veiti ekki af smá auðmýkt og sjálfsgagnrýni í staðinn fyrir að gagnrýna aðra.   Þið eigið að kunna skammast ykkar.

Tryggvi (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 11:00

2 Smámynd: Guðrún Jónsdóttir

Nákvæmlega, gæti ekki verið meira sammála

Guðrún Jónsdóttir, 7.12.2008 kl. 11:18

3 Smámynd: kop

Þetta er sorgleg athugasemd hjá þér.

Allt það sem VG hafa verið á móti hefur verið að virka rosalega vel,eða hvað???

kop, 7.12.2008 kl. 11:39

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hvað er það sem VG hefur verið á móti? 

Og hvernig stendur á því að Sjálfstæðisflokkurinn, og hans meðreiðarsveinar hverju sinni, hafa verið svo mótfallnir mörgu í málflutnigi VG á undanförnum árum? Getur verið að það hafi eitthvað með græðgisvæðingu að gera?

Og hvernig útskýrir Dögg Pálsdóttir lögmaður stóraukið fylgi VG í skoðannakönnunum að undanförnu? Getur verið varnaðarorð og brátta VG gegn umræddri græðgisvæðingu komi þar við sögu? 

Jóhannes Ragnarsson, 7.12.2008 kl. 12:06

5 Smámynd: Dögg Pálsdóttir

VG hefur ekki komið með eina einustu lausn við neinum vanda. Þeir eru á móti - öllu, alltaf -sama hvað það er. Stóraukið fylgi VG er bóla - eðlileg óánægja fólks vegna þess sem gerst hefur. Svona fylgisbólgur VG hafa komið áður - en ég minnist þess ekki að þær hafi nokkurn tímann skilað sér í kjörkassann til þeirra í kosningum.

Dögg Pálsdóttir, 7.12.2008 kl. 12:16

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nefndu mér svona eins og 5 mál af þessu ,,öllu" sem VG hefur verið á móti. Ennig 5 mál sem VG hafa borið fram en valdstjórnin verið á móti.

Og þú svaraðir engu um græðgisvæðinguna, Dögg. Var ekki full ástæða til að vera á móti henni?

Jóhannes Ragnarsson, 7.12.2008 kl. 12:29

7 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Það er nú ekki margt, sem VG hefur verið á móti frá því að flokkurinn var stofnaður í febrúar 1999. En þó má tína til nokkur atriði, svo sem:

1. Einkavæðing íslensku ríkisbankanna. Afleiðingarnar má sjá í dag. Kannski hefði verið betra að hlusta á varnaðarorð VG.

2. Aðild að ESB. Trakteringarnar, sem Ísland hefur fengið frá því og aðildarþjóðum þess bera nú ekki með sér að afstaða VG sé með öllu óásættanleg.

3. Álbrjálæðið og meðfylgjandi búsvæðaeyðing vegna stórvirkjana.

Þetta eru örfá stórmál, sem varða framtíð þjóðarinnar miklu. Ég sé ekki betur en að allir aðrir flokkar vilji:

a) Einkavæða allt sem hægt er að einkavæða

b) Binda þjóðina á klafa ESB

c) Virkja og bræða sem aldrei fyrr.

Björgvin R. Leifsson, 7.12.2008 kl. 13:01

8 Smámynd: Dögg Pálsdóttir

Var formaður þingflokks VG, stjórnarmaður í Lífeyrissjóði starfmanna ríkisins ekki á fullu í að nota lífeyrispeninga í fjárfestingum í bönkunum? Og án þess að ég sé einhver sérstakur talsmaður stjóriðju þá veit ég ekki hvar við værum stödd núna ef við hefðum ekki tekjurnar af þeim álverum sem reist hafa verið. Og hvað sem græðgisvæðinguna má segja - sem er flest slæmt - þá skiluðu t.d. bankarnir milljörðum í skatttekjum í ríkissjóð. Ég held að þjóðinni hafi fundist ágætt að fá þær tekjur í samreksturinn, meðan þeirra naut við.

Dögg Pálsdóttir, 7.12.2008 kl. 15:48

9 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Ögmundur Jónasson ber fulla ábyrgð á milljarða tapi LSR. Hann er stjórnarmaður þar og lagðist ekki gegn því að sá sjóður tæki þátt í hlutabréfaruglinu. VG hefur ekki lagt fram eina einustu marktæka tillögu síðustu mánuði... og maður bíður spenntur að sjá hvað Þistilfjarðarafturhaldinu dettur í hug að kokka upp núna 

Jón Ingi Cæsarsson, 7.12.2008 kl. 15:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 391667

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband