Mánudagur, 27. október 2008
Höfum við hagsmuni barna að leiðarljósi?
Foreldranefnd félagsmálaráðherra hélt í dag fjölmennt málþing um fjölskyldumál á Íslandi. Þar var fjallað um félagslega, lagalega og fjárhagslega stöðu barna eftir mismunandi fjölskyldugerðum. Ég var með innlegg í lagapartinum og gerði þar m.a. grein fyrir lagafrumvarpi mínu, sem því miður dagaði uppi á síðasta þingi. Vonandi gefst mér færi á að endurflytja það á komandi vetri.
Að öðrum mjög góðum erindum ólöstuðum (missti raunar af fyrsta partinum vegna annarra starfsskyldna) fannst mér athyglisverðast innlegg Jóhanns Loftssonar sálfræðings, en hann hefur um árabil séð um sáttameðferð hjá sýslumannsembættum. Hann var þar með áhugaverða punkta og dró ábendingar sínar saman í að í framkvæmdinni væri hnefaréttinum umbunað, samningar væru látnir standa þótt annað foreldrið brjóti hann og það vantaði vald til inngrips í erfiðustu málin.
Það jákvæða í þessu öllu er að flestir foreldrar bera gæfu til að leysa mál sín með samkomulagi og hafa hagsmuni barnanna í forgrunni. Það neikvæða er að í erfiðustu deilunum eru við ekki með nein úrræði sem í raun virka. Því þarf að mínu mati að breyta og það sem fyrst. Það er óþolandi að foreldri, í skjóli yfirvalda í raun, af því að þau gera ekkert, brjóti á hinu foreldrinu, algerlega að tilefnislausu.
Og til að forðast misskilning - ég er hér að tala um vanmátt til að taka á tilefnislausum umgengnistálmunum. Umgengnistálmanir geta stundum, í undantekningartilvikum, verið réttlætanlegar.
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
- addabogga
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- andriheidar
- gumson
- audbergur
- abg
- axelaxelsson
- armannkr
- arniarna
- asabjorg
- arh
- aslaugfridriks
- astamoller
- astar
- kaffi
- birgir
- launafolk
- bjarnimax
- borgar
- braskarinn
- gattin
- bryndisharalds
- brandarar
- carlgranz
- rustikus
- deiglan
- draumur
- einarbb
- ekg
- jaxlinn
- elinora
- ellasprella
- ellyarmanns
- erla
- erlaosk
- erna-h
- fsfi
- fhg
- gerdurpalma112
- gisliivars
- gisligislason
- neytendatalsmadur
- grazyna
- gudni-is
- gelin
- gudbjorng
- fasteignir
- gudfinna
- lucas
- gudmundurmagnusson
- gudrunshil
- gudruntora
- gunnaraxel
- gunnargunn
- laugardalur
- gylfithor
- hallarut
- heidistrand
- heidathord
- jarnskvisan
- heimirhilmars
- hehau
- helgi-sigmunds
- herdis
- himmalingur
- hjaltisig
- disdis
- holmfridurge
- tulinius
- idno
- ingabesta
- ingisund
- golli
- ibb
- astromix
- johannalfred
- stjornun
- jonmagnusson
- jonsnae
- juliusvalsson
- kolbrunb
- kristinhrefna
- lara
- lotta
- nytjagardar
- altice
- matarbitinn
- maggaelin
- martagudjonsdottir
- mal214
- morgunbladid
- olavia
- olinathorv
- olofnordal
- omarbjarki
- huldumenn
- otti
- publicservant
- iceland
- pjeturstefans
- ragnar73
- ragnheidurrikhardsdottir
- ragnhildur
- rannveigmst
- runirokk
- rynir
- trumal
- salvor
- sirrycoach
- sigurbjorns
- sv11
- sighauk
- sij
- sigurdurir
- ohyes
- sigurdurkari
- siggisig
- siggith
- sigurjonsigurdsson
- zunzilla
- sms
- 1301493169
- stefaniasig
- stebbifr
- brv
- sveinni
- saethorhelgi
- thelmaasdisar
- grasteinn
- ubk
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- va
- villidenni
- thorbjorghelga
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- thoragud
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- iceberg
- toddi
Athugasemdir
Gott málþing og niðurstaðan að núverandi kerfi er handónýtt og þarf að breyta hið snarasta. Ég reikna því með að Jóhanna leggi fram frumvarp nú í vetur þegar nefndin hefur skilað af sér.
Ársæll Már Arnarsson var líka með áhugaverðar niðurstöður um líðan barna eftir skilnað miðað við umgengni foreldra. Þeim börnum sem eru viku og viku hjá hvoru foreldri líður mun betur en þeim sem eru minna hjá öðru foreldrinu.
Niðurstaðan er sú að best er að foreldrar hafi sem jafnasta ábyrgð á börnum eftir skilnað og sem jafnastar samvistir.
Sigurður Haukur Gíslason, 28.10.2008 kl. 09:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.