Leita í fréttum mbl.is

Þjóðargjöfin og vika bókarinnar

Vika bókarinnar á vegum Félags íslenskra bókaútgefenda hófst í dag, 17. apríl. Að þessu sinni ákváðu bókaútgefendur að bjóða frambjóðendum til Alþingiskosninga, sem skráðir eru fyrir bók í Gegni að koma til opnunarinnar í bókabúð Máls og menningar. Rit mitt um Aldraða á Íslandi frá árinu 1987 hefur ratað í Gegni og þar með telst ég bókarhöfundur skv. skilgreiningu.

Ég var nú hálffeimin að mæta þarna með viðurkenndum rithöfundum, eins og meðframbjóðanda mínum, Stefáni Mána, sem skipar 16. sæti í Reykjavík suður. En þetta var gaman og þjóðargjöf bókaútgefenda til mín notaði ég til að kaupa þrjár kiljur, Skipið eftir Stefán Mána (að sjálfsögðu), Sá yðar sem syndlaus er eftir Ævar Örn Jósepsson og Viltu vinna milljarð sem ég hef mikið heyrt talað um. Ljóst er að annir framundan munu ekki flýta fyrir því að þessar bækur verði lesnar, en þær bíða þá sumarfrísins.

Vika bókarinnar er frábært framtak og vonandi munu sem flestir foreldrar leysa ávísunina út og kaupa bækur fyrir börnin sín og sig sjálfa. Glitnir styður þessa þjóðargjöf og er sá stuðningur lofs verður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefanía Sigurðardóttir

Velkomin á blogið Dögg mín, gott að fá þig með í flóruna.

Stefanía Sigurðardóttir, 18.4.2007 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 391719

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband