Leita í fréttum mbl.is

Hárrétt hjá Lilju Mósesdóttur

Það er hárrétt hjá Lilju Mósesdóttur, þingmanni VG að til almennra aðgerða verður að grípa vegna greiðsluvanda heimilanna. Það er einnig rétt hjá henni, og í samræmi við það sem ég bloggaði fyrr í dag, að stjórnvöld verða að sýna þar frumkvæði. Þetta frumkvæði þarf að koma strax og til aðgerðanna þarf að grípa svo fljótt sem verða má. Það hefur raunar dregist alltof lengi af hálfu stjórnvalda að horfast í augu við þessar augljósu staðreyndir. 

Staðreyndirnar liggja skýrar á borðinu. Allar forsendur fyrir lántökum þúsunda fjölskyldna vegna húsnæðiskaupa brustu vegna óðaverðbólgu og gengishruns. Á óðaverðbólgunni og gengishruninu bera þessar fjölskyldur enga ábyrgð, ekki frekar en þjóðin ber ábyrgð á Icesave þó hún verði að axla þá ábyrgð. 

Fjárfesting í íbúðarhúsnæði hefur aldrei verið talin áhættufjárfesting hér á landi. Þvert á móti hefur fjárfesting í íbúðarhúsnæði verið ein meginsparnaðarleið flestra. Þúsundir fjölskyldna standa frammi fyrir þeirri staðreynd að beinhörðu peningarnir sem settir voru í fjárfestingu íbúðarhúsnæðis eru brunnir upp. Höfuðstóllinn er horfinn. Stjórnvöld ákváðu strax að verja eignir á bankareikningum, umfram það sem skylt var. Eiga þeir sem áttu sparnað sinn í húsnæði ekki sambærilegan rétt á því að sú eign sé í einhverju varin?


mbl.is Vaxandi þrýstingur á að afskrifa íbúðalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankarnir?

Á það að velta á því við hvaða banka skuldarar skipta hvaða afgreiðslu mál þeirra fá? Það hljómar ekki vel. Eðlilegra sýnist, m.a. í ljósi þess að bankarnir eru nú meira og minna í eigu ríkisins, að stjórnvöld setji reglurnar og bankarnir framkvæmi þær? Hugmynd Sigurðar Guðjónssonar lögmanns, sem hann lýsti í fjölmiðlum bæði í gær og fyrradag, er áhugaverð og hlýtur að vera af þeim toga að skuldarar skoði. Aðgerða er þörf. Ef stjórnvöld fara ekki að gera eitthvað í málum þurfa skuldarar að knýja fram aðgerðir. Þeir hafa margar leiðir til þess. Leið Sigurðar er ein þeirra.
mbl.is Bankarnir skoða leiðir til að skuldbreyta íbúðalánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri brýn verkefni bíða ...

Icesave umræðan í sumar hefur verið mikilvæg og skilað því samkomulagi sem fyrir liggur um fyrirvara. Skv. fréttum á að hnykkja enn á fyrirvörum milli 2. og 3. umræðu. En svo þarf að fara að ljúka þessu máli. Fjölmörg brýn úrlausnarefni hafa verið í biðstöðu hjá stjórnvöldum vegna umfjöllunar þingsins á Icesave og vegna EB umræðunnar í sumar. Nú þarf að fara að huga að þessum málum. Stendur þar hæst slæm skuldastaða heimila og fjölskyldna og brýnar aðgerðir sem þar þarf að grípa til. Þau mál þola ekki mikið meiri bið.
mbl.is Funda um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að láta ekki segjast ...

Mér finnst 80 þús. kr. sekt fyrir þessi tvö hraðabrot ekki mikil sekt. Af hverju var maðurinn einfaldlega ekki sviptur ökuréttindum í seinna skiptið. Getur brotaviljinn verið einbeittari?
mbl.is Stöðvaður tvisvar fyrir hraðakstur með 13 mínútna millibili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupthinking

Athyglisvert myndband.

Ég hnaut sérstaklega um setninguna: We think we can continue to grow the same way we always have by outwitting beaurocracy ...

Skyldu þeir vera að vísa til eftirlitsstjórnvalda eins og FME og Seðlabankans með þessari tilvísun?


mbl.is Gamalt Kaupþingsmyndskeið vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins ...

er kominn nýr tónn hjá ráðherra í ríkisstjórninni sem gefur til kynna að það sé að renna upp fyrir ríkisstjórninni að það verður að taka á skuldum heimilanna með öðrum hætti en hingað til hefur verið talað um.

Greiðsluvilji fjölskyldna er að hverfa, því það er svo tilgangslaust hjá mörgum að halda þessu áfram. Í útvarpinu í gær kom í ljós að 20 þús. einstaklingar eru komnir í alvarleg vanskil og reiknað er með að 10 þús. bætist í þann hóp á næstu vikum.

Öll Icesave umræðan hefur að mínu mati ýtt undir minnkaðan greiðsluvilja fjölskyldna. Af hverju? Við sem þjóð viljum í Icesave setja fyrirvara um það að ef illa gengur þá ætlum við ekki að borga. Fjölskyldur setja samasem merki milli þessarar umræðu og sinnar stöðu með þeim afleiðingum að greiðsluviljinn þverr.

Þetta eru staðreyndirnar sem ríkisstjórnin þarf að horfast í augu við. Orð félagsmálaráðherra benda til að ríkisstjórnin sé loksins komin í stellingar til að viðurkenna þennan raunveruleika og grípa til aðgerða sem byggjast á honum. Kannski hillir loksins undir skjaldborgina sem lofað var í febrúar.


mbl.is Ráðherra vill afskrifa skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vangaveltur

Er það ekki hið besta mál að þetta sé skoðað. En í þessu samhengi verður ekki hjá því komist að horfa á það að FME gaf grænt ljós á þessa Icesave reikninga. Spurning hvort það að einhverju leyti fríi þá sem til stofnuðuð undan ábyrgð.  Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu þessa máls.


mbl.is Ríkið í mál vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður að meiri

Forstjóri Straums-Burðaráss er maður að meiru að að biðja afsökunar á því að hann og fleiri sem komu að málum við endurskipulagningu skuli ekki hafa verið tengdari við okkar nýja íslenska veruleika en raun ber vitni.  Væntanlega mun tillögunum um launakjörin breytt í kjölfarið.
mbl.is Biðst afsökunar fyrir Straum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmyndaauðgi

Það er eitursnjallir almannatenglar sem láta sér detta svona verkefni í hug. Og að fá til siðsinnis við verkefnið fv. vasaþjófa og notfæra sér þannig einstaka hæfileika þeirra. Og fá síðan um verkefnið alþjóðlega umfjöllun í fjölmiðlum, sem skilar TalkTalk kynningu upp á miklu meiri fjárhæðir en þau 100 þús. pund sem þeir gefa með þessum hætti.

Getum við fengið hugmyndasmiðina til að hjálpa okkur til að endurreisa vörumerkið "Ísland"? Smile


mbl.is Vasaþjófar lauma seðlum á fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhugsunarefni

Var virkilega ekki hægt að finna konu með engar óheppilegar tengingar sem þessar til að fylla þetta sæti í bankaráðinu? Og ef það var ekki hægt hefði verið tilvalið að finna karlmann með engar óheppilegar tengingar því það vill svo til að í þessu bankaráði eru eingöngu kvenmenn. Þar hefði því verið tilvalið að setja eins og einn karlmann í viðleitni til að hafa bæði karla og konur í sama bankaráðinu ... 

Þó Ísland sé lítið land þá á ekki að þurfa að bjóða upp á að svona stöður komi upp.


mbl.is Skuldar milljarða og eiginkona forstjórans í bankaráði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítin fullyrðing

Niðurstöður af þessu tagi koma fram þegar nánast engin hreyfing er á markaði. Það er fráleitt að fasteignaverð á Íslandi sé að hækka. Þvert á móti er það á niðurleið og á því miður sennilega eftir að lækka enn. Fasteignamarkaðurinn er svo gott sem botnfrosinn, þó alltaf seljist ein og ein eign, oftast í makaskiptum. Þar geta báðir aðilar ákveðið hvaða kaup-og söluverð þeir setja, ágreiningurinn snýst um mismuninn. Verð eigna í makaskiptum er því ekki réttur mælikvarði á þróun fasteignaverðs.

Væntingar markaðarins eru að fasteignaverð eigi eftir að lækka enn. Seljendur eru að vonum ekki ánægðir með þá þróun. Væntanlegir kaupendur bíða eftir lækkuninni og svo virðist sem þeir viti að biðin verður lengri því leigumarkaðurinn sýnist blómstra.

Það bíða allir eftir skjaldborg ríkisstjórnarinnar um heimilin og á meðan gerist ekkert ....


mbl.is Fasteignaverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert lært?

Það koma á óvart fréttir um að fyrirhugað sé að gera  mögulegar miklar bónusgreiðslur til starfsmanna Straums. Flestir virðast sammála um að ofurlaun og bónusar hafi verið drifkraftur þess sem endaði í hruninu. Það kemur því á óvart ef mann virðast ætla að byrja upp á nýtt með því að endurtaka mistökin.
mbl.is Furðar sig á bónusgreiðslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband