Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Auðvitað ekki

Auðvitað er samstarfið við AGS ekki í uppnámi því peningastefnunefndin brást í vaxtaákvörðun sinni. Búið var að kynda undir væntingar um umtalsverða stýrivaxtalækkun í dag. Tilkynnt var um lækkun um eitt prósentustig, langtum minni lækkun en vænst var og væntingar höfðu verið gerðar um. Enda var AGS í millitíðinni búinn að vara við vaxtalækkun. Það er því ljóst hver ræður hér þegar kemur að vaxtalækkunum. Það er AGS. Þess vegna er samstarfið við hann í engu uppnámi. Spurningunni sem ég varpaði fram á bloggi mínu fyrr í dag er svarað.
mbl.is Samstarf við AGS ekki í uppnám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsætisráðherra

Vaxandi vandi lántakenda er staðreynd sem flestir gera sér grein fyrir, nema kannski helst forsætisráðherra og þar með ríkisstjórnin, ef marka má umræður á Alþingi í gær. Þar fullyrti forsætisráðherra að staða heimilanna væri ekki eins slæm og menn vildu vera láta. Forsætisráðherra bar fyrir sig nýja athugun sem kynnt yrði fljótlega. Það verður fróðlegt að fá fréttir af þeirri athugun því ef hún er eins og forsætisráðherra gaf í skyn í umræðunum þá er hún í engu samræmi við það sem t.d. er haldið fram í þessari frétt.
mbl.is Vandi lántakenda fer vaxandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins, loksins

Kom að því að farið væri að rannsaka endurtekin kaup og sölu á Sterling flugfélaginu og þá peningamaskínu sem með því virtist sett í gang. Upplýsingar um skrýtna hluti í því sambandi voru komnar í ljós fyrir hrun. Gerð voru m.a. myndbönd um þessa hringekju þar sem áleitnum spurningum var varpað fram. Ég minnist þess að hafa bloggað um þetta mál og velt fyrir mér af hverju rannsóknaraðilar aðhefðust ekkert. Ég minnist svara um að orðrómur dygði ekki til aðgerða. Þau svör komu á óvart. Nú kemur loksins fram - í gegnum Berlingske Tidende - að málið sé í rannsókn hjá efnahagsbrotadeild. Loksins, loksins, segir maður bara. Um leið er það áleitin spurning af hverju það þurfti hrun til að þetta mál væri skoðað. Átti ekki fyrir löngu að vera byrjað á þessari rannsókn?
mbl.is Umboðssvik og ólögleg lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hætta að nota krítarkort

Í prýðilegri bók Láru Ómarsdóttur, sem nýlega kom út, er að finna margvísleg góð kreppuráð. Eitt þeirra er að hætta að nota krítarkort. Lára fullyrðir, með réttu tel ég, að notkun krítarkorta stuðli að því meiru sé eytt en fjárráð í raun leyfa. Það er því sennilegra betra kreppuráð að leggja krítarkortinu en að koma sér upp sérstöku kreppukorti.
mbl.is „Kreppukortið“ kemur á markað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver ræður?

Peningastefnunefndin gaf miklar væntingar um mikla lækkun stýrivaxta nú við júníákvörðunina. Síðan hefur talsmaður AGS tjáð sig með þeim hætti að stýrivaxtalækkun væri óráðleg. Ákvörðun peningastefnunefndarinnar mun sýna okkur hvort það sé í raun AGS sem öllu ræður hér á landi.


mbl.is Peningastefnunefnd í klemmu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju fatta þeir upp á næst?

Hvað skyldi gert við þá nemendur sem knúsast lengur en þrjár sekúndur? Brottvikning úr skóla? Og hver er á skeiðklukkunni? Skólastjórinn? Eða eru þetta atvinnuskapandi reglur? Er þetta ekki fulllangt gengið? Wink
mbl.is Knúsin tímatakmörkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegt

Þessar niðurstöður koma á óvart því öll umræðan í þjóðfélaginu endurspeglar mikið óþol í garð ríkisstjórnarinnar og endalauss aðgerðarleysis hennar. En það er fagnaðarefni fyrir ríkisstjórnina að 61% landsmanna skuli styðja hana. Vonandi hvetur sú staðreynd ríkisstjórnina til einhverra dáða, fjölskyldum og fyrirtækjum til heilla. Eftir því bíður þjóðin óþreyjufull.
mbl.is Stuðningur við stjórnina eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þversagnir

Þær eru þversagnakenndar fréttir fjölmiðlar um meintar hótanir Þjóðverja. Formaður viðskiptanefndar, sem er stjórnarsinni, tjáði sig í kvöldfréttum með þeim hætti að henni þætti bagalegt að nefndin skyldi ekki upplýst um þessi bréfaskipti. Það eru því ekki einvörðungu stjórnarandstæðingar sem kvarta.

Kjarni málsins er sá að upplýsingagjöf ríkisstjórnarinnar er orðin býsna brotakennd. Hún fór af stað með hástemmdum yfirlýsingum um að nú skyldi aldeilis bætt úr þar sem fyrri ríkisstjórn brást, í upplýsingagjöfinni. Og vissulega fór ríkisstjórnin þokkalega af stað í þessu efni. Forsætisráðherra og fjármálaráðherra héldu vikulega blaðamannafundi á þriðjudögum. Nú virðast þessir fundir hættir og upplýsingagjöfin er orðin jafnléleg ef ekki verri en hjá fyrri ríkisstjórn.


mbl.is Þjóðverjar hafa ekki hótað Kaupþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband