Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Áleitin spurning

Af hverju hafði Evrópski seðlabankinn frumkvæði að því að bjóða fram umsögn um seðlabankafrumvarpið, ef eftir því yrði formlega óskað? Það er áleitin spurning. Hingað til hafa erlendir aðilar lítið verið að skipta sér að lagasetningu hér á landi og þvi síður boðið fram umsagnir.
mbl.is Afþökkuðu umsögn Seðlabanka Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breyta og bæta

Athugasemdir AGS hljóma ekki svo flóknar að þingnefnd, með dyggri aðstoð nefndarritara, eigi ekki að ráða við að gera nauðsynlegar breytingar á frumvarpinu, ef vilji er fyrir hendi. Vilji er allt sem þarf til að koma þessu máli í gegn. Spurningin er sýnist mér: Er það vilji meirihluta þingmanna að breyta lögum um Seðlabanka Íslands með þeim hætti sem lagt hefur verið til, að gerðum þeim breytingum sem AGS virðist leggja til?
mbl.is Þarf að hugsa málið upp á nýtt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðalög

Áhugavert hefði verið ef blaðamaðurinn hefði fengið tölulegar upplýsingar um það hversu margar páskaferðir seldust í fyrra og hversu margar seljast nú. Það segir lítið að ferðaskrifstofur hafi dregið úr framboði. En það er ánægjulegt að fjárhagsstaðan sé ekki daprari en svo að fjölmennur hópur Íslendinga getur farið til útlanda um páskana.
mbl.is Færri komast utan um páskana en vilja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeim bara fjölgar ...

málunum sem rannsóknarnefnd Alþingis og/eða sérstakur ríkissaksóknari þurfa að skoða.
mbl.is Flest stofnuð af íslenskum bönkum í Lúxemborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AGS hefur

greinilega ýmsar athugasemdir við frumvarpið. Spurning hvað ríkisstjórnin gerir. Það verður fróðlegt að fylgjast með því.
mbl.is Venjan að hafa einn eða fleiri aðstoðarbankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað brást?

Í fréttum í gær var skýrt frá því að faðir hefði verið dæmdur til refsingar fyrir misnotkun á kornungri dóttur sinni. Um þetta var m.a. fjallað á visir.is. Þar kemur fram að maðurinn og móðir stúlkunnar séu bæði skjólstæðingar félagsmálayfirvalda en maðurinn hafði greinst með alvarlega geðsjúkdóma og sé öryrki. Barnaverndaryfirvöld hafi gert kröfu, eftir fæðingu stúlkunnar, að foreldrarnir yrðu sviptir forsjá barnsins. Sú krafa náði ekki fram að ganga fyrir dómi.

Mér er spurn. Hvernig má það vera að dómstóllinn hafi brugðist svo hrapalega í þessu máli? Barnaverndaryfirvöld eru seinþreytt til vandræða og gefa foreldrum of oft, að mínu mati, alltof mörg tækifæri til að bæta sig. Sú staðreynd að barnaverndaryfirvöld vildu svipta foreldra telpunnar forsjá hennar strax eftir fæðingu sýnir alvarleika málsins. Af hverju var ekki á þá kröfu fallist? Var málatilbúnaður barnaverndaryfirvalda ekki nægilega vandaður?

Það er þyngra en tárum taki að lesa hvernig kerfið hefur brugðist þessu litla stúlkubarni.


Glæsilegt

Þetta eru sérlega ánægjuleg tíðindi og hlýtur að skapa einhver störf. Þá hlýtur að felast í styrknum mikil viðurkenning á störfum og starfsemi tölvunarfræðideildar HR. Jákvæðar fréttir sem ástæða er til að fagna og óska forsvarsmönnum til hamingju með.
mbl.is HR fær 292 milljóna króna styrk frá ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að heyra ...

að það er einhvers staðar á landinu líf í fasteignamarkaðnum.
mbl.is Blómleg fasteignasala í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samskipti við fjölmiðla

Fyrirfram hefði maður ætlað að jafn gamalreyndur maður í samskiptum við fjölmiðla og forseti Íslands ætti að vita að það sem skiptir mestu máli er að passa upp á að hlutirnir sem maður segir séu ekki teknir úr samhengi.

Þetta er vandræðalegt, svo ekki sé meira sagt, verra er að hugsanlega er þetta skaðlegt fyrir okkur líka.


mbl.is Viðtalið tekið úr samhengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lengi getur vont ...

Maður hélt eiginlega að þetta gæti ekki versnað. En þessar yfirlýsingar, jafnvel þótt úr samhengi séu teknar, eru ekki til að bæta orðspor Íslands í útlöndum. Lætur forsetaembættið ekki lesa yfir viðtöl sem tekin eru við forsetahjónin til að koma í veg fyrir vandræði af þessu tagi? Sé það ekki gert þá er margt sem bendir til að það þurfi að gera. 


mbl.is Þjóðverjar fái engar bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 392475

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband