Leita í fréttum mbl.is

Af hverju?

Eru þessir þingmenn Framsóknarflokksins á einhverjum betliskóm í Noregi? Eru þessir menn ekki þingmenn? Væri þeim ekki nær að sinna starfskyldum sínum niður við Austurvöll heldur en að vera á þessu flandri? Í hvers umboði eru þeir í þessum verkefnum og hver borgar ferðakostnaðinn?
mbl.is Jóhanna beitti sér gegn láninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða hvað þetta er flott framtak. Einhver verður að taka frumkvæði meðan þessi máttlausa ríkistjórn gerir ekkert.

Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 10.10.2009 kl. 13:55

2 Smámynd: Stefán Stefánsson

Ríkisstjórninni er ekki treystandi og þá fara menn af stað til að reyna að bjarga málum. Það mun hafa verið tilgangur þingmanna Framsóknarflokksins og það á að vera sama hvaðan gott kemur.
En samfylkingarfólk virðist vera að fara á taugum út af þessu frumkvæði þeirra og þeim góðu móttökum sem þeir fengu hjá frændum okkar í Noregi.

Stefán Stefánsson, 10.10.2009 kl. 14:00

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Ef þú kallar það jákvætt frumkvæði Vilhjálmur, að gera sig að fífli í útlöndum,

og síðan í vanmætti og uppgjöf slá fram órökstuddum alvarlegum ásökunum um landráðsvinnubrögð forsætisráðherra, þá ertu sennilega vel kominn að því að kalla þig Framsóknarmann..

hilmar jónsson, 10.10.2009 kl. 14:01

4 identicon

Ég hef aldrei verið Framsóknarmaður og mun aldrei verða það. Þessi stimpill þinn lýsir vel rökleysu þinni og þröngsýni. Mér finnst það vera skylda þingmanna að leita allra leiða í dag og velt upp öllum steinum. Ég veit ekki hvað er til í ásökunum þessara þingmanna en ríkistjórninn hefur haft allt undir borðinu hingað til. Einleikir Jóhönnu og athafnaleysi ýta undir trúverðuleika framsóknarmannanna.

Þá finnst mér flott hjá þeim að fara út og leita eftir stuðningi, eitthvað sem ríkistjórnin er ekki að gera.

Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 10.10.2009 kl. 15:20

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Og falsa upplýsingar ?

hilmar jónsson, 10.10.2009 kl. 15:22

6 identicon

Það eru þín orð ekki mín.

Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 10.10.2009 kl. 15:42

7 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Vilhjálmur. Það hefur frá upphafi verið skýrt frá sjónarhóli Norðmanna og annarra norðurlandaþjóða annarra en Færeyinga að ekki verði lánað til Íslands nema samkvæmt aðgerðaáætlun AGS. Er það þá aðgerðarleysi hjá ríkisstjórninni að senda ekki reglulega menn út til þessara landa til að athyuga hvort afstaða norðurlandaþjóðanna hvað þetta varðar hafi breyst eitthvað?

Þetta frumhlaup Sigmundar og Höskulds var dauðadæmt frá upphafi til enda og það vissu þeir fyrir. Þessi farsi þeirra er eitthvert ómerkilegasta lýðskrum, sem sést hefur í háa herrans tíð hér á landi og þó víða væri leitað. Þeim væri nær að sinna sínu starfi og hjálpa til við að reisa landið úr þeim rústum, sem Framsóknarflokkurinn átti stóra sök á, frekar en að vinna skemmdarverk á viðleitni stjórnvalda til að koma okkur, sem fyrst upp úr vandanum til þess eins að freista þess að ná í atkvæði fyrir sinn flokk.

Sigurður M Grétarsson, 10.10.2009 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 389902

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband