Leita í fréttum mbl.is

Að hugsa upp á nýtt

Um helgina var í fjölmiðlum talað við tvo ríkisforstjóra um þann niðurskurð sem framundan er í ríkiskerfinu og augljóst er að þarf að ráðast í. Við blasir fjárlagagat af nánast óþekktri stærðargráðu  hjá okkur. Nýkomin er skýrsla frá OECD sem fullyrðir að í bæði t.d. heilbrigðiskerfi og menntakerfi sé umtalsvert svigrúm til hagræðingar án þess að það bitni á þjónustu.

Við göngum í gegnum áður óþekkta tíma hér á landi. Það hefði verið mikil tilbreyting ef ríkisforstjórarnir hefðu svarað fjölmiðlum með þeim hætti að þeir væru að leita nýrra leiða, nýrra lausna. Verið væri að hugsa útfyrir hinn gamla hefðbundna ramma því núverandi aðstæður kölluðu á það. Allir starfsmenn kæmu að þessari vinnu. Markmiðið væri að finna þær lausnir sem fælu í sér hagræðingu án þjónustuskerðingar eða a.m.k. lágmarksþjónustuskerðingu. En nei, báðir svöruðu þeir með gamla laginu: Niðurskurður hjá þeirra stofnun yrði erfiður og óframkvæmanlegur nema með verulegri skerðingu á þjónustu.


mbl.is Mikill halli á opinberum rekstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Guðjónsson

Sveitarfélögum eru auðvitað alltof kostnaðarfrek líka. Þar má örugglega

skera niður um milljarða. Hjá Reykjavíkurborg einni eru yfir 70 stjórar með meira en milljón á mánuði í föst laun. Til viðbótar hafa þeir  örugglega fasta yfirvinnu og bílahlunnindi. 15 varaborgarfulltrúar með hálft þingfararkaup á mánuði auk greiðslna fyrir nefndarsetu.Greiðslur án þess að nokkurt vinnuframlag komi á móti. Á almennum vinnumarkaði

héti þetta vinnusvik. Verkefni vetrarins er að skera þau í burtu. 

Einar Guðjónsson, 7.9.2009 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 391655

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband