Mánudagur, 24. ágúst 2009
Fleiri brýn verkefni bíða ...
Icesave umræðan í sumar hefur verið mikilvæg og skilað því samkomulagi sem fyrir liggur um fyrirvara. Skv. fréttum á að hnykkja enn á fyrirvörum milli 2. og 3. umræðu. En svo þarf að fara að ljúka þessu máli. Fjölmörg brýn úrlausnarefni hafa verið í biðstöðu hjá stjórnvöldum vegna umfjöllunar þingsins á Icesave og vegna EB umræðunnar í sumar. Nú þarf að fara að huga að þessum málum. Stendur þar hæst slæm skuldastaða heimila og fjölskyldna og brýnar aðgerðir sem þar þarf að grípa til. Þau mál þola ekki mikið meiri bið.
Funda um Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
- addabogga
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- andriheidar
- gumson
- audbergur
- abg
- axelaxelsson
- armannkr
- arniarna
- asabjorg
- arh
- aslaugfridriks
- astamoller
- astar
- kaffi
- birgir
- launafolk
- bjarnimax
- borgar
- braskarinn
- gattin
- bryndisharalds
- brandarar
- carlgranz
- rustikus
- deiglan
- draumur
- einarbb
- ekg
- jaxlinn
- elinora
- ellasprella
- ellyarmanns
- erla
- erlaosk
- erna-h
- fsfi
- fhg
- gerdurpalma112
- gisliivars
- gisligislason
- neytendatalsmadur
- grazyna
- gudni-is
- gelin
- gudbjorng
- fasteignir
- gudfinna
- lucas
- gudmundurmagnusson
- gudrunshil
- gudruntora
- gunnaraxel
- gunnargunn
- laugardalur
- gylfithor
- hallarut
- heidistrand
- heidathord
- jarnskvisan
- heimirhilmars
- hehau
- helgi-sigmunds
- herdis
- himmalingur
- hjaltisig
- disdis
- holmfridurge
- tulinius
- idno
- ingabesta
- ingisund
- golli
- ibb
- astromix
- johannalfred
- stjornun
- jonmagnusson
- jonsnae
- juliusvalsson
- kolbrunb
- kristinhrefna
- lara
- lotta
- nytjagardar
- altice
- matarbitinn
- maggaelin
- martagudjonsdottir
- mal214
- morgunbladid
- olavia
- olinathorv
- olofnordal
- omarbjarki
- huldumenn
- otti
- publicservant
- iceland
- pjeturstefans
- ragnar73
- ragnheidurrikhardsdottir
- ragnhildur
- rannveigmst
- runirokk
- rynir
- trumal
- salvor
- sirrycoach
- sigurbjorns
- sv11
- sighauk
- sij
- sigurdurir
- ohyes
- sigurdurkari
- siggisig
- siggith
- sigurjonsigurdsson
- zunzilla
- sms
- 1301493169
- stefaniasig
- stebbifr
- brv
- sveinni
- saethorhelgi
- thelmaasdisar
- grasteinn
- ubk
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- va
- villidenni
- thorbjorghelga
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- thoragud
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- iceberg
- toddi
Athugasemdir
Þau mál er óþarft að ræða því slíkar aðgerðir væru bara gálgafrestur ef svo fer að ríkið tekur ábyrgð á IceSave. Samninginum á að hafna og fá úr því skorið hversvegna okkur beri skylda til að borga þetta.
Það er alveg út í hróa hött að ætla að borga þetta þegar við augljóslega getum það ekki fyrir utan það að okkur ber ekki skylda til þess.
Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 21:45
Ég er sammála því að skuldastaða heimila og fjölskyldna er það mál sem stendur hæst og þolir enga bið. Hinsvegar hefði núverandi stjórn átt að byrja á því strax í upphafi kjörtímabils. IceSave málið þar á eftir og svo hefði mátt setja ESB á bið á meðan verið er að klára endurreisnarstarfið. Sú forgansgsröðun sem hingað til hefur viðhöfð hefur að mínu og margra annara verið kolröng, og eingöngu til þess fallin að skaða hagsmuni Íslendinga til lengri tíma litið.
Guðmundur Ásgeirsson, 24.8.2009 kl. 21:46
Rétt er það Guðmundur maður er hreinlega farin að spurja sig hagsmuna hverra er þessi ríkistjórn að gæta ?
Allavega ekki minna hagsmuna eða 99,9% annara í þjóðinni.
Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 21:50
Þá eru það bara þröngu sérhagsmunirnir sem koma til greina.
Guðmundur Ásgeirsson, 24.8.2009 kl. 22:29
Hefurðu í alvöru trú á fyrirvörunum, Dögg Pálsdóttir? Heldurðu, að Bretarnir ætli að láta helminga það, sem þeir horfðu fram á að fá í sinn hlut eða fá jafnvel ekki nema 20–40% af því? Geta þeir ekki svarað því til eftir á, að þeir hafi ekki einu sinni verið spurðir? Stendur ekki í svavarssamningnum, að ekki megi breyta honum né bæta við hann? Ætlarðu að gera kröfu til þess, að þetta verði EKKI afgreitt án þess að Bretar og Hollendingar skrifi undir skilmálana? Eða myndirðu samþykkja þessa ríkisábyrgð á þingi ÁN slíks samþykkis þeirra? Og heldurðu í alvöru að þeir skrifi upp á?! Hlustaðu þá á andsvör Ragnheiðar Elínar Árnadóttur við ræðu Lilju Mósesdóttur á þingfundi fimmtudaginn var, 20. ágúst, HÉR (kl. 20.24) og HÉR (kl. 20.26) og svör Lilju Mósesdóttur þar á milli (HÉR og HÉR), og segðu okkur svo, hvort þú sért sátt við léttúðuga afstöðu Lilju eða teljir hana vel rökstudda!!!
Jón Valur Jensson, 24.8.2009 kl. 23:02
Við EIGUM EKKI AÐ BORGA, við höfum lögin okkar megin í því efni (sjá vefsíðu mína), það er stóra málið, og Icesave-málið er RISASTÓRA málið á þessu þingi, stærra en öll önnur fjárhagsmál þar í allri Íslandssögunni, og það sem afgreiða verður VEL, ekki illa.
Ef þú ætlar að styðja ríkisábyrgðina, jafnvel án þess meginfyrirvara, sem einhverjir vilja bæta við núna, að Bretar og Hollendingar verði að samþykkja og skrifa undir ALLAN fyrirvarapakkann, þá skaltu í sambandi við þingmennsku í framtíðinni gera það, sem Englendingar kalla: abandon all hope, því að Icesave-sinnum í Sjálfstæðisflokknum verður ekki treyst til þingmennsku áfram í komandi kosningum.
Jón Valur Jensson, 24.8.2009 kl. 23:09
Jón Valur óvenju styggur í kveld. Sammála þér Dögg.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 23:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.