Leita í fréttum mbl.is

Turn í Macau

Hvað skyldu Sjóvá Almennar sem er, eftir því sem best er vitað, vátryggingafélag á Íslandi, hafa ætlað að gera við þennan turn í Macau?

Til eru lög um vátryggingastarfsemi nr. 60/1994. Í þeim segir m.a. í 9. gr. að vátryggingafélag megi ekki reka aðra vátryggingastarfsemi nema annað leiði af ákvæðum 11. gr. laganna. Í umræddri 11. gr. er síðan tilgreind sú hliðarstarfsemi sem vátryggingafélagi er heimilt að reka. Þar er talað um að reisa, eiga og reka fasteignir sem lið í fjárfestingu til ávöxtunar á fjármunum félagsins til lengri tíma, sbr. 2. tölul. 11. gr. Í 12. gr. laganna er síðan áréttað að vátryggingastarfsemi og hliðarstarfsemi skv. 11. gr. skuli rekin í samræmi við góða viðskiptahætti og venjur í vátryggingaviðskiptum og með hag vátryggingataka og vátryggðra fyrir augum. Verði misbrestur á skal Fjármálaeftirlitið gefa fyrirmæli um að ráðin verði bót á því sem úrskeiðis hefur farið.

Ætla verður að fjárfesting Sjóvá Almennra í umræddum turni hafi þannig verið liður í fjárfestingu til ávöxtunar á fjármunum félagsins til lengri tíma. Fróðlegt væri að vita hvernig gengið var úr skugga um það að hagur vátryggingataka og vátryggðra hafi verið hafður fyrir augum við ákvörðun fjárfestingarinnar. Jafnframt væri fróðlegt að vita hvort FME hafi eitthvað haft um þessa fjárfestingu Sjóvá Almennra að segja eða jafnvel gert athugasemdir við hana.

Í annarri frétt á mbl.is í dag kemur fram að á fjárfestingunni er Sjóvá Almennar búið að tapa liðlega þremur milljörðum íslenskra króna. Af 30 milljónum dollara sem félagið var búið að setja í ævintýrið eru 25 milljónir dollara tapaðar. Engu að síður lýsir forstjóri félagsins ánægju yfir niðurstöðunni. Hvað skyldi hafa þurft til að hann væri óánægður? Og verktakinn virðist brosa hringinn því fram kemur að hann hagnist umtalsvert á ævintýri Sjóvá Almennra í Macau.


mbl.is Rifta kaupum á húsi í Macau
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þessi "fyrirtæki"virðast valsa um eftirlitslaus og braska með bótasjóði eisog það séu spilavítispeninga og maður spyr sig af hverju ekki að lækka gjöld til tryggingataka fyrst svona vel gengur.

zappa (IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 13:47

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

enda fyrrum "eigendur" þokkalega vel settir, með stórar eignir í USA og víðar, sama á við marga álika sem "rúllað" hafa yfir landsmenn

Jón Snæbjörnsson, 24.6.2009 kl. 16:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 391637

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband