Leita í fréttum mbl.is

Þjóðstjórn

Því fyrr sem þessi ríkisstjórn fellur, því betra. Þá verður kannski loksins möguleiki á því að mynda þjóðstjórn, sem hefði átt að gera strax sl. haust.

Staðan er orðin sú að Samfylkingin treystir á stuðning stjórnarandstöðunnar í tveimur málum sem hún telur veigamikil, Icesave málinu og EB málinu. Á samstarfsflokkinn getur Samfylkingin ekki treyst. Það liggur fyrir.

Því verður ekki trúað að stjórnarandstöðunni detti í hug að styðja Icesave málið. Það eru allt of margar vísbendingar á lofti um það að Icesave samningurinn sé okkur svo óhagstæður að hann sé ekki hægt að samþykkja.


mbl.is Icesave gæti fellt stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: A.L.F

Ekki er ég sammála þér í öllu, en í þessu er ég 100% sammála þér, enda  þó ég hafi oftast aðrar skoðanir en þú veit ég að þú veist um hvað þú ert að tala.

Vonandi fer að koma að því að það komi þjóðarstjórn.

A.L.F, 22.6.2009 kl. 11:17

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ég vek athygl á þessari frétt Telegraph:

http://www.telegraph.co.uk/finance/economics/

Það virðist vera, að matsstofnanri, séu við það að fella lánsmat Íslands aftur niður um flokk. Eftir því sem ég man best, þíðir C flokkur, að talið sé að viðkomandi aðili sé í mikilli hættu á að verða gjaldþrota.

Lægsti flokkurinn, er D. Í D, eru skuldbindingar, sem álitnar eru tapað fé.

Ef af Ísland verður lækkað niður í C, þá þíðir það að lánshæfisstofnanirnar meta það svo, að líkur á gjaldþroti Íslands, séu verulegar og fari vaxandi.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 22.6.2009 kl. 13:07

3 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Þarna er ég svo sannalega sammála þér Dögg Pálsdóttir. kær kveðja. konungur þjóðveganna.

Jóhannes Guðnason, 22.6.2009 kl. 13:27

4 Smámynd: Helga Sigrún Harðardóttir

Ekki hef ég alltaf verið sammála þér Dögg en nú er ég það. Til að hægt sé að taka alvöru ákvarðanir sem skipta þjóðina máli, þarf að stokka stjórnkerfið upp og að því þurfa allir flokkar að koma. Nú, þegar virkilega þarf að láta sverfa til stáls, veitir ekkert af öllu okkar fólki við stjórnvölinn. Núverandi ríkisstjórn hefur ekki staðið undir væntingum þjóðarinnar um breytingar, gagnsæi og sanngirni og stjórnkerfið er enn sligað af allt of miklum ráðherra-balance. Þrátt fyrir fögur fyrirheit virðast engar breytingar vera í aðsigi. Þær breytingar verða ekki nema allir setjist að borðinu.

Helga Sigrún Harðardóttir, 22.6.2009 kl. 13:45

5 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Dögg: 

Ögmundur Jónasson orðaði þetta við mig í haust á einhverjum þeim ótal funda sem við í stjórn BSRB áttum vegna ástandsins.

Á þessum tíma fannst mér þingmeirihlutinn vera svo mikill að ekki væri þörf á að mynda þjóðstjórn. Ögmundur átti ekki við það, heldur að við þessar aðstæður væri það best fyrir íslensku þjóðina að leggja pólitískt argaþras til hliðar og að allir flokkar kæmu að landstjórninni. Þannig gæti enginn flokkur skorast undan ábyrgð og verði í því lýðskrumi, sem einkennt hefur stjórnmálin allt frá því í haust - enginn stjórnmálaflokkur undanskilinn!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 22.6.2009 kl. 15:42

6 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ég tel þjóðstjórn, vera ómögulega.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 22.6.2009 kl. 16:17

7 Smámynd: Finnur Bárðarson

Trú mín á stjórnmálamenn er með öllu horfin, endanlega.

Finnur Bárðarson, 22.6.2009 kl. 17:36

8 Smámynd: Pétur Steinn Sigurðsson

Sammála þér með þessi mál Dögg, þjóðstjórn hefðum við átt að virkja strax í haust þar hefði náðst þjóðarsátt um hvernig tækla ætti hlutina og hefðum við þá getað tekið strax á málum, en ekki vera kasta boltanum á milli flokka eins og gert hefur verið til þessa með miður góðum árangri.

 Í þessari stöðu er það eina sem virkar er þjóðstjórn!!!

 Góðar stundir.

Pétur Steinn Sigurðsson, 22.6.2009 kl. 17:36

9 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þjóðstjórn hefði verið, enn lamaðri, en núverandi stjórn.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 22.6.2009 kl. 18:07

10 Smámynd: AK-72

Ekki krækiber í helvíti að slík stjórn komi til greina né yrði nokkurn tímann sátt um hana. Hún myndi innihalda Sjálfstæðisflokkinn og honum er alls ekki treystandi til þess að hugsa um hagsmuni þjóðarinar heldur er þarna verið að hugsa um að komast að völdum til að tryggja hagsmuni herrastéttar auðmanna og kvótagreifa. Auk þess hefur sá flokkur ekki sýnt nokkra raunverulega iðrun á þeim hörmungum sem hann vísvitandi leidd þjóðina í, og á því ekki að fá að koma nálægt stjórn ríkisins næstu áratugi.

AK-72, 22.6.2009 kl. 18:56

11 Smámynd: Offari

Mér líst vel á Þjóðstjórn. Erfiðar ákvarðanir eru framundan og þar þurfa þingmenn að setja þjóðarhag fram yfir flokkshagsmuni eða eitthvað argaþras til þess eins að vera á móti hugmyndum vegna þess að ekki kæmi hún frá réttum flokkum.

Eina leiðin til að vinna okkur út úr þessum fjanda er að vinna saman og sætta okkur við að ekki hafa allir sömu skoðun þótt öll viljum við komast útúr þessu þannig að flestir verði sáttir. Þjóðstjórn getur sætt bæði þing og þjóð og sýnt fram á að með samstöðu getum við unnið okkur út úr óstandinu.

Offari, 22.6.2009 kl. 19:10

12 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Það er ekki fræðilegur möguleiki, að slík stjórn gæti komið sér saman, um nokkurn hinn minnsta grundvöll að stefnu,,,eða hefur enginn hér, fylgst þó ekki nema smá með umræðunni á Alþingi undanfarið.

Það er eins og fólk sé, á sitthvorri plánetunni.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 22.6.2009 kl. 20:09

13 Smámynd: Offari

Ég hef meiri trú á Íslendingum og Íslenskum þingmönnum en Einar virðist hafa. Það vita allir að þetta verður að gera í sátt við þjóðina, það vita allir að eina leiðin út úr þessu óstandi er að við stöndum saman bæði þjóð og þing.

Sveitarstjórnir eru farnarað gera þetta, Alþingi getur líka gert þetta lagt niður vopnin og skoðað allar leiðir á tilits hvaðan leiðin kemur. Allir okkar þingmenn vilja leysa vandan og hafa það sameiginlega markmið þótt leiðirnar séu misjafnar.

Offari, 22.6.2009 kl. 20:23

14 Smámynd: Villi Asgeirsson

Efast um að þjóðstjórn myndi virka, en utanþingsstjórn gæti gert það.

Villi Asgeirsson, 22.6.2009 kl. 21:00

15 Smámynd: Ívar Pálsson

Þjóðstjórnir eru ólíklegar til þess að virka, en kannski líklegri núna en nokkur önnur lausn, aðallega af því að þá yrði einungis átt við aðalmálin sem máli skipta, ekki t.d. loftslagskvóti eða önnur gæluverkefni 1,2 og 3. Fyrst Icesave- höfnun, svo lánamál og aðrar afleiðingar. Nóg að gera!

Ívar Pálsson, 22.6.2009 kl. 22:42

16 Smámynd: Kjartan Magnússon

Þú talar af viti.

Kjartan Magnússon, 23.6.2009 kl. 00:14

17 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það er orðið nokkuð ljóst að Samfylkingin er hundflöt fyrir Bretum og ESB.

Illu heilli þá er Samfylkingin búin að keyra VG í undanhald varðandi ESB svo það er rangt hjá þér að Samfylkingin þurfi aðstoð ykkar í því máli.  Þá er Icesave málið eftir og þar getið þið komið Saumevrópufylkingunni  til aðstoðar.  Allavega lætur fylkingin að því liggja að hún geti notað hluta af Sjálfstæðisflokknum. Helst er talað um Ragnheiði Ríkharðsdóttur og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.

Mín skoðun er sú að slíkt liðhlaup myndi skaða hagsmuni Íslands. Ný ríkisstjórn þyrfti nauðsynlega að setja íslenska hagsmuni á oddinn, ekki veitir af. 

Sigurður Þórðarson, 23.6.2009 kl. 00:27

18 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Ég er sammála þér. Nú ættu alþingismenn að ýta pólitísku  karpi til hliðar og sameinast í því að leysa vandamálin. Ástandið er mjög alvarlegt.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 23.6.2009 kl. 01:09

19 Smámynd: kop

Það er sorglegt að sjá þig tala um flokka, eins og það skipti einhverju máli lengur, en það er það eina sem kemst að hausnum á ykkur, flokkurinn.

Allir sem hafa einhverja hugsun, vita að þinn flokkur bera mesta ábyrgð á öllu ruglinu, sama hvað þið reynið að klóra ykkur út úr því.

Ykkur væri nær að hætta þessu kjaftæði, viðurkenna sekt ykkar og stuðla að lausn málsins.

Þjóðstjórn, afhverju talaðir þú ekki um það þegar þinn flokkur var í stjórn, ef það er þörf á þjóðstjórn núna þá var sú þörf líka til staðar þá.

kop, 23.6.2009 kl. 04:55

20 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Þó við séum stundum á öndverðum meiði  þá er ég þér hjartanlega sammála núna.

Bestu kveðjur.

Þráinn Jökull Elísson, 23.6.2009 kl. 05:46

21 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Þjóðstjórn er engin lausn á neinu. Hverjir sitja í svoleidis stjórn sem a) eru ekki Þegar á Þingi og b) thurfa ad reida sig á hid sama Þing? Ætlardu kannski ad leysa upp alÞingi? Gerist kannski eitthvad í hausnum á manni vid ad fara í ríkisstjórn sem fær mann til ad vera 100% sammála....varla.

Gísli Ingvarsson, 24.6.2009 kl. 15:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband