Leita í fréttum mbl.is

Endalaus leynd

Það er óskiljanleg þessi leynd sem ríkisstjórnin lætur vera yfir viðræðum vegna Icesave málsins. Eina skýringin á þessum asa í málinu kom fram í yfirgripsmiklu og hápólitísku viðtali Svavars Gestssonar sendiherra í Morgunblaðinu í dag eru eftirfarandi ummæli sendiherrans: ,,Ég var nú eiginlega bara orðinn leiður á því að hafa þetta hangandi yfir mér.“  Sem sé, sendiherrann vildi bara klára þetta. Eru það rök?  Hefðu frekari viðræður hugsanlega skilað betri samningi?

Á blaðamannafundi á laugardag kom fram hjá fjármálaráðherra að öll gögn væru jafnóðum send rannsóknarnefnd Alþingis. Hvað er ráðherrann með því að gefa í skyn? Að þessu máli tengist eitthvað sem heyrir undir verksvið þeirrar nefndar? Af hverju er vitnað í minnisblað sem þinginu er ekki sýnt? Og ef búið var að negla samkomulagið í þessu minnisblaði - um hvað var þá nefndin undir forystu Svavars Gestssonar sendiherra að semja? Þurfti þá eitthvað að semja?

Allur málflutningur ríkisstjórnarinnar í þessu máli er ótrúverðugur og skýringar eru þversagnakenndar. Eftir situr þjóðin með ábyrgð á umtalsverðum fjármunum sem enn hefur ekki tekist að útskýra með skýrum hætti að hún beri ábyrgð á.


mbl.is Gróflega misboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Það er slæmt, hvað samningamenn Íslands í dag, eru miklar liddur. Samkvæmt orðum ráðherra, fengu þeir í hendur frá samningamönnum, hinna þjóðanna, rökstudd álit um að afstaða Íslands væri röng - þ.e. sú afstaða, að við þyrftum ekki að borga þetta.

Nú, það er gamall siður, að í upphafi samninga, séu gjarnan sett fram mjög andstæð sjónarmið - þ.e. sá sem sækir, heldur sínu fram, leggur fram rökstuðning fyrir sínu máli. Á sama tíma, koma hinir fram með rökstuðning fyrir sínum skoðunum, þar með talin álit fræðimanna í eigin þjonustu. Fram til þessa, hefur það ekki verið siður, að líta svo á, að þessi álit væru einhversk konar heilagur sannleikur,,,fremur sem útspil í samningum.

Það skrítna, virðist hafa gerst, að Samfylkingin virðist hafa brugðist við þessum rökstuddu álitum, sem lögð voru fram af þeim sem sátu hinum megin við borðið, sem heilögum sannleik...séð sæng sína uppbreidda, og síðan gefist upp.

Þetta er dálítið ólík meðferð saminga, en hefur tíðkast af Íslendingum, fram að þessu. Íslendingar, sem voru þekktir fyrir, að vera harðir í samingum,,,taka engu sem sjálfsögðum hlut, draga nánast allt í efa, og gefa ekkert eftir fyrr en að þrautreyndu.

Nei, Samfylkingin, virðist hafa gefist upp, þegar í fyrstu lotu. Álit andstæðinganna, virðast ekki hafa leitt til gagnsvara, þ.s. þau voru dregin í efa, máli Íslendinga haldið til streytu.

Manni óar við því, að þetta fólk virkilega ætlar sér líka, að semja við ESB um aðild. Miðað við þessa útreið er vart að búast við mikilli samningahörku frá þeim, gagnvart ESB þar líka.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 8.6.2009 kl. 19:12

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Íslenska spilaborgin

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 8.6.2009 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 391723

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband