Leita í fréttum mbl.is

Heldur hvað?

Auðvitað er þessi fyrirgreiðsla til þessara tveggja fjárfestingabanka ekkert annað en ríkisstyrkur. Fyrirgreiðslan er óskiljanleg ekki síst fyrir þá sök að hluthafar í þessum fjárfestingabönkum töpuðu engu. Hvert orð í ágætri grein Halldórs Friðriks Þorsteinssonar um þetta mál í Morgunblaðinu í síðustu viku er rétt. Ríkissjóður sem er ekkert annað en við skattgreiðendur er að gefa örfáum hluthöfum tveggja fjárfestingabanka milljarða. Á meðan blæðir öðrum fyrirtækjum út og mörg fara í gjaldþrot. Ekki eiga þau kost á svona ríkisstyrkum. Af hverju ekki?

Á sama tíma segir forsætisráðherra að engin þörf sé að gera meira fyrir fjölskyldurnar í landinu. Það er of dýrt að lækka höfuðstól fasteignalána sem hækkuðu umfram allt sem nokkur skynsamur maður gat búist við vegna bankahruns og gengishruns. Hver fjölskylda fengi þó ekki nema örfáar milljónir í fyrirgreiðslu með slíkri aðgerð. Það er ekki hægt. 

Skilaboðin geta ekki verið skýrari: Það má gefa örfáum völdum hluthöfum marga milljarða króna. Það má ekki gefa fjölskyldunum í landinu örfáar milljónir króna. 

Ég skil ekki þessa ríkisstjórn.


mbl.is „Ekki ríkisstyrkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband