Leita í fréttum mbl.is

Ríkisumsvif aukast

Enn fjölgar fyrirtækjunum sem ríkið eignast vegna eignarhalds síns á bönkunum. Í sjónvarpsfréttum í gær kom fram að engar reglur eru til um það hvernig skilanefndirnar selja eignir sem bankarnir taka yfir með þessum hætti. Efnahagsmálaráðherrann skýrði frá því að fylgst væri með því að eignir væru seldar með opnu og gegnsæju söluferli. Hvernig er hægt að fylgjast með því þegar reglurnar eru engar til að bera saman við?

Það er umhugsunarefni að ekki skuli einfaldlega hafa verið settar skýrar reglur um sölu eigna. Þá er fyrirfram vitað hverjar leikreglurnar eru. Margt bendir til að upphaf ófara okkar megi rekja til þess að vikið var til hliðar á sínum tíma skýrum reglum um það hvernig standa skyldi að einkavæðingu bankanna. Þetta kemur t.d. skýrt fram í athyglisverðri bók Ólafs Arnarsonar Sofandi að feigðarósi. Í því tilviki voru reglurnar til. Þess vegna er svo auðvelt að sjá, eftirá, að þeim var vikið til hliðar. Ef engar reglur eru til má skjóta sér bak við þá staðreynd. Fyrir helgi var t.d. fréttaflutningur um það að ein skilanefndin væri að bjóða völdum aðilum með tölvupósti að gera tilboð í tilteknar eignir. Hvernig eru aðilar valdir í slíku ferli?

Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að efnahagsráðherra og ríkisstjórnin setji skýrar reglur þar sem opið og gagnsætt söluferli eigna, sem ríkisbankarnir þurfa að selja, er tryggt. Því verður ekki trúað að ríkisstjórnin vilji hafa þetta allt svona loðið og óljóst.


mbl.is Íslandsbanki með 47% hlut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Nú er málið að versla hjá sjálfum sér þe Ríkisfyrirtækjunum

Jón Snæbjörnsson, 18.5.2009 kl. 10:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 391660

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband