Leita í fréttum mbl.is

Að byrja á öfugum enda

Allir gera sér grein fyrir að fjárlagagatinu verður ekki lokað nema með skerðingu í þjónustu sem ríkið veitir. Fyrir kosningar töluðu stjórnarflokkarnir fjálglega um það að velferðarþjónustunni yrði hlíft. Innan við viku eftir kosningar kemur í ljós að eitt fyrsta verk ríkisstjórnarinnar, eftir að hún er búin að fá meirihlutastuðning kjósenda, er að skera niður í heilsugæslunni og draga þar úr þjónustu.

Heilsugæslan er og á að vera aðgangur sjúklinga að heilbrigðisþjónustunni, staðurinn þar sem metið er hvort sérhæfðari og þá kostnaðarsamari heilbrigðisþjónustu sé þörf. Það er því byrjað á öfugum enda ef draga á saman í heilsugæslunni til að lækka kostnað af heilbrigðisþjónustu. Nær væri að efla heilsugæsluna á tímum sem þessum og beita markvissum leiðum til að tryggja að heilsugæslan væri fyrsti staðurinn sem sjúklingar leituðu til með sinn heilsufarsvanda. Sumir fyrri heilbrigðisráðherrar hafa haft tilburði í þessa átt en ætíð heykst á því þegar til kastanna kemur.  

Af viðtalinu verður ekki annað ráðið en að búið sé að ákveða að Ögmundur verði áfram heilbrigðisráðherra. Hann a.m.k. talar sjálfur þannig. Sitjandi ríkisstjórn fékk til starfa "fagráðherra" eins og það hefur verið kallað. Af viðræðum við formenn Samfylkingarinnar og VG má ráða að ekki sé búið að útiloka að í komandi ríkisstjórn verði "fagráðherrar". Það má velta fyrir sér hvort þau ráðuneyti sem hafi mesta þörf fyrir "fagráðherra" séu ekki útgjaldafrekustu ráðuneytin, þ.e. heilbrigðisráðneytið, félagsmálaráðuneytið og menntamálaráðuneytið? Munu nokkrir stjórnmálamenn hafa hugrekki til að fara í þá allsherjaruppstokkun sem er fyrirsjáanlega þörf í þessum ráðuneytum?


mbl.is Skerðing þjónustu óhjákvæmileg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Ari Arason

Það virðist vera almennur doði ríkjandi varðandi niðurskurð í velferðarmálum og þá sérstaklega hvað varðar heilbrigðismálin, bæði meðal almennings og stjórnmálamanna. Afleiðingar varðandi heilsugæsluna geta verið mjög alvarlegar og leitt til meiri kostnað en sem nemur niðurskurðinum þegar til lengir tíma er litið. Alvarlegast er þó hættan á skertu aðgengi veikra barna sem oft þurfa þjónustu samdægurs. Þar verða skyndivaktirnar út í bæ sennilega látnar svara þörfinni með fleiri skyniúrræðum og litið þannig framhjá alþjóðlegum klíniskum leiðbeiningum  (NICE) um meðferð loftvegasýkinga og eftirfylgni í heima-heilsugæslunn. Erum þegar fræg af eindæmum fyrir misbrúkun sýklalyfja, sérstklega meðal barna og afleiðingum sem er mikið og alvarlegt sýklalyfjaónæmi sem hefði átt að vera okkur víti til varnaðar. Fjölmiðlar eru einnig handónýtir og þora ekki í umræðuna, sérst.  RÚV.

Vilhjálmur Ari Arason, 4.5.2009 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband