Leita í fréttum mbl.is

Hvernig gat þetta gerst?

Mér er óskiljanlegt hvernig forsetaembættið gat gefið grænt ljós á viðtal við forsetann þar sem orð hans voru slitin úr samhengi eins og það er kallað hjá embættinu. Ég hélt að fjölmiðlafulltrúar / upplýsingafulltrúar væru til að tryggja fyrirfram að svona uppákomur gerðust ekki. Og jafnþaulreyndur maður í samskiptum við fjölmiðla og forseti Íslands er léti svona lagað ekki gerast á sinni vakt. Er ekki tímabært að sá vinkill á málinu verði skoðaður?
mbl.is Forsetaviðtal olli skjálfta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg hárrétt hjá þér Dögg. Þetta er auðvitað aðal vinkillinn sem þarf að skoða.

Auðvitað má gagnrína forsetann og embættið sjálft.

En þessi skotgrafahernaður svarinna andstæðinga forsetans sem í áróðursskyni gefa sér það að það sem skrifað var í þetta blað sé kórrétt og akkúrat það sem forsetinn sagði.

Slíkur málflutningur er alls ekki trúverðugur.

Forsetinn okkar er þaulreyndur og mjög vel gefinn og hann hefur heilt yfir og í gegnum tíðina komist mjög vel frá samskiptum sínum við fjölmiðla og fólk almennt.

Þess vegna er þessi vinkill sem þú nefnir hér miklu áhugaverðari og algerlega nauðsynlegt að skoða rækilega.

Gott hjá þér líka að falla ekki í þennan leiðinda ófrægingarhóp sem endalaust leggur allt útá versta veg sem forseti okkar gerir eða viðhefst.

Ég tók sérstaklega eftir því og það gefur þér meira vægi í þjóðmála umræðuni. 

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 09:02

2 identicon

Nú er ég eitthvað að misskilja hér? Getur einhver tryggt það að þau orð sem forsetin lætur falla fari með þóknanlegum hætti í fjölmiðla? Er það einleikið að aftur og aftur er pressann að "misskilja" manninn? Það held ég ekki því miður

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 391658

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband