Leita í fréttum mbl.is

Eru

almennir starfsmenn bankans þeir sem mótmælendur vilja beina spjótum sínum að? Ég átta mig ekki alveg á hvaða tilgangi þessi mótmæli þjóna og einhvern veginn virðast þau beinast í rétta átt. 
mbl.is Mótmælendur skiptu um útibú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mótmælin beinast gegn bankanum sem stofnun. Tilgangur aðgerðarinnar var sá að stöðva vinnu í stutta stund til að leggja áherslu á kröfurnar, sem eru þær að fólk sem þegar hefur orðið uppvíst að því að misnota aðstöðu sína víki, að útvalið fólk fái ekki skuldir sínar afskrifaðar á meðan þjónustufulltrúinn fer á hausinn og að almenningur beri ekki skaðann af sukki, svindli og eiginhagsmunapoti innan bankakerfisins.

Ég reikna með að almennir starfsmenn bankans haldi fullum launum þótt þeir verði fyrir korters truflun og engum þeirra var ógnað á nokkurn hátt. Stjórnendur geta hinsvegar tekið það til sín ef truflun verður á starfsemi vegna mótmælaaðgerða.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 11:54

2 Smámynd: Héðinn Björnsson

Mótmæli eru táknrænn atburður sem, kemur á framfæri skoðunum fólks. Þessi atburður bennti vel á ábyrgð Landsbankans; stjórnenda hans  og eigenda.

Héðinn Björnsson, 17.12.2008 kl. 12:40

3 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Þetta er einhver mest banal og naive nálgun á mótmælum sem ég hef lesið nokkursstaðar.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 17.12.2008 kl. 13:14

4 identicon

Og ekki töpuðu þau kúlinu. Andlitstuskurnar voru svartar

Margret (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 13:18

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Kannski væri rétt hjá þér að ætti  að mæta heim til þrjótanna sem verið er að mótmæla svo ekki sé verið að rugla saman fólki.

Það gerði allavega píparinn sem náði ekki að innheimta vinnuna sína hjá byggingaraðilanum sem fór á hausinn.  Hann fór heim að flotta einbýlishúsinu hans og laumaði bensínsprengju undir Bensinn.  En þetta komst ekki í fjölmiðla vegna þess að byggingaaðilinn kærði ekki.  Þarna voru samt smáaurar á ferðinni miðað við hvað er í gangi núna.

En þetta er friðsamt fólk þess vegna eru þetta táknræn mótmæli.

Magnús Sigurðsson, 17.12.2008 kl. 14:17

6 identicon

Og ef þau duga ekki, þá göngum við lengra.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 15:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband