Leita í fréttum mbl.is

Samningsmarkmið

Eitt af því sem ræða þarf næstu vikur fyrir landsfund er það hvað við viljum fá útúr samningaviðræðum við EB. Hverju viljum við ná og hverju, ef einhverju, erum við tilbúin til að fórna? Ekki sendum við fulltrúa okkar til Brussel í aðildarviðræður án samningsmarkmiða? Ljóst er að EB mun hafa sín samningsmarkmið og sjálfsagt hvergi hvika frá þeim. Það er því mikilvægt að við séum einnig með okkar markmið á hreinu. T.d. eins og það að í sjávarútvegsmálum verði engin eftirgjöf af okkar hálfu.
mbl.is Teflt á tvær hættur með Evrópuumræðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég hef aldrei séð skilgreind samningsmarkmið eða fráfaraskilyrði frá Samfylkingunni, eins mikið og þeir tala um ESB.  Það er skynsamlegt að taka debatinn á þeim forsendum.  Gott að lesa að þú og fleiri sjálfstæðismenn vilja vernda sjávarútveginn. Fiskimiðin eru okkar stærsta auðlind og henni megum við ekki fórna, því þá eyðileggjum við möguleika komandi kynslóða að lifa hér.

Sigurður Þórðarson, 1.12.2008 kl. 09:59

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Samfylkingin veit einfaldlega að aðildarviðræður við Evrópusambandið snúast ekki um eðlilega samninga. Þær snúast um að sambandið setur sín skilyrði og síðan snúast viðræðurnar um það hversu langan tíma viðkomandi ríki þurfi til þess að aðlagast þeim og regluverki þess. Eins og t.d. Björn Bjarnason sagði Evrópunefnd forsætisráðherra hafa komizt að. Fyrir vikið hefur Samfylkingin ekkert verið að setja saman samningsmarkmið. Til hvers? Þau munu hvort sem ekki nást.

Hjörtur J. Guðmundsson, 1.12.2008 kl. 10:44

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Umræðan um Evrópumálin hefur síðustu misseri aðallega snúist um meinta þörf á nýjum gjaldmiðli. En hvaða gagn höfum við að nýjum gjaldmiðli ef verðið fyrir hann er sjálfstæði þjóðarinnar og yfirráð hennar yfir eigin auðlindum? Er evran t.d. þess virði að greiða fyrir hana yfirráð yfir 200 mílna efnahagslögsögu ofan á allt annað? Það er vissulega nauðsynlegt að hafa gjaldmiðil sem virkar og ég hef alla trú á því að krónan mun aftur valda því hlutverki innan ekki svo langs tíma, en grundvöllur hagsældar á Íslandi er ekki gjaldmiðillinn einn og sér sem notaður er í landinu heldur náttúruauðlindirnar okkar. Og þær eru ekki til sölu, hvorki fyrir evrur eða krónur.

Hjörtur J. Guðmundsson, 1.12.2008 kl. 10:46

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég er alveg sammála þér Hjörtur en ég hallast að þeirri skoðun að best sé að þvinga Sf. í alvöru rökræðu um kosti og galla, þar stendur hún höllum fæti. Gott dæmi um þetta eru samningar ESB við Möltu sem samfylkingarmenn hafa notað  til að sýna fram á hve langt sé hægt að  komast með undanþágum. 

Sigurður Þórðarson, 1.12.2008 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 391714

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband