Leita í fréttum mbl.is

Þjóðstjórn?

Halda menn í alvöru að þjóðstjórn leysi einhvern vanda? Þar fyrir utan leyfi ég mér að halda að stjórnarandstöðuflokkarnir séu mjög tregir til að ganga til þjóðstjórnar - þeir vilja kosningar, sérstaklega VG því VG heldur að þeir fái svo mikið uppúr kjörkössunum. Ég er sannfærð um það að ef til kastanna kæmi þá myndu stjórnarandstöðuflokkarnir allir neita þátttöku í þjóðstjórn - enda er það miklu einfaldara og ábyrgðarminna að vera alltaf á móti.
mbl.is Taka höndum saman um þinghúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórbergur Torfason

Af skrifum þínum er einfalt að sjá að þú, eins og margir aðrir sjálfstæðismenn, ert enn á mótþróaskeiðinu.

Þórbergur Torfason, 19.11.2008 kl. 16:22

2 Smámynd: Sigurður Hrellir

Dögg, þetta snýst um að almenningur treysti stjórninni. Þjóðin hrópar á að ráðamenn axli ábyrgð en allir kenna þeir einhverju öðru um ófarirnar. Þjóðstjórn leysir auðvitað ekki allan vanda en heldur þú virkilega að mörg þúsund manns væru standandi í kulda og trekki á Austurvelli viku eftir viku ef þeim væri ekki gróflega misboðið?

Bæði Sjálfstæðisflokkur og Samfylking mun gjalda það dýru verði að hafa ekki tekið af skarið strax eftir að Kaupþing féll og gætt þess að ná sem víðtækastri samstöðu um neyðaraðgerðir. Með því gerði ríkisstjórnin illt verra og traustið dvínaði bæði hérlendis og erlendis. 

Þjóðin á ekki að þurfa að bíða í algjörri óvissu og vona það besta á meðan að ríkisstjórnarflokkarnir taka sig saman í andlitinu, ræða málin á landsfundum þar sem innbyrðis deilur munu hæglega geta klofið þá í sundur!

Sigurður Hrellir, 19.11.2008 kl. 17:30

3 Smámynd: Dögg Pálsdóttir

Mótþróaskeiði Þórbergur? Meinarðu ekki þá frekar að við sjálfstæðismenn séum í afneitun? En skoðun mín á þjóðstjórn hefur ekkert með það að gera að ég er sjálfstæðismaður. Ég held einlæglega að þjóðstjórn sé slæmur kostur. Og afneitun mín er ekki meiri en svo að ég hef bloggað um að ég sjái ekki hvernig komist verði hjá alþingiskosningum næsta vor. Ég held þó að stjórn sem þá tæki við myndi ekki sitja lengi því fljótlega yrðu aðrar alþingiskosningar til að velja um það hvort við viljum EB eða ekki.

Traust á stjórninni? Ég held Sigurður Hrellir að það sé alveg sama hvaða stjórn hefði verið við völd við fall bankanna - hún hefði alltaf þurft að láta mæða á sér óánægjuna með það sem gerðist, hvort sem það er sanngjarnt eða ekki.  En það breytir því ekki að við kjósum til fjögurra ára í senn - og ætlumst til að ríkisstjórn sem mynduð er að kosningum loknum takist á hendur að leysa þau verkefni sem upp koma meðan hún situr. Ef ríkisstjórn hleypur í burtu í hvert sinn sem á móti blæs þá fáum við stjórnleysisástand. Viljum við það? Ætlum við að láta skoðanakannanir ráða því hvort þjóðin hafi traust á ríkisstjórnum eða ekki? Ef við gerum það, getum við þá ekki bara sleppt því að hafa kosningar á fjögurra ára fresti og látið ríkisstjórnir koma og fara í samræmi við gengi þeirra í skoðanakönnunum. Viljum við svoleiðis lýðræði?

Dögg Pálsdóttir, 19.11.2008 kl. 17:55

4 Smámynd: Sigurður Hrellir

Ég veit ekki hvað á að kalla það "lýðræði" sem við verðum vitni að dag eftir dag. Það er alveg sama hvaða stjórn hefði verið við völd. Hún hefði tapað trausti fólks. Að "axla ábyrgð" hefur enga merkingu lengur í orðræðu stjórnmálamanna. Það sem hefur verið boðið upp á er ólýðræðislegur gjörningur örfárra ráðherra og Seðlabankastjóra. Alþingi er utanveltu og afgangsstærð í mikilvægustu ákvörðunum sem teknar hafa verið á seinni tímum. Þingkonur Sjálfstæðisflokksins Ragnheiður og Guðfinna kvarta meira að setja yfir þessum framgangsmáta. Segir það ekki sína sögu?

Sigurður Hrellir, 19.11.2008 kl. 20:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 391645

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband