Mánudagur, 10. nóvember 2008
Ýmislegt hægt að gera
Margir hafa verið með ábendingar um úrræði til aðstoðar fyrirtækjum í rekstrarvanda. Hagfræðingarnir Gylfi Zoega og Jón Daníelsson hafa bent á að stjórnvöld geti útvegað þessum fyrirtækjum rekstrarlán með hagstæðum vöxtum a.m.k. tímabundið. Enda snýr vandi flestra fyrirtækja nú að lausafjárskorti. Þórarinn V. Þórarinsson lögmaður ritaði athyglisverða grein í Morgunblaðið 5. nóv. sl. þar sem hann benti á ákvæði 6. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 sem lögfesta að dráttarvextir skuli vera ellefu hundraðshluta álag ofan á nánar tilgreinda vexti, en Seðlabanki hefur þó svigrúm til að lækka álagið niður í sjö hundraðshluta. Þetta svigrúm virðist Seðlabankinn hafa notfært sér. Engu að síður eru dráttarvextir fáránlega háir, eða 26,5%. Jafnframt benti Þórarinn á að dráttarvextir á lán í erlendri mynt væru úr öllu samhengi og skoraði á Alþingi að breyta vaxtalögum þannig að dráttarvextir á erlendar kröfur taki mið af undirliggjandi vöxtum í erlendri mynt, með hóflegu álagi, með sama hætti og gert er um allan heim.
Alþingismenn ræddu í síðustu viku störf þingsins og kvörtuðu m.a. yfir því að þeir væru eins og afgreiðslufólk á kassa. Væri nú ekki ráð að alþingismenn tækju sig sjálfir til og drifu í að leggja fram lagafrumvörp með lagabreytingum, sem bent hefur verið á að gera þurfi? Eins og t.d. að breyta lagaákvæðum um dráttarvexti? Eftir hverju er verið að bíða?
Mörg fyrirtæki eru tæknilega gjaldþrota | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
- addabogga
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- andriheidar
- gumson
- audbergur
- abg
- axelaxelsson
- armannkr
- arniarna
- asabjorg
- arh
- aslaugfridriks
- astamoller
- astar
- kaffi
- birgir
- launafolk
- bjarnimax
- borgar
- braskarinn
- gattin
- bryndisharalds
- brandarar
- carlgranz
- rustikus
- deiglan
- draumur
- einarbb
- ekg
- jaxlinn
- elinora
- ellasprella
- ellyarmanns
- erla
- erlaosk
- erna-h
- fsfi
- fhg
- gerdurpalma112
- gisliivars
- gisligislason
- neytendatalsmadur
- grazyna
- gudni-is
- gelin
- gudbjorng
- fasteignir
- gudfinna
- lucas
- gudmundurmagnusson
- gudrunshil
- gudruntora
- gunnaraxel
- gunnargunn
- laugardalur
- gylfithor
- hallarut
- heidistrand
- heidathord
- jarnskvisan
- heimirhilmars
- hehau
- helgi-sigmunds
- herdis
- himmalingur
- hjaltisig
- disdis
- holmfridurge
- tulinius
- idno
- ingabesta
- ingisund
- golli
- ibb
- astromix
- johannalfred
- stjornun
- jonmagnusson
- jonsnae
- juliusvalsson
- kolbrunb
- kristinhrefna
- lara
- lotta
- nytjagardar
- altice
- matarbitinn
- maggaelin
- martagudjonsdottir
- mal214
- morgunbladid
- olavia
- olinathorv
- olofnordal
- omarbjarki
- huldumenn
- otti
- publicservant
- iceland
- pjeturstefans
- ragnar73
- ragnheidurrikhardsdottir
- ragnhildur
- rannveigmst
- runirokk
- rynir
- trumal
- salvor
- sirrycoach
- sigurbjorns
- sv11
- sighauk
- sij
- sigurdurir
- ohyes
- sigurdurkari
- siggisig
- siggith
- sigurjonsigurdsson
- zunzilla
- sms
- 1301493169
- stefaniasig
- stebbifr
- brv
- sveinni
- saethorhelgi
- thelmaasdisar
- grasteinn
- ubk
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- va
- villidenni
- thorbjorghelga
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- thoragud
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- iceberg
- toddi
Athugasemdir
Af hverju hafa alþingismenn ekki komið sér saman um framkvæmd úttektar á aðdraganda hrunsins?
Eða eru þeir bara afgreiðslufólk á kassa í búð ríkisstjórnarinnar?
Sigurður Haukur Gíslason, 10.11.2008 kl. 13:27
Já, það er ýmislegt hægt að gera. Það er hinsvegar þannig að það er eins og núverandi stjórnvöld ætli að reyna að funda þetta ástand í burtu. Það er ekki komin nein aðgerðaráætlun, engar tillögur til þess að mæta aðsteðjandi og yfirvofandi vanda. Sú vinna sem er í gangi fer svo leynt að enginn veit af henni.
Einu tillögurnar sem koma eru frá háskólasamfélaginu og vinnuveitenda /launþega samtökum. Ég held að eina ráðið sé að skipa utanþingsstjórn með fólki sem hægt er að treysta til þess að takast á við þann vanda sem nú er við að etja og boða svo til kosninga annaðhvort næsta vor eða frekar næsta haust.
Fannar (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 14:08
Það sem er í gangi er að Íslendingar skrifuðu undir EES samninginn. Með honum fengum við sömu aðstöðu og ESBlöndin að mestu leyti. Það vissu stjórnmálamenn´og þeir sem notuðu þann samning. (ÞEIR ÁTTU AÐ VITA ÞAÐ, ENDA NOTAÐI “ÚTRÁSIN” ÞAÐ).
Með undirskriftinni gengust íslendingar undir það að íslendingum (...og íslenskum bönkum) væri ekki mismunað ( VEGNA ÞJÓÐERNIS).
Nú vilja ÍSLENSK STJÓRNVÖLD MISMUNA ÍSLENSKUM OG ERLENDUM SPARISJÓÐSEIGENDUM HJÁ SAMA FYRIRTÆKI!!!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 10.11.2008 kl. 20:03
Kære modtager,
Jeg er en Islanding. Jeg har været kunde i Roskilde bank i mange aar, naar jeg
boede i Danmark. Nu er jeg flyttet tilbage til Island og har boet her siden
2004.
Jeg vil gærne spörge om jeg kan igen have en konto i DK, hos jer?
Situasjonen her í Island er forfærdelig med denne værdilöse krone som vi har!
Et halvt aar siden var ein Dkr 11 isl.kroner, nu er den næsten 23!
Ingen her vil længere have denne toiletpapir for en valuta, saa jeg haaber jeg
kan have en konto hos jer?
Kærlig hilsen,
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
PS; Mit CPR-numer i DK er 181163-2364
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 10.11.2008 kl. 20:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.