Fimmtudagur, 20. desember 2007
Brot á jafnræðisreglu?
Erfitt getur reynst að hrinda skilyrðum af þessu tagi í framkvæmd. Við setningu laga um tæknifrjóvgun var litið svo á að meðferðin væri við ófrjósemi. Það þýddi að sýna þurfti fram á ófrjósemi parsins sem undir aðgerðina gekkst. Þegar þannig er horft á meðferðina er auðveldara að setja frekari skilyrði, eins og t.d. skilyrði er snýr að þyngd.
En nú er farið að líta á aðgang að þessari meðferð sem ákveðin réttindi. Fyrsta skrefið í þá átt var stigið í fyrra þegar opnað var fyrir aðgang samkynhneigðra kvenpara að glasafrjóvgun. Með slíkri áherslubreytingu hlýtur að verða erfiðara að setja skilyrði af því tagi sem fréttin fjallar um vegna jafnræðisreglu. Rétt er að minna á að kröfur af svipuðu tagi voru gerðar vegna ættleiðingar. Kona, sem synjað hafði verið um leyfi til að ættleiða barn frá Kína, m.a. vegna holdafars, höfðaði mál til að fá þeirri synjun hnekkt. Hún vann málið fyrir héraðsdómi. Málinu var ekki áfrýjað.
Feitar fá ekki tæknifrjóvgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
- addabogga
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- andriheidar
- gumson
- audbergur
- abg
- axelaxelsson
- armannkr
- arniarna
- asabjorg
- arh
- aslaugfridriks
- astamoller
- astar
- kaffi
- birgir
- launafolk
- bjarnimax
- borgar
- braskarinn
- gattin
- bryndisharalds
- brandarar
- carlgranz
- rustikus
- deiglan
- draumur
- einarbb
- ekg
- jaxlinn
- elinora
- ellasprella
- ellyarmanns
- erla
- erlaosk
- erna-h
- fsfi
- fhg
- gerdurpalma112
- gisliivars
- gisligislason
- neytendatalsmadur
- grazyna
- gudni-is
- gelin
- gudbjorng
- fasteignir
- gudfinna
- lucas
- gudmundurmagnusson
- gudrunshil
- gudruntora
- gunnaraxel
- gunnargunn
- laugardalur
- gylfithor
- hallarut
- heidistrand
- heidathord
- jarnskvisan
- heimirhilmars
- hehau
- helgi-sigmunds
- herdis
- himmalingur
- hjaltisig
- disdis
- holmfridurge
- tulinius
- idno
- ingabesta
- ingisund
- golli
- ibb
- astromix
- johannalfred
- stjornun
- jonmagnusson
- jonsnae
- juliusvalsson
- kolbrunb
- kristinhrefna
- lara
- lotta
- nytjagardar
- altice
- matarbitinn
- maggaelin
- martagudjonsdottir
- mal214
- morgunbladid
- olavia
- olinathorv
- olofnordal
- omarbjarki
- huldumenn
- otti
- publicservant
- iceland
- pjeturstefans
- ragnar73
- ragnheidurrikhardsdottir
- ragnhildur
- rannveigmst
- runirokk
- rynir
- trumal
- salvor
- sirrycoach
- sigurbjorns
- sv11
- sighauk
- sij
- sigurdurir
- ohyes
- sigurdurkari
- siggisig
- siggith
- sigurjonsigurdsson
- zunzilla
- sms
- 1301493169
- stefaniasig
- stebbifr
- brv
- sveinni
- saethorhelgi
- thelmaasdisar
- grasteinn
- ubk
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- va
- villidenni
- thorbjorghelga
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- thoragud
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- iceberg
- toddi
Athugasemdir
Það segir sig sjálf að ef konan er mjög í holdum gæti meðferðin reynst henni erfið likamlega. Sem og meðgangan og fæðingin.
En í ljósi þess að ekki er hægt að banna þessum sömu konum að eignast börn geti þær orðið óléttar sjálfar, án inngrips, þá þykja þessar reglur ef til vill heldur ósanngjarnar.
Steinunn Ósk Steinarsdóttir, 20.12.2007 kl. 09:51
Þetta fellur undir sama hatt og lögin um ættleiðingu - það er ekki réttur konunnar sem er í húfi, heldur barnsins. Það hefur rétt á því að fæðast heilbrigt, hefur rétt á því að hafa lífslíkur, hefur rétt á því að eiga móður (ekki bara við fæðingu, heldur eins langt og hægt er að gera ráð fyrir að móðir barns lifi).
Það að náttúran geti séð fólki fyrir möguleikanum að eignast barn er eitt, en um leið og mannlegt inngrip er komið í málið (tæknifrjóvgun, leigumeðganga, ættleiðing), þá er alveg sjálfsagt að lagaramminn sé þrengri, því þó svo að það sé ekki hægt að sía út hverjir eignist börn og hverjir ekki með náttúrulegum aðferðum (og ég er á þeirri skoðun að það sé allt of mikið af fólki í þessum heimi sem aldrei hefði átt að fá að eignast börn, eins og það fer með börnin sín) að þá er ekki nema sjálfsagt að ríkið setji hömlur á "tæknilegu" leiðina, enda er þar fjármagn ríkisins sem kemur að málum, og þar með réttur ríkisins til að hafa áhrif til betri vegar fyrir þá einstaklinga sem eiga í hlut - móður OG barn.
Þór Sigurðsson, 20.12.2007 kl. 10:38
málefnanleg sjónarmið, fólk hefur þann kost þá að grenna sig. finnst alveg sjálfsagt að fólkið sem ræður ekki við sjálft sig, fari að sýna smá ábyrgð. ísland er bara orðið litla Ameríka.
las (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 14:18
Nú er ég komin í jólaskap og segi ekkert annað en gleðileg jól að þessu sinni
Valgerður Halldórsdóttir, 22.12.2007 kl. 13:19
Ég er bara að kasta jólakveðju á þig kæri bloggvinur.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár!
Kv Sigríður
Sigríður Jónsdóttir, 23.12.2007 kl. 14:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.